Ríki Vatnajökuls - Febrúar
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Kynningarfundur á leik- og grunnskólafræðum
      <description>Í dag verður haldinn kynningarfundur í Nýheimum fyrir þá sem hafa áhuga á að stunda nám við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Sérstaklega verður kynnt nám í leiksskólafræðum og grunnskólafræðum. Mikil áhugi er á fjarnámi enda opnist með því möguleikar á að stunda nám sem ella hefði verið mjög erfitt. Kynningin fer fram í Nýheimum í myndfundarveri Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellsýslu. Þeir nemendur sem stunda hér fjarnám hafa aðgang að tölvum, prenturum, faxi og ljósritunarvél ásamt því að geta nýtt sér fundarherbergi einnig býðst þeim aðgangur að bókasafninu og lesaðstöðu FAS. Á Hornafirði eru 35  nemendur skráðir hjá Fræðsluneti Austurlands við ýmsa háskóla, svo sem Háskóla Íslands, Tækniháskólann, Háskólann á Hólum og Kennaraháskólann en þar eru flestir fjarnámsnemendurnir.</description>
Uppbyggjandi námskeið fyrir lífstíð
      <description>Fyrir helgina lauk á Höfn námskeiði í sjálfstyrkingu sem Svæðisvinnumiðlun Austurlands stóð að. Ólöf Guðmundsdóttir hjá Svæðisvinnumiðlun Austurlands, sem stendur fyrir námskeiðinu,  segir þetta námskeið vera hugsað fyrir unga menn í atvinnuleit og vera fyrst og fremst sjálfstyrking, síðan kemur staðan upp þegar einstaklingurinn er í atvinnuleit. Þá förum við yfir hvernig hann getur brugðist við stöðu sinni, hvað hann getur gert við henni sjálfur og hvaða leiðir hann sér út. Farið er yfir, að sækja um vinnu, þjálfa í því að tala við atvinnurekendur og sækja um vinnu, skrifa sína starfsreynsluskrá,  átta sig á stöðunni og vinna á því sem hann getur en ekki á því sem hann ræður ekki við. Svo er líka að fara í atvinnuviðtal, sitja á móti atvinnurekanda og leita að vinnu. Þetta eru bara í raun og veru mjög góðir þættir til framtíðar þó maður geti fengið vinnu núna, þá er gott að hafa reynslu í farteskinu til síðari tíma ef sú staða kæmi upp, segir Ólöf.  Þetta er uppbyggjandi námskeið fyrir lífstíð. Námskeiðið er 25 kennslustundir með námsefni frá Fræðsluneti Austurlands.</description>
Góð mæting á málþingið Atvinnulíf á Norðurslóðum
      <description>Fimmtudaginn 24. febrúar var haldið málþing í Nýheimum á Höfn um atvinnumál á Norðurslóðum. Umfjöllunarefnið var hvernig jaðarbyggðum í Færeyjum, Íslandi og Noregi hefur tekist að laga sig að breyttum atvinnuháttum og hvort að þau vandamál sem Hornfirðingar glíma við séu einkennandi fyrir aðrar norðlægar byggðir eða einsdæmi.   Tilefni málþingsins er útgáfa bókarinnar Innovations in the Nordic Periphery þar sem gert er grein fyrir niðurstöðum samnorrænnar rannsóknar um efnið. Frummælendur á málþinginu voru Ari Þ. Þorsteinsson hjá Frumkvöðlasetri Austurlands, Sigurður Mar Halldórsson hjá Galdri ehf. og Unnur Dís Skaptadóttir, dósent við Háskóla Íslands.  Gísli Sverrir Árnason var fundarstjóri.</description>
Aukning umferðar um hringveginn (nr.1), austan Hafnarvegar
      <description>Umferð ökutækja um hringveginn (nr.1), austan Hafnarvegar ( nr.99) hefur aukist talsvert á síðasta ári samkvæmt umferðartalningu Vegagerðarinnar. Meðalumferð á dag allt árið 2004, voru  420 bílar  (368 árið 2003),  Meðalumferð á dag frá júní til 30.sept 2004. voru 666 bílar  (572 árið 2003 sama tímabil). Meðalumferð á dag í janúar til 31.mars og í desember árið 2004, 229 bílar, (229 bílar árið 2003 ).  Mesti umferðardagur ársins 2004 var 25.07  þá fóru þar 1008 bílar.  ( Mesta umferð 2003 var 23.07, 936 bílar ).  Minnst var umferðin 2004, 7. febrúar en þá voru 58 bílar,  2003 var minnst umferð á gamlaársdag 113 bílar sem fóru hringveginn (nr.1), austan Hafnarvegar.
|nl|</description>
Í dag er sólskin, logn og hitinn síðdegis 7,5 gráður
      <description>Veðurblíðan hér á Hornafirði er búin að vera slík undanfarið að elstu menn muna ekki eftir slíku veðurfari á þessum árstíma. Í dag er sólskin, logn og hitinn síðdegis 7,5°  Þar sem helgin er á næsta leiti hafði vefurinn samband við Þorkel Kolbeins hjá Vökli Stéttarfélagi og var hann spurður um örlofshús félagsins og hvort þau stæðu bara ónotuð yfir veturinn. Þorkell sagði svo ekki vera, þau væru leigð út á veturna. Við eigum tvö hús í Klifabotni í Lóni og sex hús á Einarsstöðum á Héraði og leigjum þau t.d. frá föstudegi fram á mánudag  og er leigan þann tíma kr 6000 svo leigjum  við á virkum dögum  hvort er einn sólarhringur eða fleiri  á kr. 2000 sólarhringinn.</description>
UMF Sindri leitar að myndum frá starfsemi félagsins
      <description>Ungmennafélagið Sindri leitar nú eftir myndum er hugsanlega tengjast á einhvern hátt starfi félagsins í þau rúmu sjötíu ár er liðin eru frá stofnun þess 1. desember 1934. Félagið fer þess á leit við þá sem eiga myndir sem tengjast UMF Sindra að koma þeim til Guðnýjar Svavarsdóttur í Menningarmiðstöð Hornfjarðar en hún hefur tekið að sér að skanna inn myndirnar. Þetta geta verið myndir sem tengjast leiklist, ferðalögum, samkomum, íþróttum og öðru sem tengist starfsemi félagsins síðustu sjötíu árin. Tilgangur með þessari söfnun er að byggja upp safn mynda til lengri tíma séð, sem einnig munu verða notaðar í Sögu Sindra sem stendur til að gefa út.</description>
Flugu 419 ferðir í áætlun til Hornafjarðar árið 2004
      <description>Íslandsflug og Landsflug flugu 419 ferðir í áætlun til Hornafjarðar árið 2004. Landsflug tók við áætlunarfluginu í byrjun okt. Farþegar voru 7.920  og alls var flutt 57.421 kg í frakt á árinu. Önnur flugfélög sem voru með ferðir og leiguflug til Hornafjarðar fluttu 966 farþega. Flugfélag Íslands annast allt sjúkraflug frá Hornafirði sem voru 56 ferðir sl.ár með 87 farþega. Reglubundið leiguflug var frá Hornafirði til Evenes í Noregi frá júlí og út árið 2004. Þetta var leiguflug frá Akureyri sem sá um að flytja starfsmenn Leonhard Níelsen og sönner, sem voru að vinna við göngin í Almannaskarði, þegar skipti voru á starfshópum.</description>
Marteinn í Ártúni og Pálmi á Lækjarbrekku kepptu í ístölti
      <description>Um síðustu helgi var haldið Ístölt Austurlands á Lagarfljóti. Mótið var haldið laugardaginn 19. febrúar á Lagarfljóti í Egilsstaðavík, sem er staðsett á bak við Gistiheimilið á Egilsstöðum. Um sjötíu hross og eitthvað færri knapar mættu til leiks í blíðskaparveðri og hófst keppnin kl. 10:00 um morguninn. Auk heimamanna á Héraði voru mættir knapar víða að landinu m.a. úr Eyjafirði, af Suðurlandi og Reykjavíkursvæðinu. Frá Hornafirði mættu einnig tveir áhugasamir hestamenn til keppni þeir Marteinn Gíslason í Ártúni og Pálmi Guðmundsson á Lækjarbrekku. Þeir félagar fóru með fjóra hesta í kerru til Egilsstaða á föstudeginum og tóku þátt í ístöltskeppninni á laugardeginum með ágætum árangri. Marteinn sýndi Freyju frá Ártúni í flokki unghrossa og Mózart frá Ártúni í áhugamannaflokki. Pálmi keppti á Fálka frá Hólkoti í opnum flokki og Baun frá Kúskerpi í áhugamannaflokki.</description>
Stóra upplestrarkeppnin
      <description>Nemendur í 7. bekk Hafnarskóla hafa tekið þátt í Stóru upplestrarkeppninni í nokkur ár en hún er haldin til að vekja athygli og áhuga á vönduðum upplestri. Hún er skemmtileg tilbreyting í skólastarfinu þar sem nemendur kynnast bókmenntum og ljóðum á annan hátt en dags daglega. Þjálfun í upplestri og framsögn skiptir miklu máli því fátt er skemmtilegra en að hlusta á vel fluttan texta. Keppnin er þrískipt. Fyrst er bekkjarkeppni þar sem 12 nemendur komast áfram. Þeir keppa síðan í skólakeppni sem haldin verður í Nýheimum 7. mars. Þar komast 5 nemendur áfram og taka þeir þátt í lokahátíðinni sem haldin verður á Djúpavogi . Á lokahátíðina koma nemendur frá Grunnskólanum í Hofgarði, Hrollaugsstaðaskóla, Hafnarskóla og Grunnskóla Djúpavogs.</description>
Fjölbreytni og gæði fyrirlestra mikil
      <description>Síðastliðinn laugardag var haldið skólamálaþing í Nýheimum á vegum sveitarfélagsins. Fyrir hádegi var unnið í þremur málstofum þar sem fram komu fulltrúar leikskóla, grunnskóla, tónskóla, framhaldsskóla og foreldra. Eftir hádegi var safnast saman á sal þar sem fram komu þrír gestafyrirlesarar auk heimamanna. Samtals voru fluttir 17 fyrirlestrar á þinginu.</description>
Námsferð 9. bekkjar í Ungmennabúðir
      <description>Nú styttist í námsferð 9. bekkjar Heppuskóla í Ungmennabúðir að Laugum í Sælingsdal.  Lagt verður af stað að morgni sunnudagsins 27. febrúar og dvalið að Laugum fram á föstudag 4. mars.  Ferðin endar með Samfésballi að kvöldi föstudagsins og að því loknu verður brunað beint heim í skjóli nætur.  Ungmennabúðirnar eru reknar af  Ungmennafélagi Íslands og  hafa að aðalmarkmiði að styrkja sjálfstraust nemenda og hjálpa þeim þannig til að taka réttar ákvarðanir í lífinu.  Þarna er verið að leggja áherslu á „tómstundir sem lífsstíl og sem mikilvægan þátt í forvarnarstarfi”, eins og segir á heimasíðu UMFÍ.  Þar sem  verið er að ráðast í afar stórt verkefni var afráðið að sækja um styrki til fyrirtækja í Hornafirði og var það Sparisjóður Hornafjarðar svaraði með myndarlegu framlagi og  kunnum við honum góðar þakkir fyrir. Ennfremur var veittur styrkur úr forvarnarsjóði Bæjarfélags Hornafjarðar.</description>
Fékk á sig vindkviðu í Öræfum, tókst á loft og flaug útaf
      <description>Japanskur ferðamaður  kom til Hafnar í gær, sem venjulega telst ekki til tíðinda, en þessi ferðamaður kom á reiðhjólinu sínu núna um hávetur þegar allra veðra er von.Tomohiko Doi, sem er tuttugu og þriggja ára, lagði af stað frá Reykjavík 9. febrúar, fór fyrst í Laugarvatn og þaðan að Gullfossi og Geysi. Til Víkur í Mýrdal kom hann 13.febrúar, svaf þar í tjaldi sínu og var einnig nótt í tjaldi við Kálfafell, í  hvassviðri og rigningu. Við Kvíá í Öræfum fékk hann feikna vindkviðu á sig og segist hann hreinlega hafa tekist á loft og flogið útaf. Ekki varð honum meint af fluginu og þarna kom “gott fólk” sem hjálpaði honum og fór með hann til baka í Hótel Skaftafell í Freysnesi. Fimmtudagsmorgun hélt Tomohiko aftur á stað og gekk nú allt vel og var næsti áningarstaður við Jökulsárlón þar sem hann svaf um nóttina í tjaldi sínu. Til Hafnar kom hann laust upp úr kl. 17 í gær.</description>
Unnið að gerð forvarnaauglýsingar
      <description>Undanfarnar vikur hafa 8. bekkingar verið að vinna að gerð forvarnaauglýsinga. Þau sjá um að gera handrit, tökur, leik og fleira sem snýr að gerð leikinna auglýsinga. Í morgun stóðu yfir tökur á auglýsingu sem fjallaði um eiturlyf. Með í töku hennar var sjúkrabíll og lögegla sem hefur örugglega vakið athygli bæjarbúa. Markmiðið með gerð þessara forvarnaauglýsinga er að jafningjar, í þessu tilfelli 8. bekkingar, komi skilaboðum til sinna jafningja um að byrja aldrei á að neyta vímuefna og að virða útivistartíma. Unnið er með  ýmsa flokka, svo sem áfengi, tóbak, útivist, eiturlyf, samskipti við foreldra og einelti. Umsjón með verkefninu hafa Árni Pétur Hilmarsson kennari í Heppuskóla og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi. Í fyrra var svipuð forvarnavinna unnin með 8. bekkingum sem fólst í því að þau gerðu forvarnaplaggöt sem vöktu mikla athygli.</description>
Ályktanir frá stjórnarfundi Vökuls Stéttarfélags
      <description>Stjórn Vökuls Stéttarfélags sendi frá sér ályktanir þar sem lýst er áhyggjum af stöðu atvinnumála á Stöðvarfirði, ef svo fer sem fram horfir að frystihúsi staðarins verði lokað með haustinu Stjórnin telur eðlilegt að ákveði Samherji að loka landvinnslunni á Stöðvarfirði þá beri fyrirtækinu að skilja kvóta Stöðvfirðinga eftir þar, svo heimamenn geti áfram skapað sér atvinnu á þeim aflaheimildum sem þeir hafa áunnið staðnum. Stjórnin lýsir eftir félagslegri ábyrgð Samherja í þessu máli.</description>
Tillaga um stofnun fangelsis eða gæsluheimilis fyrir unglinga
      <description>Bæjarráð Hornafjarðar fagnar tillögu frá Jóni Garðari Bjarnasyni um nýsköpun í atvinnumálum á Hornafirði og hefur sent hana til atvinnumálanefndar. Tillaga Jóns Garðars er um að kannað verði möguleiki á stofnun fangelsis eða gæsluheimilis fyrir unglinga sem þurfa í eftirmeðferð þ.e. unglinga sem eru í fangelsi og hafa sýnt og sannað að þeim sé treystandi í lámarks öryggisgæslu. Ég hef verið að fylgjast með fangelsismálaumræðum og held að nú sé svigrúm til koma á einhverju samstarfi segir Jón Garðar, og ég er viss um að Hornafjörður  er vel til þessarar starfsemi fallinn og býr yfir góðum mannafla og húsnæði til að takast á við svona verkefni.</description>
Skemmta með léttu gríni og gamanmálum á Góuhófinu
      <description>Öræfingar halda sitt árlega Góuhóf í Hofgarði þann 5.mars. Undirbúningur er í fullum gangi og að venju er vel til þess vandað. Þetta er tuttugasta góuhófið sem haldið er í Hofgarði og veislustjóri er Hermann Árnason frá Heiði í Mýrdal. Matreiðslan verður í höndum þeirra Andra og Benedikts Jónssona frá Freysnesi sem eru orðlagðir fyrir góða matreiðslu og glæsileg veisluborð. Góu-nefndin ætlar að gera sitt besta og skemmta með léttu gríni og gamanmálum. Það eru allir velkomnir á góuhófið meðan húsrúm leyfir. Brott fluttir Öræfingar hafa verið duglegir að koma á góuhófið hvar sem þeir búa á landinu og fólk kemur allsstaðar úr sýslunni, einnig úr vestur-sýslunni. Að þessu sinni er það hljómsveitin Granít sem spilar fyrir dansi.</description>
Breytingar í yfirstjórn sveitarfélagsins
      <description>Eins og fram hefur komið hér á vefnum lét Gísli Sverrir Árnason af störfum sem forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Hjalti Þór Vignisson verið ráðinn forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar. Nýtt skipurit hefur tekið gildi og í því felast miklar breytingar á þessu starfi. Hjalti Þór var áður framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs í Sveitarfélaginu Hornafirði.  Á fundi bæjarstjórnar þann 22. desember var samþykkt nýtt skipurit fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð sem tók gildi 1. janúar 2005 sem tilraun til eins árs.  Með hinu nýja skipuriti er verið að fækka um eina stjórnunarstöðu í yfirstjórn Sveitarfélagsins.  Breytingin felst í því að verkefni sem áður heyrðu undir framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs var dreift á aðra stjórnendur.</description>
Mikil áhersla á aukna þjónustu í heimabyggð
      <description>Ísnet Hornafjörður hefur flutt starfsemi sína úr netaverkstæðinu við Álaugarveg í þúsund fermetra húsmæði í Óslandi  sem var formlega tekið í notkun 28.janúar sl. Ísfell á og starfrækir sjö netaverkstæði um allt land undir heitinu Ísnet. Eigendur Ísfells eru þeir Pétur Björnsson, Daníel Þórarinsson og Hólmsteinn Björnsson. Það er mikill hugur í okkur að efla starfsemina á Höfn segir Daníel Þórarinsson sem er markaðsstjóri Ísfells. Samhliða stækkun á húsnæðinu á Höfn erum við að auka það vöruframboð sem verður gegnum Ísnet Hornafirði. Þarna verður allt vöruúrval Ísnets í boði annað hvort á lager eða hægt verður að afgreiða vöruna með dags fyrirvara.</description>
Góð veiði línubáta
      <description>Góð línuveiði var í gær hjá þeim Hornafjarðarbátum sem voru á sjó, mestur afli var hjá Dögg sem var með 8,3 tonn og  Mundi Sæm með 6 tonn. Bátarnir voru að veiðum stutt útaf Hornafirði.
|nl|Sæmilegur afli var hjá handfærabátum, mest eitt og hálft tonn á bát. Lítil veiði hefur verið hjá netabátum þá sjaldan þeir hafa komist á veiðar, aðeins viðbragð. eins og Ólafur Einarsson á Hafnarvoginni orðaði það.
|nl|Bátar fóru ekki á sjó í morgun þar sem veðurspá er slæm.</description>
Frumkvöðlasetrið staðið undir væntingum
      <description>Málefni Frumkvöðlasetursins í Nýheimum voru tekin fyrir á síðasta fundi Bæjarráðs  og segir Halldóra B.Jónsdóttir að þar hafi verið rætt um framtíð þess. Við tókum ákvörðun um að standa að þessu verkefni næstu þrjú ár í viðbót við þau tvö sem Frumkvöðlasetrið hefur verið starfrækt. Það átti að endurskoða þetta eftir fyrstu tvö árin  og að þá yrði tekin ákvörðun um hvort staðið yrði að frumkvöðla-verkefninu næstu þrjú árin.
|nl|Halldóra segir að varðandi Frumkvöðlasetrið þann tíma sem það hafi starfað, hafi árangur af starfsemi þess farið langt fram úr þeim væntingum sem hún hafði um það. Ég er viss um að hliðarverkanir af þessu eru mjög góðar og ég er ánægð með hvernig til hefur tekist.</description>
Útboð á áætlunarflugi Hornafjörður - Reykjavík
      <description>Unnið er að útboði á áætlunarflugi milli Hornafjarðar og Reykjavíkur en núverandi samningur rennur út um næstu áramót. Landsflug tók við áætlunarflugi til Hornafjarðar 1.okt.sl. af Íslandsflugi og samkvæmt samningi eru átta flugferðir milli Reykjavíkur og Hornafjarðar yfir veturinn og  níu ferðir á sumrin. Samningur er við Flugfélag Íslands um sjúkraflug til Hornafjarðar og eru þrjár sjúkravélar staðsettar á Akureyri sem sinna  þeim útköllum.
|nl| Vegna útboðs á þessari flugleið leggur Bæjarráð Hornafjarðar áherslu á mikilvægi þess að flugvélakostur sá sem boðið er upp á sé sem fullkomnastur. Farþegar hafa kvartað yfir óþægindum þegar jafnþrýstibúnaður er ekki í flugvélunum og á þetta einkum við sjúklinga sem eru viðkvæmir og þola verr breytingar á loftþrýstingi.</description>
Bitscraftflugvél frá 1947 á Hornafjarðarflugvelli
      <description>Ferjuflugmenn sem eru á leið inni frá Ameríku til Wick á Scotlandi hafa oft viðkomu á Hornafjarðarflugvelli. Í morgun var þar Bitscraft flugvél smíðuð 1947 sem verið var að ferja frá Ameríku til Berlínar. Flugmaðurinn fékk leiðinlegt veður hingað en ákvað að halda ferðinni áfram í dag þrátt fyrir að veðurspá væri ekki  góð. Héðan flýgur hann um Færeyjar til Wick í Scotlandi . Ásgeir Núpan starfsmaður Flugmálastjórnar segir að Hornafjarðarflugvöllur sé mikið notaður sem varaflugvöllur fyrir flugvélar sem verið er að ferja á milli Wick í Skotlandi um Reykjavík til Ameríku og að þær lendi oft hér.</description>
Framkvæmdir við frárennslislagnir
      <description>Stórar vinnuvélar hafa undanfarið verið að störfum ,, inn við Bakka”  vestan við Kirkjubrautina. Þarna standa yfir framkvæmdir við frárennslislagnir og er verktaki Rósaberg ehf. Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur segir að þarna sé vinna við seinnihluta 1. áfanga í frárennslismálum á vesturströnd Hafnar aftur farin í gang, en það eru lagnir frá Júllatúni / Kirkjubraut  og að Sandbakka neðan Nýheima, en þetta eru síðustu 400 metrarnir af rúmum 1 kílómeter sem lagðir eru að þessu sinni. Unnið er við gröf á skurðum og fleygun á klöpp neðan Kirkjubrautar. Þessi hluti lagnanna er núna kominn niður fyrir núllið þ.e. að segja undir sjávarborð og fer dýpst niður á  -1,5 metra auk þess sem dælustöð við Sandbakka fer niður á - 2,9 metra. Dælustöðvarnar eru ekki komnar til landsins en eru væntanlegar nú í febrúar. Þetta eru tilbúnar stöðvar með tilbúnum dælum sem sjá um að dæla skólpi upp í lagnir sem liggja hærra þannig að það geti runnið áfram þ.e. lyftistöðvar  þar sem að annars væru lagnirnar komnar á um -5,0 metra dýpi. Dælustöðvarnar koma frá Fálkanum en þeir hafa áratuga reynslu af dælustöðvum sem þessum. Um er að ræða 2 dælustöðvar, önnur neðan við Vesturbraut sem dælir upp í lögn / brunn við Heilsugæsluna og síðan við Sandbakkann sem dælir upp í núverandi lögn í Sandbakkavegi.</description>
Guðrún Júlía ráðin framkvæmdastjóri HSSA
      <description>Búið er að ráða framkvæmdastjóra við Heilbrigðisstofnun HSSA á Höfn, Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur hjúkrunarforstjóra við HSSA. Guðrún tekur við starfinu á næstu dögum. Guðrún Júlía hefur starfað á heilsugæslustöðinni frá 1990, byrjaði þá sem almennur hjúkrunarfræðingur og starfaði sem slík til 1995 þegar hún tók við stöðu hjúkrunarforstjóra.  Þá var farið í að sameina Skjólgarð og heilsugæslustöðina og tók Guðrún Júlía fullan þátt í því verkefni. Hún tók sér níu mánaða frí meðan hún fór í nám í stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu og lauk því námi sem voru þrjár annir. Það er því ekki um neinn viðvaning að ræða sem tekur við framkvæmdastjórastarfinu hjá HSSA og  ekki er vafi á að Guðrún Júlía er vel í stakk búin til að taka við þessu nýja starfi.</description>
Björgunarbátasjóður Hornafjarðar stofnaður
      <description>Stofnfundur Björgunarbátasjóðs Hornafjarðar var haldinn á Höfn í gærkvöldi. Á fundinn mættu þrjátíu manns sem skráðu sig stofnfélaga sjóðsins. Í stjórn sjóðsins voru skipaðir, Friðþór Harðarson formaður, Björn Ingi Jónsson, Vignir Júlíusson og til vara Unnsteinn Þráinsson og Reynir Arnarson. Samþykktar voru reglur fyrir björgunarbátasjóðinn. Við vonumst til að takist að safna 3 -5 milljón kr í sjóðinn til að fjámagna það sem þarf til að gera björgunarskipið sjóklárt þannig að það standist íslenskar öryggiskröfur segir Friðþór. Minningarsjóður Ingibjargar Guðmundsdóttur hefur gefið siglingatölvu og siglingaforrit í björgunarskipið og Rafhorn gaf 50 vinnustundir rafvirkja. Þeim sem vilja leggja þessum björgunarsjóðsmálum lið með peningaframlagi er bent á reikning björgunarsjóðsins hjá Sparisjóði Hornafjarðar sem er 1147-26-676 og kennitalan 640485-0439. Friðþór segir að fólk geti ennþá skráð sig stofnfélaga og þá að hafa samband við sig.</description>
Opin vika í Nesjaskóla
      <description>Þessa viku stendur yfir opin vika í Nesjaskóla. Í opinni viku er hefðbundin bekkjarskipan brotin upp og nemendum skólans blandað þvert á bekki í ca 12 manna hópa sem vinna að hinum ýmsu verkefnum. Þessi verkefni eru margskonar og spennandi, þar er unnið í ferðahópi, tilraunahópi, leik-og tónlistarhópi, föndurhópi, danshópi, baksturshópi, og spilahópi. Þar sem 3.bekkur er búinn að vera að læra um reikistjörnurnar bera hóparnir nöfn reikistjarnanna. Það var mikið um að vera í Nesjaskóla í gær, á öskudeginum, Krakkarnir komu grímuklæddir í skólann og fyrir hádegi tóku þeir þátt í hópstarfi opnu vikunnar. Eftir að krakkarnir höfðu gætt sér á pizzu í mötuneyti skólans  fóru þau yfir í Mánagarð þar sem þau dönsuðu og skemmtu sér við að slá köttinn úr tunnunni.
|nl|</description>
10 daga kynningaráskrift - Frítt!
      <description>Næstu daga gefst þeim Hornfirðingum sem ekki eru í áskrift að Stöð 2, Bíórásinni eða Sýn og að fá fría áskrift í 10 daga. Þetta er liður í að kynna landsbyggðinni þá frábæru og efnismiklu dagskrá sem Stöð  2  býður uppá. Allt sem þarf að gera er að fá sér myndlykil, tengja hann og njóta svo dagskrárinnar sem er framundan og í fréttatilkynningu lofa ,,365 ljósvakamiðlar’’ að þeir sem grípa þetta kynninningartækifæri verði ekki fyrir vonbrigðum. Að þessum tíu dögum liðnum geta menn skilað myndlyklinum eða haldið honum og fengið  áskrift.</description>
Nemendur Hrollaugsstaðaskóla gera sé alltaf glaðan dag á öskudaginn
      <description>Nemendur Hrollaugsstaðaskóla gera sér alltaf glaðan dag á öskudaginn. Síðastliðin tvö ár hafa þeir farið á alla bæi í Suðursveit og sungið öskudagssöngva, síðan hefur verið haldið í Hrollaugsstaði ásamt foreldrum og slegið nammi úr tunnu, dansað og leikið sér. Að þessu sinni var ákveðið að halda austur á Mýrar og banka upp á á hverjum bæ þar í sveit. Allir klæddu sig í grímubúninga og lagt var af stað um hádegi. Gaman var að birtast óvænt, sungið var, Úti í bæ á öskudag, og haldið var í gamlan sið að hengja öskupoka á fólkið sem heimsótt var. ,, Þetta var mjög skemmtilegur dagur " sagði Þorbjörg, ,,nammið var í lágmarki en gleðin og ánægjan skein af hverju andliti og gaman að koma í hlað á bæjum þar sem börnin höfðu aldrei komið áður." ,,Kleinurnar hennar Helgu í Holtaseli brögðuðust sko vel og þjóðsagan um dranginn á Drangsnesi vakti eftirtekt." Síðan var farið í Hrollaugsstaði og slegið nammi úr tunnu og dansað. Séra Einar spilaði undir á píanóið, en hann er nýkominn frá Glasgov og Edinborg og mátti sjá það á búningnum hans. Allir skemmtu sér konunglega í ásadansi, fram fram fylkingu og skotbolta og sannaðist það nú sem fyrr að ,,lítið er ungs manns gaman" og mátti heyra að á heimleiðinni voru nemendur farnir að ræða hverja þeir ætluðu að heimsækja á öskudag á næsta ári. Væri ekki tilvalið  fyrir fleiri skóla í sveitarfélaginu að hafa sama hátt á og þau á Hrollaugsstöðum?</description>
Varnargarðar við Jökulsá í Lóni
      <description>Þessa dagana er framkvæmdir í Lóni við gerð neðri varnargarðsins við Jökulsá en lokið er við efri garðinn sem er rétt sunnan við ána. Efri garðurinn er 1.000 metra langur en neðri garðurinn 1.500 metrar. Mikið tjón hefur orðið á gróðurlandi í Krossalandi og Volaseli vegna ágangs Jökulsár á undanförnum árum og með þessum framkvæmdum á ekki að vera hætta á flóði úr ánni yfir gróðurlendið. Vegagerðin sér um framkvæmdir verksins fyrir Landgræðsluna. Verktaki við gerð garðanna er S.G vélar ehf á Djúpavogi  sem var með lægsta tilboðið kr.14.949.000. Efni í neðri garðinn er tekið á þrem stöðum við þjóðveginn þar sem grjótholt hafa skagað fram að veginum, tveim stöðum sunnan við Gjádalsá og rétt sunnan við Laxána. Til hefur staðið að fjarlægja þessi grjótholt við veginn og þetta var tilvalið efni í garðinn sagði Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni. Grjótholtin hafa þrengt að þjóðveginum, valdið slysahættu og á veturna hefur snjór safnast á veginn við þau.</description>
Kattar-tunnuslagurinn verður við Hafnarskóla
      <description>Að þessu sinni fer kattar- tunnuslagurinn fram á skólalóðinni og byrjar rétt upp úr kl 10. Nemendur troða upp í hæfileikakeppni, atriði verða sýnd frá hópadegi auk þess sem allir dansa eins og þeir eigi lífið að leysa. Skóladeginum lýkur með því að við leyfum börnunum að fara um bæinn og syngja fyrir fólk að öskudagssið. Við leggjum sérstaka áherslu á að nemendur æfi vel atriði til að sýna bæjarbúum og hvetjum þá til að taka þátt í hæfileikakeppni skólans. Veðurspá er batnandi fyrir morgundaginn en gæti orðið dálítið frost og því er betra fyrir furðuverurnar syngjandi að klæða sig hlýlega.</description>