Mars
Stuttnefja og langvia
Stuttnefja og langvia
Guli fótalitur á stuttnefju er mjög sjaldgæfur. Venjulegur fótalitur er eins og á langvíunni við hliðana á henni á myndinni. (mynd Björn Arnarson)

22.03.2005 Mars

Gulfætt stuttnefja í þorskanet hjá Sigurði Ólafssyni SF44

Í síðustu viku kom gulfætt stuttnefja í þorskanet hjá Sigurði Ólafssyni SF44 á miðunum út af Suðursveit. Björn Arnarson fuglaáhugamaður segir að þessi guli litur á fótum hennar sé mjög sjaldgæfur ef ekki einsdæmi og segir venjulegan lit vera eins og á langvíunni á meðfylgjandi mynd. Hópar skógarþrasta kom til Hornafjarðar um helgina og var vel líflegt í Einarslundi þar sem þeir spókuðu sig um í vorblíðunni. Björn segir mikið minna hafi verið af þröstum hér á Höfn í vetur en verið hefur í mörg ár, með minnsta móti og nánast ekkert af gráþröstum, líklega aðeins tveir. Annað óvenjulegt er það að engar álftir sáust hér í vetur og hefur það ekki skeð í mörg ár að þær hafi ekki verið á þessu svæði yfir veturinn en þær eru nú farnar að koma aftur. Æðarfuglinn hefur verið samur við sig og fjöldi hans í vetur svipaður og verið hefur og stórir hópar komnir á höfnina. Fyrsti skúmurinn kom 19.febrúar sem er níu dögum fyrr en í fyrra.

Árlegu Fuglahlaupi, sem er talning fuglategunda á landinu, lauk 28. febrúar. Tíu fuglaáhugamenn tóku þátt í hlaupinu og var Björn Arnarson sigurvegari með 83 fuglategundir og annar í röðinni var Brynjúlfur Brynjólfsson með 77 fuglategundir. Björn var einnig sigurvegari fuglahlaupsins í fyrra..

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica