Harmoníkuhátíð á Víkinni
Næstu helgi þ.e. á föstudagskvöldið 18. mars n.k. mun Harmoníkufélag Hornafjarðar standa fyrir sinni árlegu harmoníkuhátíð og dansleik að henni lokinni á veitingastaðnum Víkinni. Þar munu að sjálfsögðu gömlu dansarnir duna fram eftir nóttu. Heiðursgestur harmoníkufélagsins í ár verður Jóna Einarsdóttir úr Reykjavík . Jóna er snjall harmonikkuleikari og m.a. er hún einstaklega dugleg að leika fyrir vistmenn á Hrafnistu og hún er Hornfirðingum að góðu kunn fyrir tónlistarstörf hér heima. Jóna mun leika á harmoníku núna á hátíðinni og einnig munu félagar úr harmoníkufélaginu taka lagið. Þetta er í 11. skipti sem félagið stendur fyrir harmoníkuhátíð og hefur hún verið mjög vel sótt í gegnum tíðina.
Félagar í Harmonikkufélagi Hornafjarðar eru þrjátíu þar af tíu konur. Félagsstarfsemi er mikil, komið er saman einu sinni í viku og tekið í nikkurnar einnig er spilað við ýmis tækifæri t.d á afmælishátíð Skeiðarárbrúar sl.sumar, spilað fyrir fólkið á Skjólgarði og hjúkrunarheimilinu o.m fl. Harmonikkufélagið stefnir á að taka þátt í landsmóti harmonikkufélaga sem að þessu sinni verður haldið á Neskaupsstað í júlí í sumar. Landsmót eru haldin á þriggja ára fresti.
Hátíðin á Víkinni er öllum opin og ættu þeir sem hafa gaman af harmoníkutónlist og gömlu dönsunum ekki að láta happ úr hendi sleppa og mæta í nýpússuðu skónum á Víkina á föstudagskvöldið n.k..





Skrifa athugasemd