Mars

Ragnar Frank, þjóðgarðsvörður

16 umsækjendur um stöður sérfræðinga við Þjóðgarðinn í Skaftafelli - 31.03.2005 Mars

Umsóknarfrestur um tvær starfsstöður við Þjóðgarðinn í Skaftafelli er runninn út og voru 16 umsækjendur um þær. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður sagði að það kæmi í ljós í lok næstu viku hverjir yrðu ráðnir. Umsóknir bárust frá heimamönnum og víða af landinu einnig frá útlöndum. Þetta eru störf sérfræðinga í stöður við þjóðgarðinn á starfsstöðum á Höfn og Kirkjubæjarklaustri. Skilyrði sem við settum fyrir umsóknum í þessi störf ,segir Ragnar, er að viðkomandi sé með einhver jarðfræðipróf, hafi unnið við landvörslu, einnig mikilvægi þess að ná góðum samskiptum við fólk..Við erum að leita að fólki með þekkingu á jöklum og því sem tengist landmótum jökla þannig að viðkomandi geti líka eitthvað gert í tengslum við jöklasýninguna. Þjóðgarðurinn er jökulhettan á þessu svæði þannig að það má segja að ekkert land sé utan jökulhettu innan svæðis frá Öræfajökli og austur úr svo jökullinn mun ekki hafa neinn skaða af þeirri umferð sem verður í jaðri hans. Lesa meira
 
Farfuglar

Lóan kemur í stórum hópum og farfuglarnir streyma hingað - 30.03.2005 Mars

Lóan er komin, ekki bara ein og ein heldur í stórum hópum sama er að segja um skógarþrestina og eitthvað er komið af hrossagaukum. Álftum og gæsum fjölgar daglega á svæðinu ásamt flestum þessum venjulegu farfuglum. Björn Arnarson segir að farfuglarnir séu að koma á svipuðum tíma og verið hefur, eina óvenjulega sé hvað lóan kemur í stórum hópum t.d. sá hann 300 lóur í hóp um sl. helgi. Bleshæna hefur verið í höfninni undanfarna daga og virðist kunna vel við sig nálægt æðarfuglinum. Bleshænan er kolsvört með hvítt nef, hún er ekki óalgeng hér á landi og hefur einstaka sinnum verpt hér. Helsta verkefni nýstofnaðs fuglaseturs er að sjá um merkingu og skráningu fugla svo hægt sé að fylgjast með þeim. Ekki hefur verið gengið frá ráðningu starfsmanns við fuglasetrið og á meðan sinna þeir Björn og Brynjúlfur merkingum og öðru sem gera þarf. |nl| Lesa meira
 
Söfnin um páskahelgina

Metaðsókn miðað við seinni ár - 30.03.2005 Mars

Mjög góð aðsókn var að söfnum hér á Höfn um páskahelgina. Björn Arnarson safnvörður sagði að um 230 manns hefði komið í Gömlubúð þar sem nokkrir safnarar sýndu safngripi sína auk alls þess sem byggðasafninu tilheyrir. Þetta er metaðsókn miðað við seinni ár en fyrir nokkrum árum komst tala gesta í 250. Fjöldi fólks lagði leið sína í Pakkhúsið á glerlistasýningu Svönu og Gutta og þar var einnig sýning á málverkum eftir Sigurð Einarsson alþýðumálara ættuðum af Mýrunum. Margir lögðu leið sína í Vöruhúsið þar sem sýndar voru myndir frá Finnlandi ásamt teikningum af Jöklasýningunni þ.e. hvernig hún kemur til með að verða. Lesa meira
 
Ásdís Ólafsdóttir

Ásdís Ólafsdóttir nýr útibússtjóri Lyfju-Höfn - 29.03.2005 Mars

Hafnarapótek heyrir brátt sögunni til og við tekur Lyfja-Höfn, útibú frá Egilstöðum. Lyfja er búin að taka við rekstri apóteksins og fer formleg nafnabreyting fram 8.april nk. Útibústjóri er Ásdís Ólafsdóttir og er hún tekin við stjórn apóteksins. Þorgils Baldursson apóteksstjóri og eigandi Hafnarapóteks er fluttur með fjölskyldu sína til Reykjavíkur þar sem hann mun starfa hjá Lyfju. Ásdís er Hornfirðingur, dóttir Önnu Birnu og Óla Einars, lyfjatæknir að menntun og hefur starfað hjá Lyfju í níu ár, síðast stuttan tíma á Egilsstöðum. Hún segir yndislegt að vera komin heim aftur eftir langa fjarveru og alveg meiriháttar notalegt hvað taki allir taki vel á móti henni og fjölskyldunni, Kristjáni Guðnasyni og þrem börnum. Lesa meira
 
Grjóthrun í Þvottárskriðum

Stórhættulegur vegur og vaxandi umferð um skriðurnar - 29.03.2005 Mars

Mikið grjóthrun hefur komið á veginn í Hvalnes- og Þvottárskriðum í vetur og skapað mikla hættu fyrir þá sem þar fara um. Talsvert tjón hefur orðið á ökutækjum í skriðunum, t.d. kom grjóthrina á bíl Vegagerðarinnar þegar verið var að hreinsa veginn og sagði Reynir Gunnarsson að það hefði verið tjón uppá 250 þús.kr. Hann segir mjög brýnt að gera eitthvað raunhæft í vegalagningu þarna áður en stórslys verður. Mikil hætta er á að bíll sem væri utarlega á veginum, eins og oft er þegar krækja þarf fyrir grjót á veginum, lenti út af yrði hann fyrir stórgrýti ofan úr skriðunni. Þegar fréttamaður vefsins fór um skriðurnar fyrir stuttu voru steinarnir sem sjást á myndinni á veginum í Þvottárskriðum og smærri steinar veltandi niður á veginn. Þó hreinsað væri af veginum þann dag var komið mikið af steinum um kvöldið en ekki eins stórir. Lesa meira
 
Challander 604

Ætla að koma aftur á einkaþotu til að skoða norðurljósin - 28.03.2005 Mars

Lítil einkaþota af gerðinni af gerðinni Challander 604 í lúxusútfærslu lenti á Hornafjarðarflugvelli í morgun og hafði þar viðdvöl meðan eigendur hennar, ensk hjón með þrjú börn ásamt íslenskum fararstjóra, skoðuðu sig um og fóru að Jökulsárlóni. Guðbrandur Jóhannsson fór með fjölskylduna að lóninu og sagði hann að það hefði verið mikill áhugi hjá þeim að fræðast um allt og mikið spurt um James Bond-kvikmyndunina. Ekki var hægt að fara í siglingu um lónið því þar hefur verið um meters þykkur ís en byrjað að flæða vatn yfir hann og ísinn er fljótur að fara. núna þegar Jökulsá er búin að ryðja sig eftir langa uppistöðu. Það var óskaplega fallegt við lónið í blíðunni í dag sagði Guðbrandur og fólkið greinilega ánægt með það sem það sá. Ekki var hægt að fara á Skálafellsjökul þar sem ekki er búið að opna veginn uppeftir. Lesa meira
 
Lömbin í Lækjarhúsum

Lömb fædd á Páskadag - 28.03.2005 Mars

Að morgni páskadags þegar Gulli í Lækjarhúsum kom í fjárhúsin var ærin Bílda borin tveim lömbum,hrút og gimbur. Það eru þá að byrja að skila sér í heiminn lömbin sem úr flakkaranum Hnetti frá Lækjarhúsum en hann stakk af úr girðingunni sinn snemma í haust og greinilega hitt á nokkrar tilkippilegar ær á ferðalaginu um Borgarhafnarlönd. Lesa meira
 
Óveður í Öræfum

Niðurgrafinn pottur tókst á loft og hafnaði í sundlauginni - 26.03.2005 Mars

Mikið tjón varð á Svínafelli í Öræfum í ofsaveðri sem gekk þar yfir í síðustu viku. Í íbúðarhúsi Ólafs og Pálínu brotnaði ytra glerið í níu rúðum og við sundlaugina fauk skjólgirðing og annar heiti potturinn sem þar var innan girðingarinnar, hálf niðurgrafinn í jörðu, tókst á loft og hafnaði ofaní sundlauginni. Ólafur sagði að ekki væri búið að kanna hvort skemmdir hefðu orðið á sundlauginni en potturinn væri ónýtur, allur brotinn. Eitthvað brotnaði af rúðum í smáhýsunum sem eru stutt frá sundlauginni. Einnig brotnuðu fram og afturrúður í traktor í Austurbænum og þakplötur fuku af útihúsi. Lesa meira
 

Hópferðabíll valt á hliðina skammt frá Sólheimatungu - 24.03.2005 Mars

Í gær lenti hópferðabíll Einars Sigurðssonar í Hofsnesi útaf veginum og út í skurð skammt frá Sólheimatungu, þar sem bíllinn valt á hliðina. Í bílnum voru auk Einars 11 svissneskir fjalla-skíðamenn og sluppu allir ómeiddir, aðeins með skrámur og smáhnykki. Ástæðan fyrir þessu óhappi var að hvellsprakk á hægra framhjóli bílsins og þykir mikil mildi að ekki fór verr, en bíllinn er mjög mikið skemmdur. Einar sagði að rúta með skólakrakka hafi komið þarna að og séð þegar bíllinn fór útaf og hafi leiðsögumaðurinn og bílstjóri rútunnar komið og aðstoðað hann og hóp hans á allan hátt og verið alveg frábær og svo róleg yfir þessu öllu. Við vorum drifin inn í rútuna og ekið heim að Sólheimatungu þar sem við gistum í nótt. Lögregla og læknir komu á staðinn og hlúðu vel að mannskapnum en ekki þurfti aðstoð sjúkrabíla. Lesa meira
 
Snædísi íshokki þjálfari

Snædís keppir með íslenska landsliðinu á HM - 23.03.2005 Mars

Fyrrverandi þjálfari íshokkídeildarinnar á Hornafirði, Snædís Laufey Bjarnadóttir, er í íslenska landsliðinu sem heldur í keppnisferð á HM til Nýja-Sjálands 29.mars nk. Snædís hefur átt heima á Höfn í nokkur ár og sl. sumar þjálfaði hún strákana á Höfn í íshokkí. Það var rosalega gaman að þjálfa þessa stráka, segir Snædís, því þeir tóku svo miklum framförum yfir sumarið og voru virkilega áhugasamir, en nú hefur enginn þjálfari verið hjá þeim sem er mjög slæmt en vonandi rætist úr því. Snædís segist hafa byrjað í íshokkí fyrir fimm árum þegar hún var í fyrsta bekk framhaldsskóla Akureyri, þá stofnaði hún ásamt vinkonu sinni íshokkídeild kvenna á Akureyri. Hún hefur síðan sinnt íshokkíinu af miklum krafti og vinnur núna að stofnun íshokkí keppnisflokks í Reykjavík. Lesa meira
 
Gutti tengdó og Svana

Gutti er mín stoð og stytta í þessu öllu - 23.03.2005 Mars

Óvenjuleg og sérstök listsýning verður í Pakkhúsinu á Höfn um páskana. Hér er um að ræða sýningu Svanhvítar Kristjánsdóttur glerlistakonu á nytjahlutum unnum úr gleri t.d. matardiskasett og glerdiskar og föt í öllum stærðum og gerðum einnig glermyndir. Svanhvít og eiginmaður hennar Guttormur Rafnkelsson (Nesjamaður í húð og hár) eru Hornfirðingum að góðu kunn en þau fluttu til Reykjavíkur fyrir fimm árum, eftir 30 ára búskap í Nesjum. Svanhvít fór á glerlistanámskeið fyrir rúmu ári og þar með var hún búin að finna eitthvað sem alveg passaði fyrir hana að fást við. Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt og það er hægt að gera svo margt fallegt úr glerinu segir Svanhvít. Við erum búin að koma okkur upp galleríi í bílskúrnum og þar er ég með glerlistanámskeið, mest sótt af konum. Gutti er mín stoð og stytta í þessu öllu, hefur smíðað svo til öll mótin og er bara alveg frábær að taka þátt í þessu með mér. Lesa meira
 
Undirbúningur í eldhúsinu fyrir veisluna @kokkur.is

Styrktarveislu 2005 hefur verið aflýst - 23.03.2005 Mars

Undirbúningshópur styrktarveislunnar 2005, tilkynnir hér með að veislunni er aflýst. Ástæðan er mjög dræm miðasala en einungis höfðu selst fjórir miðar um miðjan dag í gær. Markmið styrktarveislunnar var að safna fé sem óskipt átti að renna til málefna fatlaðra. Mikið af fólki hefur lagt gríðarlega vinnu í að undirbúa styrktarveisluna, í að verða hálft ár og eru þetta því mikil vonbrigði. Allir gáfu vinnu sína og allur hagnaður hefði runnið til málefnisins óskiptur eins og fyrr segir. Veislan á Höfn í fyrra tókst mjög vel og seldust allir miðar. Selfoss er mun stærra pláss og því áttum við ekki von á öðru en að vel myndi ganga, en enginn miði seldist þar. Baráttan um athygli fjölmiðla er erfið. Í langflestum tilfellum kom ekki svo mikið sem svar við erindi okkar og lítill áhugi virtist vera á að fjalla um framtak sem þetta. En það eru ótrúlegustu hlutir sem rata inn á borð fjölmiðla. Mátti fræðast heilmikið um rottur sem gæludýr í sjónvarpinu eitt kvöldið en styrktarveislan fékk ekki inni. Lesa meira
 
Stuttnefja og langvia

Gulfætt stuttnefja í þorskanet hjá Sigurði Ólafssyni SF44 - 22.03.2005 Mars

Í síðustu viku kom gulfætt stuttnefja í þorskanet hjá Sigurði Ólafssyni SF44 á miðunum út af Suðursveit. Björn Arnarson fuglaáhugamaður segir að þessi guli litur á fótum hennar sé mjög sjaldgæfur ef ekki einsdæmi og segir venjulegan lit vera eins og á langvíunni á meðfylgjandi mynd. Hópar skógarþrasta kom til Hornafjarðar um helgina og var vel líflegt í Einarslundi þar sem þeir spókuðu sig um í vorblíðunni. Björn segir mikið minna hafi verið af þröstum hér á Höfn í vetur en verið hefur í mörg ár, með minnsta móti og nánast ekkert af gráþröstum, líklega aðeins tveir. Annað óvenjulegt er það að engar álftir sáust hér í vetur og hefur það ekki skeð í mörg ár að þær hafi ekki verið á þessu svæði yfir veturinn en þær eru nú farnar að koma aftur. Æðarfuglinn hefur verið samur við sig og fjöldi hans í vetur svipaður og verið hefur og stórir hópar komnir á höfnina. Fyrsti skúmurinn kom 19.febrúar sem er níu dögum fyrr en í fyrra. Lesa meira
 
Í Þröng í Suðursveit @Rannveig Einarsdóttir

Ferðaáætlun Ferðafélags A-Skaft. komin út - 22.03.2005 Mars

Starfsemi Ferðafélags Austur-Skaftafellssýslu er að fara af stað og er ferðaáætlun fyrir sumarið komin út. Fyrsta ferðin átti að vera sl. laugardag í Múlárgljúfur við Kvísker undir leiðsögn Hálfdáns á Kvískerjum. Hætta varð við þá ferð vegna krapaelgs í gljúfrinu og taldi Hálfdán ekki ráðlegt að fara þangað. Ekki er ákveðið hvort farið verður seinna í Múlárgljúfur en þar er mikil náttúrufegurð. Næsta ferð er 2. apríl í Endalausadal í Lóni. Allar ferðir í auglýsingabæklingi ferðafélagsins eru merktar með einum til fjórum skóm sem gefur til kynna hversu erfið hver ferð er, tímalengd og landslag. Einn skór merkir; gengið á sléttlendi, léttur bakpoki meðferðis, litlar eða engar ár að fara yfir, flestum fært, ferðin tekur 4-6 klst. Tveir skór; miðlungslangar dagleiðir 5-7 klst. oft í hæðóttu landi, bakpoki talsvert þungur, engar eða auðveldar ár, þátttakendur þurfa að vera í nokkurri þjálfun. Lesa meira
 
Trjárækt

Námskeið sniðið fyrir garð- og sumarhúsaeigendur - 21.03.2005 Mars

Trjáræktarnámskeið verður haldið í Nýheimum á Höfn sunnudaginn 3. apríl næstkomandi. Námskeið þetta er haldið að tilstuðlan Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu og er einkum sniðið fyrir garð- og sumarhúsaeigendur. Þar verður fjallað um tegundaval, undirbúning, aðferðir við gróðursetningu og umhirðu svo fátt eitt sé nefnt. Námskeiðsgjald er kr. 2000 og er kaffi innifalið, félagar í Skógræktarfélaginu greiða kr. 1000. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Einar Gunnarsson, skógfræðingur og starfsmaður Skógræktarfélags Íslands. |nl|Þetta er mjög gott og gagnlegt námskeið fyrir þá sem ætla að fara að gera eitt og annað í görðum sínum í sumar segir Rannveig Einarsdóttir svæðisstjóri Suðurskóga. Þetta er góður tími til að setjast niður og fara yfir það sem á að gera fyrir sumarið, skipuleggja það sem þarf að breyta og bæta við og oft er hægt að komast hjá óþarfa tilflutningi í görðum og mikilli vinnu ef skipulagningin er vel skoðuð áður en byrjað er á framkvæmdum. Lesa meira
 
Steik_i_bodi_Bjorgunarfelagsins

Þorraferð Ferðaklúbbsins 4x4 og Björgunarfélags Hornafjarðar - 18.03.2005 Mars

Félagar í ferðaklúbburinn 4x4 Hornafjarðardeild héldu í sína í árlegu Þorrablótsferð fjölskyldunnar ásamt félögum í Björgunarfélagi Hornafjarðar um miðjan síðasta mánuð. Ferðinni var haldið í Snæfellsskála sem er í eigu Ferðafélags Fljótsdalshéraðs. Farið var í tveimur hópum og lagt af stað á föstudegi, fyrri hópurinn lagði af stað kl.14.30 og sá seinni um kl. 18.00 og fór sá hópur sem leið lá eftir þjóðvegi inn á fljótsdalsheiði og upp að skála. Fyrri hópurinn fór út af vegi á Öxi og upp í gegnum Bjarnarhýði, yfir svokölluð Hraun að Jökulsá á Fljótsdal og yfir hana á haldi skammt ofan við vaðið við Eyjabakkafoss. Farið var austur- og norður fyrir Snæfell eftir vegi og svo sameinuðust hóparnir á afleggjaranum upp að skálanum og hjálpuðust við að koma hver öðrum yfir smá krapaelgi á veginum og þurftu sumir sverari drátt en aðrir. Lesa meira
 
Hafnarkirkja skráning

Skráning Hafnarkirkjugarðs á gardur.is - 17.03.2005 Mars

Nú er í gangi mikið átak í að skrá alla kirkjugarða á Íslandi inn á vefsíðuna gardur.is. Undanfarið hefur verið gerð gangskör að því að skrá legstaði í Hafnarkirkjugarði og hefur Sigþór Guðmundsson einkum haft veg og vanda af því en Brói verið honum innan handar. En það er fleira í fréttum sem snertir kirkjugarð Hafnarkirkju. Í garðinum eru fyrirhugaðar nokkuð miklar framkvæmdir. Lesa meira
 
Menningarsamningur

Nýr menningarsamningur undirritaður - 17.03.2005 Mars

Undirritun menningarsamnings á Breiðdalsvík s.l. þriðjudag tryggir Menningarmiðstöð Hornafjarðar 3 m.kr. til reksturs á ári. Þetta er mikilvægur samningur fyrir okkur hér og eflir allt samstarf og menningu á Austurlandi segir Hjalti Þór Vignisson forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Með samningnum er búið að tryggja 3 m.kr. á ári til reksturs, það er það sem kemur beint til Hornafjarðar síðan eru 17 m.kr. á ári sem eru eyrnamerktar sem stofnframlag til menningarmála á Austurlandi öllu og er þeim peningum óráðstafað. Þegar fyrri samningur var gerður fóru m.a. þessir peningar til að endurgera Mánagarð og Sindrabæ sem nú er verið að ljúka við. Einnig er í þessari heildartölu 20 m.kr. sem fara til Menningarráðs Austurlands til þess að úthluta styrkjum til einstakra verkefna, t.d. fékk Þórbergssetur 1,5 mkr. styrk í fyrra. Lesa meira
 
Upplýsingasvæðið í Skaftafelli (myndasafn)

Brúin yfir Skaftafellsá lokuð til hádegis fyrir stóra bíla - 17.03.2005 Mars

Vegna viðgerðar á brúnni yfir Skaftafellsá, vestan Freysness, er hún lokuð umferð stórra bíla frá kl. fimm í morgun og til hádegis í dag. Brúarvinnuflokkur frá Vík ætlar að lagfæra brúna og skipta um bolta í samsetningum á bitum sem eitthvað eru farnir að gefa sig. Jón Bjarnason hjá Vegagerðinni segir að ekki hafi skapast neitt hættuástand við brúna, þetta er bara viðhald. Vegagerðarmenn hafa þurft að vera í til staðar í Hvalnes og Þvottárskriðum undanfarið vegna mikils grjóthruns. Jón segir að þegar hvöss norðan átt sé, frost á nóttunni og sól á daginn sé mikið grjót hrun í skriðunum og varasamt bílum. Lesa meira
 
Halldór Ágrímsson

Forsætisráðherra fundar á Höfn - 16.03.2005 Mars

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins er nú staddur hér á Höfn. Hans fyrsta verk eftir að hann kom í morgun var að hitta svokallaðan Byggðarher sem er áhugamannahópur um byggðar- og atvinnumál í sveitarfélaginu. Að sögn Gísla Más Vilhjálmssonar, eins þátttakanda í hópnum, var fundurinn með ráðherra mjög gagnlegur og segir hann hópinn þakklátan ráðherra fyrir að gefa sér tíma til að ræða við hópinn. Forsætisráðherra hitti síðan bæjarstjóra og bæjarstjórn í hádeginu. Lesa meira
 
Feitur

Búast má við góðum og frískandi fyrirlestri - 16.03.2005 Mars

Sporthöllin stendur fyrir fyrirlestri í Pakkhúsinu í kvöld og er fyrirlesturinn eitt af mörgu sem Sporthöllin býður upp á til hvatningar til að stunda líkamsrækt og borða hollan mat. Sporthöllin hefur fengið Sölvi Fannar líkamsræktarþjálfara frá fyrirtækinu Heilsuráðgjöf til að koma hingað á Höfn og flytja fyrirlesturinn. Ein af einkunnarorðum Sölva Fannars eru að góður Heilsuráðgjafi kennir ekki bara að meta góða líkamsrækt heldur kennir hann iðkandanum að meta líkama sinn með því að stunda líkamsrækt. Búast má við góðum og frískandi fyrirlestri sem skilur eftir sig gullkorn og nauðsynlega fróðleiksmola hjá áhorfendum. Lesa meira
 
Fermingarbörn 2005

Fermingar nálgast - 16.03.2005 Mars

Ekki er ólíklegt að foreldrar víða séu önnum kafnir við að undirbúa fermingar enda nálgast þær óðfluga. Fjölmennustu fermingardagarnir eru pálmasunnudagur, skírdagur og hvítasunnudagur. Lætur nærri að 40 börn séu fermd á þessum dögum í Bjarnanesprestakalli. Fermingarfræðslan hefur gengið vel í vetur að sögn sr. Fjölnis, en börnin hafa að jafnaði mætt einu sinni í viku í fermingarfræðslutíma eftir skóla. Í kennslunni hefur verið stuðst við bókina Líf með Jesú og fræðst hefur verið um undirstöðuatriði kristinnar trúar en einnig hefur verið spjallað um heima og geima. Þorsteinn Haukur, fulltrúi Tollgæslunnar, kom í heimsókn til fermingarbarna og fjallaði um skaðsemi fíkniefna og var leitarhundurinn Bassi með í för. Lesa meira
 
Jón Sölvi Ólafsson og Albert

Styrktarveislan haldin í annað sinn, nú á Selfossi - 15.03.2005 Mars

Þann 26. mars næstkomandi verður haldin glæsileg styrktarveisla með það að markmiði að safna fé í þágu fatlaðra. Í fyrra var haldin samskonar veisla og var það þá í fyrsta skipti sem slíkt var gert. Nú í ár verður leikurinn endurtekinn enda tókst veislan, sem haldin var á Höfn í Hornafirði, með eindæmum vel. Í ár verður veislan á Selfossi, nánar tiltekið Hótel Selfossi. Það er mjög mikilvægt að þetta framtak fái athygli því málefnið er gott. Um er að ræða glæsilegan sjö rétta kvöldverð sem er matreiddur og framreiddur af fagfólki á eftir fordrykk og smáréttum. Verðinu er stillt mjög í hóf, aðeins 5.900 krónur á mann. Meðan snætt er mun hljóma ljúf píanótónlist, leikin af Guðlaugu Hestnes. Veislustjórn verður í höndum Svans Ingvarssonar, formanns Sjálfsbjargar á Suðurlandi, en hann leggur styrktarveislunni lið í ár og hefur unnið mikið með undirbúningshópnum. Lesa meira
 
Félagar í Harmoníkufélagi Hornafjarðar í Pakkhúsinu

Harmoníkuhátíð á Víkinni - 14.03.2005 Mars

Næstu helgi þ.e. á föstudagskvöldið 18. mars n.k. mun Harmoníkufélag Hornafjarðar standa fyrir sinni árlegu harmoníkuhátíð og dansleik að henni lokinni á veitingastaðnum Víkinni. Þar munu að sjálfsögðu gömlu dansarnir duna fram eftir nóttu. Heiðursgestur harmoníkufélagsins í ár verður Jóna Einarsdóttir úr Reykjavík . Jóna er snjall harmonikkuleikari og m.a. er hún einstaklega dugleg að leika fyrir vistmenn á Hrafnistu og hún er Hornfirðingum að góðu kunn fyrir tónlistarstörf hér heima. Jóna mun leika á harmoníku núna á hátíðinni og einnig munu félagar úr harmoníkufélaginu taka lagið. Þetta er í 11. skipti sem félagið stendur fyrir harmoníkuhátíð og hefur hún verið mjög vel sótt í gegnum tíðina. Lesa meira
 
Góuhóf 2005 @SMS

Tuttugasta sinn sem góuhóf er haldið í Hofgarði - 14.03.2005 Mars

Góuhóf Öræfinga var haldið í Hofgarði laugardaginn 5.mars og var vel sótt. Einhverjir komust þó ekki vegna veðurs þó ekki óveðurs heldur þess gagnstæða og ástæðan var að bátar voru á sjó og mikil vinna. Sigrún Sigurgeirsdóttir, ein þeirra sem voru í góunefnd sagði að hófið hefði tekist mjög vel og fólk skemmt sér afskaplega vel. Við erum einstaklega heppin með, að þetta fólk sem kemur á góuhóf hingað, sumt um langan veg, það kemur með svo jákvæðu hugarfari allir ætla að skemmta sér og eiga ánægjulega kvöldstund, við heyrum aldrei neina kvörtun um að þetta eða hitt hefði ekki átt að vera svona heldur einhvern vegin öðruvísi eða að eitthvað vantaði. Það voru allir svo ánægðir og nutu þess sem var í boði. Að venju voru fluttir stuttir bragir um sveitungana, annáll, söngur o.f. |nl| Lesa meira
 
Minnismerki á Skeiðarársandi (úr myndasafni)

Smá hlaup hefur verið í Skeiðará - 12.03.2005 Mars

Um miðja vikuna var smá hlaup í Skeiðará að skögn Ragnars Frank þjóðgarðsvarðar og eru það eftirstöðvar eftir gosið úr Grímsvötnum í nóvember sl. Hiti hefur verið í berginu og orðið bráðnun í jöklinum og vatn safnast í Grímsvötn sem nú er að koma fram. Ekki er um mikið vatn að ræða en Skeiðará hefur verið mjög vatnslítil undanfarið, aðeins rennsli í vesturkvíslinni. Hér í Öræfum er búið að vera stillt veður í lengri tíma, vorlegt og svo mikil kyrrð yfir öllu segir Ragnar og eitthvað hefur verið um að erlendir ferðamenn hafi komið í þjóðgarðinn í vetur en þar er ekki opin þjónustustöð yfir veturinn. Lesa meira
 
Örn Þór og Jóhann

Safnið vaxið ár frá ári og í dag á hann um 4000 merkta kveikjara - 11.03.2005 Mars

Fjöldi fólks safnar einhverju sérstöku og margir eiga hin merkilegustu söfn. Ungur maður hér á Höfn á stórkostlega flott kveikjara- og frímerkjasafn. Það er Örn Þór Björnsson á Júllatúni 5 sem safnað hefur safnað þessum hlutum frá því hann var smá gutti. Mamma hans hafði haldið til haga nokkrum kveikjurum sem Örn Þór fékk en fyrsti kveikjarinn sem hann “safnaði sjálfur” var forláta Zippo kveikjari, einn þessara sem eru með lífstíðarábyrgð. Síðan hefur safnið vaxið ár frá ári og í dag á hann um 4000 merkta kveikjara, enginn er með sömu merkingu. Fyrir nokkru gaf Hörður vinur hans í Birkifelli í Nesjum honum safnið sitt sem þá stórjók safnið sem fyrir var. Kveikjararnir eru merktir fyrirtækjum, stofnunum,stöðum og einstaklingum út um allan heim. Lesa meira
 
Stemning á Humarhátíð 2003

Kvennakór Hornafjarðar mun taka þátt í humarhátíðarnefnd - 11.03.2005 Kvennakór Hornafjarðar

Humarhátíðarnefnd hefur nú tekið til starfa og er hún skipuð félögum úr Björgunarsveitinni, Sindra og Kvennakór Hornafjarðar. Kvennakórinn er nú að taka þátt í humarhátíðarnefnd í fyrsta sinn. Hátíðin verður að venju haldin fyrstu helgina í júlí eins og verið hefur síðustu ár og er það von nefndarmanna að sem flestir ef ekki allir sjái sér fært að vera heima þessa helgi og taka á móti sem flestum gestum,því eins og verið hefur undanfarin ár eru menn úr öllum landshornum farnir að setja Humarhátíð inná ferðadagatalið hjá sér. Nefndin vill einnig virkja sem flesta til að fá nýjar og ferskar hugmyndir um það sem ætti að vera í boði og eins koma með athugasemdir um það sem betur mætti fara. Lesa meira
 
Einari Hálfdánarsyni afhent þakkarskjalið

Stofnun Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands - 10.03.2005 Mars

Mánudaginn 14. mars 2005 verður Fuglaathugunarstöð Suðausturlands formlega stofnuð. Athöfnin fer fram í fyrirlestrarsal Nýheima á Höfn og hefst |nl|kl. 14:00. Allir velkomnir. Að undirbúningi stofnunar Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands komu, Félag fuglaáhugamanna Hornafirði, Háskólasetrið á Hornafirði, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Sveitarfélagið Hornafjörður, Frumkvöðlasetur Austurlands og Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu. |nl|Undirbúningur hefur staðið s.l. tvö ár og hefur verið unnið að því að afla fjár til reksturs stöðvarinnar auk þess að kanna rekstur sambærilegra stöðva á Norðurlöndunum. Bæði ríkið og sveitarfélagið Hornafjörður hafa lagt fé til Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands. Markmiðið er að um verði að ræða a.m.k. eitt stöðugildi við stöðina til að byrja með. Lesa meira
 
Gjöf til RKÍ

Gáfu ágóða af tombólu til styrktar börnum á flóðasvæðunum - 10.03.2005 Mars

Í vikunni komu þau Friðbjörg Helga Bjarkadóttir og Ragnar Magnús Þorseinsson til Hornafjarðardeildar RKÍ með 895 kr sem þau höfðu safnað á tombólu og gáfu það Rauða krossinum til styrktar börnum á flóðasvæðunum í Asíu. Það er ánægjulegt að vita til þess hve margir Hornfirðingar eru reiðubúnir að leggja bágstöddum lið. Síðasta laugardag 5. mars var opið hús hjá Rauða krossinum á Höfn. Þrátt fyrir gott veður kíktu nokkrir í heimsókn og mikið af fatnaði barst í hús. Lesa meira
 
Hrafnkelssagasaga Freysgoða í Nýheimum

Hrafnkelssagasaga Freysgoða sýnd í Nýheimum - 10.03.2005 Mars

Stoppleikhópurinn flutti leikritið Hrafnkelssögu Freysgoða í Nýheimum í gær fyrir nemendur Framhaldsskólans. Leikendur voru tveir, Hornfirðingurinn Sigurþór Heimisson (Gíslasonar) og Eggert Kaber. Þetta var 49. sýning okkar á þessu verki, sagði Sigurþór, við erum búnir að fara bæði hér um Suðurland og víða um Austurland og allstaðar fengið mjög góðar undirtektir. Það er gaman að sýna þetta leikverk, þetta er nánast Hrafnkelssaga Freysgoða eins og hún leggur sig. Hrafnkell heitir því að drepa hvern þann mann sem fer á bak Freyfaxa, hestinum hans án hans leyfis. Smali brýtur þessi bönn hans og Hrafnkell verður að standa við heit sín og drepa smalann, út af þessu spinnast svo málaferli og mikil átök. Sýningin tók 45 mín. Lesa meira
 
Hvalreki

Hnúfubak rak á land á Svínafellsfjöru - 09.03.2005 Mars

Fyrir rúmri viku rak hval á land á Svínafellsfjöru í Öræfum um 8 km vestan Ingólfshöfða. Þetta er Hnúfubakur 12 m langur, stór og mikil skepna segir Sigurður í Hofsnesi. Hvalreki hefur löngum talist til tíðinda og margir hafa gaman af að skoða þessar miklu skepnur þegar þær rekur á fjörur. Algengt var hér áður fyrr að hvali ræki á fjörur á þessum slóðum. Hvalurinn er kærkominn fengur fyrir máfana sem fara í hræið meðan sandurinn ekki hylur það. Ef einhverjir hafa hug á að skoða hvalinn þá er greiðfært á jeppa að honum en betra að fá leiðbeiningar um leiðina hjá landeigendum. Starfsmenn frá Hafrannsóknarstofnun eru væntanlegir á fjörurnar til að skoða hvalinn í dag. Lesa meira
 
Smyrill

Smyrillinn steypt sér af miklum krafti á fuglabúrið - 09.03.2005 Mars

Fjölskyldan á Bjarnarhól 8 á Höfn fékk óvænta heimsókn í garðinn sinn á mánudaginn þegar smyrill gerði sig heimakominn þar. Páfagaukurinn á heimilinu var í búri sínu úti í garði og naut veðurblíðunnar og átti sér einskis ills von þegar smyrillinn skellti sér á búrið hans og ætlaði að hremma hann. Börnin sem voru að leika sér í garðinum ruku inn og sögðu að ugla væri að slást við páfagaukinn. Ég fór strax út en sá ekki neitt en krakkarnir sögðust hafa rekið hana burt svo ég fór inn aftur segir Heimir Karlsson. Eftir smá stund koma þau aftur og segja að uglan sé komin aftur svo ég fór út og eftir smá athugun sé ég smyril uppi á húsinu og bara rétt í því heyri ég hávaða í páfagauknum og þá hafði smyrillinn steypt sér af miklum krafti á búrið og hamaðist þar af mikilli grimmd án frekari árangurs. Páfagaukurinn sýndi ótrúlega rósemi, virtist hálf skelkaður fyrst en reyndi svo að kroppa í klær smyrilsins. Lesa meira
 
Ullin á nýrri öld

Hönnunarsamkeppni ,,Ullin á nýrri öld”. - 08.03.2005 Mars

Áburðarverksmiðjan efnir nú til hönnunarsamkeppni í samvinnu við Ístex og Félag sauðfjárbænda um gerð peysu úr íslenskri ull þar sem þema peysunnar á að vera hið nýja merki Áburðarverksmiðjunnar. Pétur Pétursson hjá Áburðarverksmiðjunni segist hafa fengið rosalega góðar undirtektir um allt land og á von á góðri þátttöku og því er bara að hvetja Hornfirskar prjónakonur(og menn) til að taka fram prjónana og taka þátt í keppninni. Skilyrðin sem sett eru er að peysan sé úr íslenskri ull, sama hvort notað er band eða lopi, sauðalitir eða litaðskiptir ekki máli en hafa verður þetta nýja merki í peysunni. Lesa meira
 
Helga Erlendsdóttir

Málverkasýning Helgu í Café Milano - 07.03.2005 Mars

Helga Erlendsdóttir (Ljósblá) Árnanesi 5 í Nesjum opnar málverkasýningu mánudaginn 7. mars á Café Mílanó í Skeifunni í Reykjavík. Á sýningunni eru olíumálverk og vatnslitamyndir. Myndefnið er víða að en aðallega á það rætur í ríki Vatnajökuls. Þetta er 10. einkasýning Helgu en hún hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýningum. Auk þessa eru myndir hennar til sýnis og sölu öll sumur í veitingahúsinu Þorpinu í Árnanesi. Helga lauk námi við myndlistarbraut FB 1992, sótti námskeið í Myndlistaskóla Reykjavíkur auk einkatíma hjá nokkrum listamönnum. Lesa meira
 
Svínhólabruni

Sinueldur barst í útihús í Svínhólum - 05.03.2005 Mars

Eldur barst í gömul útihús á Svínhólum í Lóni í dag þegar bóndinn Ásgeir Júlíusson, var að brenna sinu á landareign sinni. Að sögn lögreglunnar er vesturendi útihúsanna ónýtur en Slökkviliði Hornafjarðar tókst að verja austur hluta þeirra. Slökkviliðið verður á staðnum fram eftir kvöldi. Húsið hefur verið notað sem skýli fyrir hesta og einnig sem geymsla. Húsið var óvátryggt. Lögreglan segir að með öllu sé óheimilt að brenna sinu nema fá leyfi og tilskilin vottorð yfirvalda til þess, en ekki er vitað hvort það var fyrir hendi í þessu tilfelli. Lesa meira
 
Ási á skautum

Skautadeild Sindra vantar þjálfara - 04.03.2005 Sindra fréttir

Tveir stjórnarfundir voru haldnir í Skautadeildinni á síðasta starfsári og einkenndist starfsemin af miklum ungmennafélagsanda . Sindri Ragnarsson og Ari Þorsteinsson sáu um að æfa félaga deildarinnar í götu hokkí með aðstöðu í íþróttahúsinu. Kjarninn af félagsmönnum samanstóð af 18 – 20 krökkum. Snædís Bjarnadóttir sá um að þjálfa félagsmenn síðastliðið sumar utandyra og var það mikill hvalreki fyrir deildina. Ekki reyndust malbikuðu plön bæjarins nógu vel til útiæfinga þannig að þau fluttu sig aftur inn í íþróttahúsið eftir humarhátíð, ákveðið áhyggjuefni er fyrir deildina að verið er að leggja nýtt gólfefni á íþróttahúsið þannig að væntanlega og eðlilega verða hjólaskautarnir ekki leyfðir á því. Ekki hefur tekist að fá þjálfara til að æfa félagsmenn í haust þannig að skauta íþróttin hefur verið í ákveðnu lágmarki. Skautadeildin auglýsir eftir áhugasömum aðila sem er tilbúinn að vinna með og þjálfa deildina. Góðu fréttirnar eru samt þær að óvenju kalt hefur verið í vetur þannig að töluverðar, almennar og þjálfaralausar skautaæfingar hafa átt sér stað úti í guðsgrænni náttúrunni. Lesa meira
 
Jökulsá í Lóni, sólsetur

Innri friður – Innri styrkur. - 04.03.2005 Mars

Innri friður – innri styrkur er heiti á námskeiði sem haldið verður í Klifabotnum í Lóni helgina 8. -10. apríl og er eingöngu fyrir konur. Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Bergþóra Reynisdóttir geðhjúkrunarfræðingur. Helsta markmið námskeiðsins er: Að byggja upp grunnundirstöðu í sjálfsþekking sjálfseflingu og samskiptahæfni sem leiðir til innra öryggis og tilfinningalegs jafnvægis. Að viðhalda jákvæðum samskiptu og leysa árekstra með lausnarmiðaðri sýn. Áhersla er á jákvæða hugsun, slökun og ,,Lifðu Lífinu Lifandi”. Efla sjálfsvitundina og auka innri styrk - Efla samskiptahæfni - Kynnast mætti fyrirgefningar og kærleikans í samskiptum - Öðlast aukið sjálfstraust til að takast á við lífið á breyttum forsendum - Kynnast áhrifamætti slökunar og njóta lífsins ,,Núna” - Öðlast hugarró og innra jafnvægi Lesa meira
 
Tilbúnar í slaginn

Eitt aðalmarkmið að fá fólk til starfa í stjórnum Sindra. - 03.03.2005 Mars

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Sindra verður haldinn í Hafnarskóla í kvöld samhliða aðalfundi UMF Sindra. Í stjórn knattspyrnudeildarinnar eru þau Gestur Halldórsson, Jóhanna Stígsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson. Annasamt ár er að baki og margt gert bæði í leikjum og starfi. Knattspyrnudeildin réði Gísla Örn Reynisson í fullt starf frá maí til september og var starf hans að sjá um vellina,vinnu við knattspyrnuskólann, leikjanámskeið o.fl. Í skýrslu stjórnar knattspyrnudeildar kemur fram að árið 2004 er 5. árið í röð sem deildin er rekin með hagnaði og er mikið kappsmál að svo verði áfram. Lesa meira
 
Nordurljos_IMG_9430

Vilja byggja upp öflugan vetrarferðamannaiðnað með norðurljósaskoðun - 01.03.2005 Mars

Síðast liðið haust var skipaður hópur til að vinna að nýtingu norðurljósa til eflingar vetrarferðamennsku á Íslandi. Ísafjörður, Hornafjörður, Mývatn, Vopnafjörður og Kópavogur eiga aðild að hópnum og er fulltrúi okkar Hornfirðinga Hjalti Þór Vignisson forstöðumaður menningarmiðstöðvar. Markmið hópsins er að búa til og markaðssetja vandaða vöru til að selja ferðamönnum yfir vetrarmánuðina. Flest það sem þarf til að setja saman ævintýralega vetrarupplifun er þegar til staðar á öllum viðkomandi stöðum. Norðurljósin eru skrautfjöður sem fullkomnar pakkann. Norðurljósaskoðun verður fléttað saman við aðra afþreyingu sem fyrir er á stöðunum. Í gær var haldin fundur í Nýheimum þar sem Jóhann Ísberg og Sigurður Þorsteinsson kynntu verkefnið, stöðu þess og næstu skref. Einnig fjallaði Yngvi Ragnar Kristjánsson um möguleika til eflingar vetrarferðamennsku á Íslandi og sagði fundargestum frá uppbyggingu ferðaþjónustunnar við Mývatn. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica