Metaðsókn miðað við seinni ár
Mjög góð aðsókn var að söfnum hér á Höfn um páskahelgina. Björn Arnarson safnvörður sagði að um 230 manns hefði komið í Gömlubúð þar sem nokkrir safnarar sýndu safngripi sína auk alls þess sem byggðasafninu tilheyrir. Þetta er metaðsókn miðað við seinni ár en fyrir nokkrum árum komst tala gesta í 250. Fjöldi fólks lagði leið sína í Pakkhúsið á glerlistasýningu Svönu og Gutta og þar var einnig sýning á málverkum eftir Sigurð Einarsson alþýðumálara ættuðum af Mýrunum. Margir lögðu leið sína í Vöruhúsið þar sem sýndar voru myndir frá Finnlandi ásamt teikningum af Jöklasýningunni þ.e. hvernig hún kemur til með að verða.
Bókamarkaður var þar einnig á vegum Menningarmiðstöðvarinnar og gerðu margir góð bókakaup því verð bókanna var aðeins kr.100, hver bók, sama hvaða fróðleik hún hafði að geyma.




Skrifa athugasemd