Stofnun Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands
Mánudaginn 14. mars 2005 verður Fuglaathugunarstöð Suðausturlands formlega stofnuð. Athöfnin fer fram í fyrirlestrarsal Nýheima á Höfn og hefst
kl. 14:00. Allir velkomnir. Að undirbúningi stofnunar Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands komu, Félag fuglaáhugamanna Hornafirði, Háskólasetrið á Hornafirði, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Sveitarfélagið Hornafjörður, Frumkvöðlasetur Austurlands og Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu.
Undirbúningur hefur staðið s.l. tvö ár og hefur verið unnið að því að afla fjár til reksturs stöðvarinnar auk þess að kanna rekstur sambærilegra stöðva á Norðurlöndunum. Bæði ríkið og sveitarfélagið Hornafjörður hafa lagt fé til Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands. Markmiðið er að um verði að ræða a.m.k. eitt stöðugildi við stöðina til að byrja með.
Fuglaathugunarstöð Suðausturlands mun byggja á yfir 60 ára rannsóknum Hálfdánar Björnssonar frá Kvískerjum og þeim mikla áhuga sem er á fuglum á svæðinu.
Starfsemi stöðvarinnar verður fyrst og fremst að merkja fugla og fylgjast með komu og fartímum farfugla, vöktun ákveðinna svæða, talningu fugla, vinna að varpútbreiðslukortum fyrir svæðið og ýmislegt fleira. Starfsemin verður einnig nátengd öllum skólastigum á svæðinu og ferðaþjónustunni.
Nú þegar hafa verið lögð drög að samningi milli stöðvarinnar og Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu um verkefni í náttúrfræði og hýsingu á vefnum fuglar.is einnig hafa farið fram viðræður við grunnskólana á Höfn um verkefni tengd fuglum.
Nú þegar kemur töluverður fjöldi erlendra ferðamanna eingöngu til fuglaskoðunar hingað til lands. Eitt af markmiðunum er að fá þessa ferðamenn utan háannatíma, fuglaáhugamenn eru áhugaverður markhópur til að lengja ferðamannatímann enda miklu meira að sjá af fuglum á vorin og haustin á svæðinu. Suðausturland er mikilvægt fyrir farfugla á fartímum og mikið sést af flækingsfuglum á svæðinu.





Skrifa athugasemd