Mars
Feitur
Feitur
Offita er vandamál sem gott er að fræðast um og vita hvernig best er að verjast henni

16.03.2005 Mars

Búast má við góðum og frískandi fyrirlestri

Sporthöllin stendur fyrir fyrirlestri í Pakkhúsinu í kvöld og er fyrirlesturinn eitt af mörgu sem Sporthöllin býður upp á til hvatningar til að stunda líkamsrækt og borða hollan mat. Sporthöllin hefur fengið Sölvi Fannar líkamsræktarþjálfara frá fyrirtækinu Heilsuráðgjöf til að koma hingað á Höfn og flytja fyrirlesturinn. Ein af einkunnarorðum Sölva Fannars eru að góður Heilsuráðgjafi kennir ekki bara að meta góða líkamsrækt heldur kennir hann iðkandanum að meta líkama sinn með því að stunda líkamsrækt. Búast má við góðum og frískandi fyrirlestri sem skilur eftir sig gullkorn og nauðsynlega fróðleiksmola hjá áhorfendum.

Fyrirlesturinn byrjar kl.20 í Pakkhúsinu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica