Mars
Hafnarkirkja skráning
Hafnarkirkja skráning
Sigþór Guðmundsson og Örn "Brói" Arnarson við skráningarstörf

17.03.2005 Mars

Skráning Hafnarkirkjugarðs á gardur.is

Hafnarkirkja fréttir

Nú er í gangi mikið átak í að skrá alla kirkjugarða á Íslandi inn á vefsíðuna gardur.is. Undanfarið hefur verið gerð gangskör að því að skrá legstaði í Hafnarkirkjugarði og hefur Sigþór Guðmundsson einkum haft veg og vanda af því en Brói verið honum innan handar. En það er fleira í fréttum sem snertir kirkjugarð Hafnarkirkju. Í garðinum eru fyrirhugaðar nokkuð miklar framkvæmdir.

Ákveðið hefur verið að endurnýja sáluhliðið, gera göngustíga á helstu gönguleiðum innan garðsins og síðast en ekki síst stendur til að reisa þjónustuhús fyrir kirkjugarðinn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica