Tuttugasta sinn sem góuhóf er haldið í Hofgarði
Góuhóf Öræfinga var haldið í Hofgarði laugardaginn 5.mars og var vel sótt. Einhverjir komust þó ekki vegna veðurs þó ekki óveðurs heldur þess gagnstæða og ástæðan var að bátar voru á sjó og mikil vinna. Sigrún Sigurgeirsdóttir, ein þeirra sem voru í góunefnd sagði að hófið hefði tekist mjög vel og fólk skemmt sér afskaplega vel. Við erum einstaklega heppin með, að þetta fólk sem kemur á góuhóf hingað, sumt um langan veg, það kemur með svo jákvæðu hugarfari allir ætla að skemmta sér og eiga ánægjulega kvöldstund, við heyrum aldrei neina kvörtun um að þetta eða hitt hefði ekki átt að vera svona heldur einhvern vegin öðruvísi eða að eitthvað vantaði. Það voru allir svo ánægðir og nutu þess sem var í boði. Að venju voru fluttir stuttir bragir um sveitungana, annáll, söngur o.f.
Fyrsta klukkutímann sá veislustjórinn Hermann frá Heiði í Mýrdal um að skemmta gestum og þá tók góunefndin við. Veisluborðið og maturinn hjá þeim bræðrum Benedikt og Andra var eins og best varð á kosið og þegar dans hófst var gólfið þéttskipað allan tíman sagði Sigrún.
Þetta var í tuttugasta sinn sem góuhóf er haldið í Hofgarði. Áður fyrr sá kvenfélagið um góuhófin og var þá með kaffiveitingar. Þegar Hofgarður kom til sögunnar voru skipaðar nefndir til að sjá um góuhófin og þá farið að hafa mat í stað kaffiveitinga.





Skrifa athugasemd