Hrafnkelssagasaga Freysgoða sýnd í Nýheimum
Stoppleikhópurinn flutti leikritið Hrafnkelssögu Freysgoða í Nýheimum í gær fyrir nemendur Framhaldsskólans. Leikendur voru tveir, Hornfirðingurinn Sigurþór Heimisson (Gíslasonar) og Eggert Kaber. Þetta var 49. sýning okkar á þessu verki, sagði Sigurþór, við erum búnir að fara bæði hér um Suðurland og víða um Austurland og allstaðar fengið mjög góðar undirtektir. Það er gaman að sýna þetta leikverk, þetta er nánast Hrafnkelssaga Freysgoða eins og hún leggur sig. Hrafnkell heitir því að drepa hvern þann mann sem fer á bak Freyfaxa, hestinum hans án hans leyfis. Smali brýtur þessi bönn hans og Hrafnkell verður að standa við heit sín og drepa smalann, út af þessu spinnast svo málaferli og mikil átök. Sýningin tók 45 mín.
Sigurþór segir að mjög gaman sé að leika fyrir þessa áhorfendur í 8.-9.-10. bekk og eins í Framhaldsskólunum. Markmið þessara sýninga er að kynna og sýna íslenskum ungmennum, íslendingasögurnar og sagnaarf þjóðarinnar í nýju ljósi. Þetta er fyrsta leikhlutverk Sigurþórs með Stopphópnum sem í haust hefur starfað í 10 ár.
Hann á von á að verða með í uppfærslu á leikriti eftir Árna Íbsen sem væntanlega verður tekið fyrir í haust.




Skrifa athugasemd