Mars
Gjöf til RKÍ
Gjöf til RKÍ
Friðbjörg Helga Bjarkadóttir og Ragnar Magnús Þorseinsson (@ÞT)

10.03.2005 Mars

Gáfu ágóða af tombólu til styrktar börnum á flóðasvæðunum

Í vikunni komu þau Friðbjörg Helga Bjarkadóttir og Ragnar Magnús Þorseinsson til Hornafjarðardeildar RKÍ með 895 kr sem þau höfðu safnað á tombólu og gáfu það Rauða krossinum til styrktar börnum á flóðasvæðunum í Asíu. Það er ánægjulegt að vita til þess hve margir Hornfirðingar eru reiðubúnir að leggja bágstöddum lið. Síðasta laugardag 5. mars var opið hús hjá Rauða krossinum á Höfn. Þrátt fyrir gott veður kíktu nokkrir í heimsókn og mikið af fatnaði barst í hús.

Á aðalfundi Hornafjarðardeildar RKÍ sem verður í byrjun næsta mánaðar kemur gestur sem segir frá hjálparstarfi sem hann hefur tekið þátt í á vegum Rauða krossins, bæði á flóðasvæðunum í Asíu sem og öðrum löndum. Aðalfundurinn sem er öllum opinn verður auglýstur þegar nær dregur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica