Mars
Ragnar Frank, þjóðgarðsvörður
Ragnar Frank, þjóðgarðsvörður
Ragnar Frank, þjóðgarðsvörður (úr myndasafni)
Mynd 1 af 3
1 2 3

31.03.2005 Mars

16 umsækjendur um stöður sérfræðinga við Þjóðgarðinn í Skaftafelli

Umsóknarfrestur um tvær starfsstöður við Þjóðgarðinn í Skaftafelli er runninn út og voru 16 umsækjendur um þær. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður sagði að það kæmi í ljós í lok næstu viku hverjir yrðu ráðnir. Umsóknir bárust frá heimamönnum og víða af landinu einnig frá útlöndum. Þetta eru störf sérfræðinga í stöður við þjóðgarðinn á starfsstöðum á Höfn og Kirkjubæjarklaustri. Skilyrði sem við settum fyrir umsóknum í þessi störf ,segir Ragnar, er að viðkomandi sé með einhver jarðfræðipróf, hafi unnið við landvörslu, einnig mikilvægi þess að ná góðum samskiptum við fólk..Við erum að leita að fólki með þekkingu á jöklum og því sem tengist landmótum jökla þannig að viðkomandi geti líka eitthvað gert í tengslum við jöklasýninguna. Þjóðgarðurinn er jökulhettan á þessu svæði þannig að það má segja að ekkert land sé utan jökulhettu innan svæðis frá Öræfajökli og austur úr svo jökullinn mun ekki hafa neinn skaða af þeirri umferð sem verður í jaðri hans.

Starfsmennirnir eiga að vera í nánum tengslum við jarðeigendur við jaðar jökulsins, þeir eiga að sinna hálfgerðri landvörslu á því svæði ásamt því að fræða ferðamenn yfir sumartímann og koma upplýsingum á framfæri til upplýsingamiðstöðvarinnar, til starfsfólksins þar um allt það nýjasta sem er á döfinni hverju sinni og hvað sé áhugavert að skoða.

Lónsöræfi munu einnig tilheyra því svæði sem sinnt verður frá Höfn þannig að svæði starfsmannsins sem verður á Höfn nær frá Jökulsárlóni austur í Lónsöræfi. Yfir vetrartímann er það skriffinnskan sem þarf að sinna, búa til fræðsluefni um þjóðgarðinn einnig vinna að skipulags-og öryggisáætlunum fyrir þjóðgarðinn. Ragnar segir að allir starfsmennirnir fjórir muni síðan vinna að því að búa til verndaráætlun fyrir Laka.
Við munum reyna að sinna þessu eins og við getum og það verður gert í sátt við landeigendur á hverjum stað. Það er mikið samstarf framundan við landeigendur á þessu svæði og við munum sinna því eins vel og við getum og ég hlakka til þessa samstarfs segir Ragnar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica