Mars
Menningarsamningur
Menningarsamningur
Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Soffía Lárusdóttir formaður SSA að undirrita samninginn.

17.03.2005 Mars

Nýr menningarsamningur undirritaður

Undirritun menningarsamnings á Breiðdalsvík s.l. þriðjudag tryggir Menningarmiðstöð Hornafjarðar 3 m.kr. til reksturs á ári. Þetta er mikilvægur samningur fyrir okkur hér og eflir allt samstarf og menningu á Austurlandi segir Hjalti Þór Vignisson forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Með samningnum er búið að tryggja 3 m.kr. á ári til reksturs, það er það sem kemur beint til Hornafjarðar síðan eru 17 m.kr. á ári sem eru eyrnamerktar sem stofnframlag til menningarmála á Austurlandi öllu og er þeim peningum óráðstafað. Þegar fyrri samningur var gerður fóru m.a. þessir peningar til að endurgera Mánagarð og Sindrabæ sem nú er verið að ljúka við. Einnig er í þessari heildartölu 20 m.kr. sem fara til Menningarráðs Austurlands til þess að úthluta styrkjum til einstakra verkefna, t.d. fékk Þórbergssetur 1,5 mkr. styrk í fyrra.

Hjalti Þór segir að Gísli Sverrir Árnason fyrrverandi forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, hafi haft forgöngu um þessi mál og að hann hafi fylgt þessum málum með menningarstyrkina eftir.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirritaði samninginn f.h. ríkisins, en Soffía Lárusdóttir formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi fyrir hönd sveitarfélaganna. Samningurinn felur í sér samstarf ríkis og allra 13 sveitarfélaganna á Austurlandi um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu.
Er þetta í annað sinn sem gengið er til slíks samnings, en ávinningur fyrri samnings er ótvíræður fyrir landsfjórðunginn og samfélagið í heild og ríkir mikil ánægja með samstarfið. Þær fjárveitingar sem til þessa samstarfs hafa runnið á undanförnum árum hafa gert það að verkum að ný atvinnutækifæri hafa skapast í landsfjórðungnum.

Gildistími hins nýja samnings er til ársloka 2007. Samningurinn hefur tekið nokkrum breytingum frá fyrri samningi. Í fyrsta lagi er samgönguráðuneyti nú beinn aðili að samningnum ásamt menntamálaráðuneyti f.h. stjórnvalda og þannig leitast við að efla menningartengda ferðaþjónustu. Í annan stað leggja sveitarfélögin fram fé til sameiginlegra verkefna með því að vinna að því að auka ráðstöfunarfé Menningarráðs Austurlands hvort heldur er með framlögum frá einkaaðilum eða með eigin framlögum. Skal við það miðað að árið 2005 nemi framlag sveitarfélaganna a.m.k. 10% af þeirri heildarfjárhæð sem veitt er til verkefnastyrkja, 17,5% árið 2006 og 25% árið 2007. Þá skulu sveitarfélögin greiða að lágmarki þriðjung kostnaðar vegna starfsemi Menningarráðsins árið 2006 og helming kostnaðar árið 2007. Einnig er kveðið á um það í samningnum að sveitarfélögin greiði mótframlag til menningarmiðstöðvanna á Austurlandi.
Framlög ríkisins til samningsins verða 36 m.kr. á árinu 2005, 37 m.kr. árið 2006 og 38 m.kr. árið 2007.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica