Smyrillinn steypt sér af miklum krafti á fuglabúrið
Fjölskyldan á Bjarnarhól 8 á Höfn fékk óvænta heimsókn í garðinn sinn á mánudaginn þegar smyrill gerði sig heimakominn þar. Páfagaukurinn á heimilinu var í búri sínu úti í garði og naut veðurblíðunnar og átti sér einskis ills von þegar smyrillinn skellti sér á búrið hans og ætlaði að hremma hann. Börnin sem voru að leika sér í garðinum ruku inn og sögðu að ugla væri að slást við páfagaukinn. Ég fór strax út en sá ekki neitt en krakkarnir sögðust hafa rekið hana burt svo ég fór inn aftur segir Heimir Karlsson. Eftir smá stund koma þau aftur og segja að uglan sé komin aftur svo ég fór út og eftir smá athugun sé ég smyril uppi á húsinu og bara rétt í því heyri ég hávaða í páfagauknum og þá hafði smyrillinn steypt sér af miklum krafti á búrið og hamaðist þar af mikilli grimmd án frekari árangurs. Páfagaukurinn sýndi ótrúlega rósemi, virtist hálf skelkaður fyrst en reyndi svo að kroppa í klær smyrilsins.
Þessi óvenjulega viðureign stóð í eina þrjá tíma segir Heimir, ég reyndi að gefa smyrlinum hamborgara en hann rétt nartaði í hann og snéri sér svo aftur að búrinu, hann vildi bara ná í þessa girnilegu bráð sem í því var. Heimir hafði samband við Björn Arnarson fuglaáhugamann sem kom þegar á staðinn og handsömuðu þeir smyrilinn í háf. Björn sagði fuglinn horaðan og trúlega veikan og tók hann heim með sér til aðhlynningar. Ekki tókst þó að hressa fuglinn við og dó hann í gærkvöldi. Björn sagði að þetta væri ungur fugl eða kvenfugl, ekki væri auðvelt að greina þar á milli.




Skrifa athugasemd