Safnið vaxið ár frá ári og í dag á hann um 4000 merkta kveikjara
Fjöldi fólks safnar einhverju sérstöku og margir eiga hin merkilegustu söfn. Ungur maður hér á Höfn á stórkostlega flott kveikjara- og frímerkjasafn. Það er Örn Þór Björnsson á Júllatúni 5 sem safnað hefur safnað þessum hlutum frá því hann var smá gutti. Mamma hans hafði haldið til haga nokkrum kveikjurum sem Örn Þór fékk en fyrsti kveikjarinn sem hann safnaði sjálfur var forláta Zippo kveikjari, einn þessara sem eru með lífstíðarábyrgð. Síðan hefur safnið vaxið ár frá ári og í dag á hann um 4000 merkta kveikjara, enginn er með sömu merkingu. Fyrir nokkru gaf Hörður vinur hans í Birkifelli í Nesjum honum safnið sitt sem þá stórjók safnið sem fyrir var. Kveikjararnir eru merktir fyrirtækjum, stofnunum, stöðum og einstaklingum út um allan heim.
Einnig eru margir merktir fyrirtækjum sem aldrei komust lengra en að fá nafn og gera auglýsingagripi. Einn sá merkilegasti og sá sem Örn Þór segist halda mest uppá er kveikjari merktur Michael Schumaker (kappaksturshetjan), en af honum voru aðeins gerð 3 stykki.
Frímerkjasafnið er líka merkilegt og mikið að vöxtum og það er eins með það og kveikjarana, það er víða að úr heiminum. Safnið hans Arnar Þórs verður til sýnis í Gömlubúð á safnadögum um páskana og er full ástæða til að hvetja fólk til að skoða þetta myndarlega safn. Þegar Örn Þór er spurður um hvert sé hans mesta áhugamál er svarið ákveðið; það eru bílar, sportbílar.
Annar efnilegur safnari er á Júllatúni 5, Jóhann Klemens bróðir Arnar Þórs. Hann safnar fuglum og kortum. Kortin, sem eru um 500 setur hann í albúm, allt haft í röð og reglu. Jóhann sem er átta ára segist vera búinn að safna myndum og kortum frá því hann var fimm ára. Hann hefur mikinn áhuga á fuglum og stefnir á að safna styttum af sem flestum fuglum í heiminum. Jóhann verður einnig með safnið sitt á safnadögunum í Gömlu búð um páskana.





Skrifa athugasemd