Hnúfubak rak á land á Svínafellsfjöru
Fyrir rúmri viku rak hval á land á Svínafellsfjöru í Öræfum um 8 km vestan Ingólfshöfða. Þetta er Hnúfubakur 12 m langur, stór og mikil skepna segir Sigurður í Hofsnesi. Hvalreki hefur löngum talist til tíðinda og margir hafa gaman af að skoða þessar miklu skepnur þegar þær rekur á fjörur. Algengt var hér áður fyrr að hvali ræki á fjörur á þessum slóðum. Hvalurinn er kærkominn fengur fyrir máfana sem fara í hræið meðan sandurinn ekki hylur það. Ef einhverjir hafa hug á að skoða hvalinn þá er greiðfært á jeppa að honum en betra að fá leiðbeiningar um leiðina hjá landeigendum. Starfsmenn frá Hafrannsóknarstofnun eru væntanlegir á fjörurnar til að skoða hvalinn í dag.
Fyrir þrem árum kom hnúfubakur inn fyrir Hornafjarðarós og strandaði á sandeyri í firðinum og þrátt fyrir miklar tilraunir við að koma skepnunni út á sjó aftur tókst það ekki og drapst hann þar. Nánast allt af þeim hval var hægt að nýta og beinagrindin fór í Hvalasafnið á Húsavík.




Skrifa athugasemd