Starfsemi Ferðafélags Austur-Skaftafellssýslu er að fara af stað og er ferðaáætlun fyrir sumarið komin út. Fyrsta ferðin átti að vera sl. laugardag í Múlárgljúfur við Kvísker undir leiðsögn Hálfdáns á Kvískerjum. Hætta varð við þá ferð vegna krapaelgs í gljúfrinu og taldi Hálfdán ekki ráðlegt að fara þangað. Ekki er ákveðið hvort farið verður seinna í Múlárgljúfur en þar er mikil náttúrufegurð. Næsta ferð er 2. apríl í Endalausadal í Lóni. Allar ferðir í auglýsingabæklingi ferðafélagsins eru merktar með einum til fjórum skóm sem gefur til kynna hversu erfið hver ferð er, tímalengd og landslag. Einn skór merkir; gengið á sléttlendi, léttur bakpoki meðferðis, litlar eða engar ár að fara yfir, flestum fært, ferðin tekur 4-6 klst. Tveir skór; miðlungslangar dagleiðir 5-7 klst. oft í hæðóttu landi, bakpoki talsvert þungur, engar eða auðveldar ár, þátttakendur þurfa að vera í nokkurri þjálfun.
Lesa meira