Mars

24.03.2005 Mars

Hópferðabíll valt á hliðina skammt frá Sólheimatungu

Í gær lenti hópferðabíll Einars Sigurðssonar í Hofsnesi útaf veginum og út í skurð skammt frá Sólheimatungu, þar sem bíllinn valt á hliðina. Í bílnum voru auk Einars 11 svissneskir fjalla-skíðamenn og sluppu allir ómeiddir, aðeins með skrámur og smáhnykki. Ástæðan fyrir þessu óhappi var að hvellsprakk á hægra framhjóli bílsins og þykir mikil mildi að ekki fór verr, en bíllinn er mjög mikið skemmdur. Einar sagði að rúta með skólakrakka hafi komið þarna að og séð þegar bíllinn fór útaf og hafi leiðsögumaðurinn og bílstjóri rútunnar komið og aðstoðað hann og hóp hans á allan hátt og verið alveg frábær og svo róleg yfir þessu öllu. Við vorum drifin inn í rútuna og ekið heim að Sólheimatungu þar sem við gistum í nótt. Lögregla og læknir komu á staðinn og hlúðu vel að mannskapnum en ekki þurfti aðstoð sjúkrabíla.

Áður en lagt var í ferðina benti ég þeim á að samkvæmt íslenskum umferðarlögum ætti að nota bílbelti en það gerðu þeir ekki svo ég var sá eini sem var í bílbelti.

Í morgun var Einar búinn að ná sér í bílaleigubíl og allir voru tilbúnir að halda ferðinni áfram Sagði hann að nú yrði haldið að Heklu og gengið á fjallið, síðan rennt niður á skíðunum. Þá verður sennilega farið á Tindafjallajökul og á Snæfellsjökul, fer eftir hvernig viðrar og ferðinni lýkur í Reykjavík á páskadag. Daginn áður en óhappið varð höfðu skíðakapparnir gengið á Eyjafjallajökul í dýrðlegu veðri en í gær var rok og rigning og ekkert göngu eða skíðafæri og þá sýndi Einar þeim svæðið við Dyrhólaey þar sem var haugasjór, mikið brim og varla stætt á sandinum. Það fannst Svisslendingunum mikil upplifun.
Einar sagði að þegar lagt var af stað í morgun á bílnum, hefðu allir spennt á sig bílbeltin. Líklega hefur þeim fundist að réttast væri að fara eftir þessum íslensku reglum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica