Vilja byggja upp öflugan vetrarferðamannaiðnað með norðurljósaskoðun
Síðast liðið haust var skipaður hópur til að vinna að nýtingu norðurljósa til eflingar vetrarferðamennsku á Íslandi. Ísafjörður, Hornafjörður, Mývatn, Vopnafjörður og Kópavogur eiga aðild að hópnum og er fulltrúi okkar Hornfirðinga Hjalti Þór Vignisson forstöðumaður menningarmiðstöðvar. Markmið hópsins er að búa til og markaðssetja vandaða vöru til að selja ferðamönnum yfir vetrarmánuðina. Flest það sem þarf til að setja saman ævintýralega vetrarupplifun er þegar til staðar á öllum viðkomandi stöðum. Norðurljósin eru skrautfjöður sem fullkomnar pakkann. Norðurljósaskoðun verður fléttað saman við aðra afþreyingu sem fyrir er á stöðunum. Í gær var haldin fundur í Nýheimum þar sem Jóhann Ísberg og Sigurður Þorsteinsson kynntu verkefnið, stöðu þess og næstu skref. Einnig fjallaði Yngvi Ragnar Kristjánsson um möguleika til eflingar vetrarferðamennsku á Íslandi og sagði fundargestum frá uppbyggingu ferðaþjónustunnar við Mývatn.
Markmið verkefnisins er að byggja upp öflugan vetrarferðamannaiðnað á Íslandi þar sem norðurljósaskoðun verður áherslupunktur og mikill áhugi erlendis á þeim nýttur til markaðssetningar. Ný kvikmyndatækni, þróuð á Íslandi, sem hvergi er til annars staðar í heiminum verður notuð í þessu sambandi og því er nýnæmið í efninu ótvírætt enda gríðarlegur áhugi á því erlendis. Verkefnið felur einnig í sér víðtækt samráð við hagsmunaaðila, s.s. flugfélög og ferðaþjónustuaðila.
Markmiðin eru að nýta ónýttar fjárfestingar í ferðamannaiðnaði betur en nú er gert utan háannatíma og þar með stuðla að betri arðsemi í ferðaþjónustu. Ætlunin er að verkefnið verði farið að skila verulegum árangri árið 2010 þegar virkni sólar verður næst í hámarki. Sá árangur sem næst í sköpun atvinnutækifæra mun dreifast á þau sveitarfélög sem að verkefninu standa. Í Kanada hefur verið mikil atvinnusköpun vegna norðurljósaskoðunar og á níu árum sköpuðust þar 178 störf við þá starfsemi og margir þessara starfsmanna voru konur. Til þessara starfa þarf vel menntað fólk og þar gæti skapast tækifæri fyrir ungt fólk sem lokið hefur námi að fá starf úti á landi og þá á það ekki síður við um kvenfólkið
Áhugi á norðurljósum hefur stóraukist allsstaðar í heiminum og ekki síst í Japan og er mikið horft til markaðssetningar þar en Japanir hafa mikið farið til Kanada til að skoða norðurljósin. Jóhann Ísberg er ekki í vafa um að Ísland sé einn allra besti staðurinn í heiminum til að skoða norðurljósin, þessi stórfenglegu náttúrufyrirbrigði. Margir halda að norðurljósin komi ekki nema við stöku skilyrði, svo er þó ekki því sólvindurinn er stöðugur og þær hlöðnu agnir sem mynda norðurljósin berast allan ársins hring inn í segulsvið jarðar og því eru norðurljósin alltaf til staðar, bara misjafnlega sterk og aðstæður eru misjafnar og því sjást þau ekki alltaf jafn vel og ekki margir dagar á ári sem ekkert sést af þeim.
Þeir sem að Norðurljósaverkefninu standa eru bjartsýnir á að hægt verði að byggja upp vetrarferðaþjónustu og ef þannig viðrar, að hin leiftrandi norðurljós sjáist ekki er ótal margt annað til að sýna og upplifa í okkar fagra umhverfi, fyrir ferðahópana.





Skrifa athugasemd