Rokksöngleikurinn Súperstar var frumsýndur í Mánagarði sl. laugardagskvöld fyrir troðfullu húsi. Sýningin tókst í alla staði frábærlega vel og var leikendum fagnað mikið og lengi einnig leikstjóranum Gunnari Sigurðssyni og öðrum sem að sýningunni stóðu. Uppsetning á Súperstar er á vegum Leikfélags Hornafjarðar í samvinnu við FAS og Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Leikendur eru nemendur FAS og með hlutverk Súperstar fer Ingi Steinn Þorsteinsson, Maríu leikur Sara Eik Sigurgeirsdóttir, Nanna Halldóra Imsland leikur Júdas, systkinin Þórður Ingvarsson og Ingibjörg eru Pílatus og Heródes. Ágúst Elvarsson er Símon lærisveinn og með hlutverk prestanna fara Elvar Bragi Kristjónsson, Emil Örn Morávek og Sigfinnur Mar Þrúðmarsson. Með hlutverk lærisveinanna fara Aino Raiskila, Alexandra Ingvarsdóttir, Chiharu Kawai og Goran Basrak. Þessir ungu leikarar eiga mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína á sýningu Superstar og vonandi fá Hornfirðingar að njóta þess að sjá þau sem oftast á sviðinu í Mánagarði í framtíðinni.
Lesa meira