Ásdís Ólafsdóttir nýr útibússtjóri Lyfju-Höfn
Hafnarapótek heyrir brátt sögunni til og við tekur Lyfja-Höfn, útibú frá Egilstöðum. Lyfja er búin að taka við rekstri apóteksins og fer formleg nafnabreyting fram 8.april nk. Útibústjóri er Ásdís Ólafsdóttir og er hún tekin við stjórn apóteksins. Þorgils Baldursson apóteksstjóri og eigandi Hafnarapóteks er fluttur með fjölskyldu sína til Reykjavíkur þar sem hann mun starfa hjá Lyfju. Ásdís er Hornfirðingur, dóttir Önnu Birnu og Óla Einars, hún er lyfjatæknir að menntun og hefur starfað hjá Lyfju í níu ár, síðast stuttan tíma á Egilsstöðum. Hún segir yndislegt að vera komin heim aftur eftir langa fjarveru og alveg meiriháttar notalegt hvað taki allir taki vel á móti henni og fjölskyldunni, Kristjáni Guðnasyni og þrem börnum.
Ásdís segir að ekki verði neinar stórbreytingar á apótekinu, vöruúrval verður svipað kannski eitthvað meira, áfram verða fjórir starfsmenn utan útibússtjóra en verð í Lyfju?Höfn verður vonandi eitthvað hagstæðara.





Skrifa athugasemd