Mars
Undirbúningur í eldhúsinu fyrir veisluna @kokkur.is
Undirbúningur í eldhúsinu fyrir veisluna @kokkur.is
Undirbúningur fyrir styrktarveislu 2004 sem haldin var í Mánagarði (úr myndasafni)

23.03.2005 Mars

Styrktarveislu 2005 hefur verið aflýst

Fréttatilkynning

Undirbúningshópur styrktarveislunnar 2005, tilkynnir hér með að veislunni er aflýst. Ástæðan er mjög dræm miðasala en einungis höfðu selst fjórir miðar um miðjan dag í gær. Markmið styrktarveislunnar var að safna fé sem óskipt átti að renna til málefna fatlaðra. Mikið af fólki hefur lagt gríðarlega vinnu í að undirbúa styrktarveisluna, í að verða hálft ár og eru þetta því mikil vonbrigði. Allir gáfu vinnu sína og allur hagnaður hefði runnið til málefnisins óskiptur eins og fyrr segir. Veislan á Höfn í fyrra tókst mjög vel og seldust allir miðar. Selfoss er mun stærra pláss og því áttum við ekki von á öðru en að vel myndi ganga, en enginn miði seldist þar. Baráttan um athygli fjölmiðla er erfið. Í langflestum tilfellum kom ekki svo mikið sem svar við erindi okkar og lítill áhugi virtist vera á að fjalla um framtak sem þetta. En það eru ótrúlegustu hlutir sem rata inn á borð fjölmiðla. Mátti fræðast heilmikið um rottur sem gæludýr í sjónvarpinu eitt kvöldið en styrktarveislan fékk ekki inni.

Málefni fatlaðra eru líklega ekki efst í huga fólks í dag. En við viljum þakka öllu því fólki sem starfaði með okkur og fjölda fyrirtækja sem voru reiðubúin að styrkja þetta framtak. Ólíklegt er að við leggjum út í veislu af þessu tagi að ári en stefnan var að hafa þetta árlegan viðburð.
Óskum við fötluðum góðs gengis og vonum að gata þeirra verði gerð greiðfærari með öðrum hætti.

Undirbúningshópur styrktarveislunnar 2005

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica