Lóan kemur í stórum hópum og farfuglarnir streyma hingað
Lóan er komin, ekki bara ein og ein heldur í stórum hópum sama er að segja um skógarþrestina og eitthvað er komið af hrossagaukum. Álftum og gæsum fjölgar daglega á svæðinu ásamt flestum þessum venjulegu farfuglum. Björn Arnarson segir að farfuglarnir séu að koma á svipuðum tíma og verið hefur, eina óvenjulega sé hvað lóan kemur í stórum hópum t.d. sá hann 300 lóur í hóp um sl. helgi. Bleshæna hefur verið í höfninni undanfarna daga og virðist kunna vel við sig nálægt æðarfuglinum. Bleshænan er kolsvört með hvítt nef, hún er ekki óalgeng hér á landi og hefur einstaka sinnum verpt hér. Helsta verkefni nýstofnaðs fuglaseturs er að sjá um merkingu og skráningu fugla svo hægt sé að fylgjast með þeim. Ekki hefur verið gengið frá ráðningu starfsmanns við fuglasetrið og á meðan sinna þeir Björn og Brynjúlfur merkingum og öðru sem gera þarf.
Björn segir að um páskana hafi þeir merkt 70 fugla og einn skógarþröst hafa þeir fundið sem þeir merktu í fyrra svo ljóst er að hann hefur skilað sér á sama staðinn aftur.. Á næstu dögum fá þeir ný og betri net til að ná fuglum í til merkingar og segir Björn það bæta stórum aðstöðuna við starfið því þetta sem þeir hafi verið að nota sé löngu úrelt.





Skrifa athugasemd