Breytingar í yfirstjórn sveitarfélagsins
Eins og fram hefur komið hér á vefnum lét Gísli Sverrir Árnason af störfum sem forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Hjalti Þór Vignisson verið ráðinn forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar. Nýtt skipurit hefur tekið gildi og í því felast miklar breytingar á þessu starfi. Hjalti Þór var áður framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs í Sveitarfélaginu Hornafirði. Á fundi bæjarstjórnar þann 22. desember var samþykkt nýtt skipurit fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð sem tók gildi 1. janúar 2005 sem tilraun til eins árs. Með hinu nýja skipuriti er verið að fækka um eina stjórnunarstöðu í yfirstjórn Sveitarfélagsins. Breytingin felst í því að verkefni sem áður heyrðu undir framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs var dreift á aðra stjórnendur.
Fyrir breytinguna bar framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs ábyrgð á starfsmannamálum, launamálum, framkvæmd ýmissa samninga við ríki, s.s í heilbrigðismálum, framkvæmd laga og reglna er varða góða stjórnsýsluhætti, upplýsinga- og tölvumálum og atvinnumálum ásamt því að vera ritari bæjarráðs og bæjarstjórnar og staðgengill bæjarstjóra.
Eftir gildistöku hins nýja skipurits heyra starfsmannamál undir bæjarstjóra, framkvæmdastjóri fjármálasviðs fer með launamál, framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs tekur yfir tölvumálin og tækni- og umhverfissvið hefur umsjón með ref- og minkaveiði. Þá mun framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands heyra beint undir bæjarstjóra eftir breytinguna.
Stærsta breytingin felst í endurskipulagningu á starfi forstöðumanns Menningarmiðstöðvar enda bætast ýmis verkefni við starfið. Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar mun heyra beint undir bæjarstjóra og til viðbótar hinum hefðbundnu verkefnum bætast við upplýsinga- og atvinnumál, umsjón með framkvæmd laga og reglna er varða góða stjórnsýslu auk þess sem starfsmaðurinn er ritari bæjarráðs og bæjarstjórnar og staðgengill bæjarstjóra.





Skrifa athugasemd