Mars
Minnismerki á Skeiðarársandi (úr myndasafni)
Minnismerki á Skeiðarársandi (úr myndasafni)

12.03.2005 Mars

Smá hlaup hefur verið í Skeiðará

Um miðja vikuna var smá hlaup í Skeiðará að skögn Ragnars Frank þjóðgarðsvarðar og eru það eftirstöðvar eftir gosið úr Grímsvötnum í nóvember sl. Hiti hefur verið í berginu og orðið bráðnun í jöklinum og vatn safnast í Grímsvötn sem nú er að koma fram. Ekki er um mikið vatn að ræða en Skeiðará hefur verið mjög vatnslítil undanfarið, aðeins rennsli í vesturkvíslinni. Hér í Öræfum er búið að vera stillt veður í lengri tíma, vorlegt og svo mikil kyrrð yfir öllu segir Ragnar og eitthvað hefur verið um að erlendir ferðamenn hafi komið í þjóðgarðinn í vetur en þar er ekki opin þjónustustöð yfir veturinn.

Í vetur voru auglýst tvö störf í tengslum við stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs og rennur umsóknarfrestur út 21. mars. Einhverjar umsóknir hafa borist.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica