Mars
Helga Erlendsdóttir
Helga Erlendsdóttir
Helga Erlendsdóttir (Ljósblá) Árnanesi 5 í Nesjum

07.03.2005 Mars

Málverkasýning Helgu í Café Milano

Helga Erlendsdóttir (Ljósblá) Árnanesi 5 í Nesjum opnar málverkasýningu mánudaginn 7. mars á Café Mílanó í Skeifunni í Reykjavík. Á sýningunni eru olíumálverk og vatnslitamyndir. Myndefnið er víða að en aðallega á það rætur í ríki Vatnajökuls. Þetta er 10. einkasýning Helgu en hún hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýningum. Auk þessa eru myndir hennar til sýnis og sölu öll sumur í veitingahúsinu Þorpinu í Árnanesi. Helga lauk námi við myndlistarbraut FB 1992, sótti námskeið í Myndlistaskóla Reykjavíkur auk einkatíma hjá nokkrum listamönnum.

Sýning Helgu verður í Café Milano til 10.apríl nk. og er opin alla virka daga frá kl. 9-23.30, laugardaga kl. 9-18 og sunnudaga 13-18.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica