Mars
Steik_i_bodi_Bjorgunarfelagsins
Steik_i_bodi_Bjorgunarfelagsins
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

18.03.2005 Mars

Þorraferð Ferðaklúbbsins 4x4 og Björgunarfélags Hornafjarðar

Félagar í ferðaklúbburinn 4x4 Hornafjarðardeild héldu í sína í árlegu Þorrablótsferð fjölskyldunnar ásamt félögum í Björgunarfélagi Hornafjarðar um miðjan síðasta mánuð. Ferðinni var haldið í Snæfellsskála sem er í eigu Ferðafélags Fljótsdalshéraðs. Farið var í tveimur hópum og lagt af stað á föstudegi, fyrri hópurinn lagði af stað kl.14.30 og sá seinni um kl. 18.00 og fór sá hópur sem leið lá eftir þjóðvegi inn á fljótsdalsheiði og upp að skála. Fyrri hópurinn fór út af vegi á Öxi og upp í gegnum Bjarnarhýði, yfir svokölluð Hraun að Jökulsá á Fljótsdal og yfir hana á haldi skammt ofan við vaðið við Eyjabakkafoss. Farið var austur- og norður fyrir Snæfell eftir vegi og svo sameinuðust hóparnir á afleggjaranum upp að skálanum og hjálpuðust við að koma hver öðrum yfir smá krapaelgi á veginum og þurftu sumir sverari drátt en aðrir.

Þegar í skálann var komið tóku vaskir björgunarsveitarmenn sig til og grilluðu úrbeinuð læri á línuna sem vakti mikla lukku. Alls voru það 29 manns yfir fermingu og 6 börn á 11 bílum sem lögðu af stað á frá skálanum á laugardeginum og var stefnan tekin á Egilssel með viðkomu í íshellinum í Eyjabakkajökli sem skartaði sínu fegursta . Íshellirinn hefur hopað um tugi og hundruð metra inn á jökulinn á undanförnum árum að sögn kunnugra. Þá var farið um upptök vatnasviðs eyjabakka að mestu á haldi og yfir í Egilssel, skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs og þar var snætt og ungir sem aldnir renndu sér á ruslapokum,slöngum og Stiga-sleðum í brekkunum þar. Þar voru svo Tröllakrókar skoðaðir áður en haldið var til baka með viðkomu í Goðahnjúkaskála, húsi Jöklarannsóknafélags Íslands og í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs í Geldingafelli. Þaðan var svo haldið sem leið lá heim í Snæfellsskála og voru sumir farskjótarnir heldur léttir á sér síðasta spölinn að skálanum þar sem þorrakræsingarnar biðu.

Þorranum var svo blótað um kvöldið sem best mátti vera og fólk fór mett og ánægt til hvílu. Á sunnudagsmorgni var haldið af stað heim í einmuna blíðu og var haldið svipaða leið til baka og fyrri hópurinn kom á föstudeginum nema hvað farið var upp á Þrándarjökul og yfir á Sunnutind þar sem útsýnið var ótrúlega gott og gaman að horfa niður í Álftafjörðinn. Gott hádegishlé var svo tekið fyrir neðan jökulinn og mikið rennt á sleðum og slöngum. Komið var niður á Öxi svipaða leið og gekk ferðin í heild sinni mjög vel og veðrið mjög gott og þá sérstaklega á sunnudeginum. Það kom að mestu í hlut Þorkels formanns að leiða hópinn um svæðið enda um ómælda reynslu og þekkingu af ferðamennsku og svæðinu að ræða hjá honum, að öðrum ólöstuðum sem að skipulagningu þessarar ferðar komu og þökkum við öllum sem þátt tóku i þessari ferð fyrir ánægjulega samveru.

Fyrir hönd Ferðaklúbbsins 4x4 Hornafjarðardeild
Garðar Héðinsson

Sjá myndasafn.

 
Einnig verður myndasafnið sýnt á SkjáVarpi laugardagskvöld 19.mars frá kl. 20 til 23

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica