Mars
Trjárækt
Trjárækt
Trjárækt (úr myndasafni)

21.03.2005 Mars

Námskeið sniðið fyrir garð- og sumarhúsaeigendur

Trjáræktarnámskeið verður haldið í Nýheimum á Höfn sunnudaginn 3. apríl næstkomandi. Námskeið þetta er haldið að tilstuðlan Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu og er einkum sniðið fyrir garð- og sumarhúsaeigendur. Þar verður fjallað um tegundaval, undirbúning, aðferðir við gróðursetningu og umhirðu svo fátt eitt sé nefnt. Námskeiðsgjald er kr. 2000 og er kaffi innifalið, félagar í Skógræktarfélaginu greiða kr. 1000. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Einar Gunnarsson, skógfræðingur og starfsmaður Skógræktarfélags Íslands.
Þetta er mjög gott og gagnlegt námskeið fyrir þá sem ætla að fara að gera eitt og annað í görðum sínum í sumar segir Rannveig Einarsdóttir svæðisstjóri Suðurskóga. Þetta er góður tími til að setjast niður og fara yfir það sem á að gera fyrir sumarið, skipuleggja það sem þarf að breyta og bæta við og oft er hægt að komast hjá óþarfa tilflutningi í görðum og mikilli vinnu ef skipulagningin er vel skoðuð áður en byrjað er á framkvæmdum.

Rannveig segir að námskeið sem þetta sé ekki bara það sem leiðbeinendur kenna heldur geta þátttakendur borið saman bækur sínar og miðlað sínum fróðleik og þegið frá öðrum.
Ef viðrar eftir spá veðurfræðinganna um að hlý veðrátta sé framundan ráðleggur Rannveig þeim garðeigendum sem þurfa að klippa tré í görðum sínum að gera það sem fyrst því nú sé besti tíminn til þeirra verka.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica