Hönnunarsamkeppni ,,Ullin á nýrri öld”.
Áburðarverksmiðjan efnir nú til hönnunarsamkeppni í samvinnu við Ístex og Félag sauðfjárbænda um gerð peysu úr íslenskri ull þar sem þema peysunnar á að vera hið nýja merki Áburðarverksmiðjunnar. Pétur Pétursson hjá Áburðarverksmiðjunni segist hafa fengið rosalega góðar undirtektir um allt land og á von á góðri þátttöku og því er bara að hvetja Hornfirskar prjónakonur(og menn) til að taka fram prjónana og taka þátt í keppninni. Skilyrðin sem sett eru er að peysan sé úr íslenskri ull, sama hvort notað er band eða lopi, sauðalitir eða litaðskiptir ekki máli en hafa verður þetta nýja merki í peysunni.
Vegleg verðlaun verða í boði, fyrstu verðlaun eru 70 þúsund, önnur 40 þús. og 30 þús. fyrir þriðju verðlaun. Að auki er glaðningur bæði frá Ístex og Félagi sauðfjárbænda.
Verðlaun fyrir frumlegustu peysuna er flugmiði fyrir 2 á áætlunarleiðum Iceland Express.
Skilafrestur er til 5.apríl fyrir kl.16.00 og skulu peysurnar vera merktar með dulnefni en nafn, heimilisfang og símanúmer fylgja í lokuðu umslagi auðkenndu dulnefninu.
Dagana 7. og 8. apríl verður sýning á öllum peysum sem sendar hafa verið í keppnina í anddyri Hótel Sögu í Reykjavík.Verðlaunaafhending verður síðan á árshátíð sauðfjárbænda að kvöldi 8. apríl á Hótel Sögu og gat Pétur þess að þar yrði Guðni Ágústsson ráðherra meðal gesta og verði einhver peysan nógu stór (ca XL) á hann verður hann fenginn til að fara í hana og myndaður í bak og fyrir.
Markmiðið með þessari samkeppni segir Pétur vera, að stuðla að íslenskum prjónaiðnaði, listiðnaði og hönnun og skemmtilegt tilefni þess að verið er að taka í notkun nýtt merki fyrir þetta 52 ára fyrirtæki, Áburðarverksmiðjuna.




Skrifa athugasemd