Gutti er mín stoð og stytta í þessu öllu
Óvenjuleg og sérstök listsýning verður í Pakkhúsinu á Höfn um páskana. Hér er um að ræða sýningu Svanhvítar Kristjánsdóttur glerlistakonu á nytjahlutum unnum úr gleri t.d. matardiskasett og glerdiskar og föt í öllum stærðum og gerðum einnig glermyndir. Svanhvít og eiginmaður hennar Guttormur Rafnkelsson (Nesjamaður í húð og hár) eru Hornfirðingum að góðu kunn en þau fluttu til Reykjavíkur fyrir fimm árum, eftir 30 ára búskap í Nesjum. Svanhvít fór á glerlistanámskeið fyrir rúmu ári og þar með var hún búin að finna eitthvað sem alveg passaði fyrir hana að fást við. Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt og það er hægt að gera svo margt fallegt úr glerinu segir Svanhvít. Við erum búin að koma okkur upp galleríi í bílskúrnum og þar er ég með glerlistanámskeið, mest sótt af konum. Gutti er mín stoð og stytta í þessu öllu, hefur smíðað svo til öll mótin og er bara alveg frábær að taka þátt í þessu með mér.
Svanhvít segir, að hvert námskeið taki tvö kvöld og eru mest fjórar konur í einu og eftir það geta þessar konur komið hingað og notað aðstöðuna hér til að búa til hluti, fengið bæði efni, áhöld og afnot af brennsluofninum og greiða ákveðið gjald fyrir.
Svanhvít segir að bæði sé auðvelt og þægilegt að vinna úr glerinu og um að gera sé að láta bara sköpunargleðina ráða ferðinni og þetta sé tómstundaiðja sem henti fólki á öllum aldri. Hún hefur haft mikið að gera við námskeiðahald og vinnslu glermuna en auk þess vinnur hún hálfan daginn við daggæslu skólabarna í 2-3 bekk.
Sýningin í Pakkhúsinu er fyrsta sýning Svanhvítar og segist hún hlakka mikið til að sýna hér og vonar að sem flestir líti við í Pakkhúsinu um páskana og sjái hvað er hægt að gera marga skemmtilega muni úr gleri- og bara allir hjartanlega velkomnir.





Skrifa athugasemd