Febrúar

Kynningarfundur á leik- og grunnskólafræðum - 28.02.2005 Febrúar

Í dag verður haldinn kynningarfundur í Nýheimum fyrir þá sem hafa áhuga á að stunda nám við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Sérstaklega verður kynnt nám í leiksskólafræðum og grunnskólafræðum. Mikil áhugi er á fjarnámi enda opnist með því möguleikar á að stunda nám sem ella hefði verið mjög erfitt. Kynningin fer fram í Nýheimum í myndfundarveri Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellsýslu. Þeir nemendur sem stunda hér fjarnám hafa aðgang að tölvum, prenturum, faxi og ljósritunarvél ásamt því að geta nýtt sér fundarherbergi einnig býðst þeim aðgangur að bókasafninu og lesaðstöðu FAS. Á Hornafirði eru 35 nemendur skráðir hjá Fræðsluneti Austurlands við ýmsa háskóla, svo sem Háskóla Íslands, Tækniháskólann, Háskólann á Hólum og Kennaraháskólann en þar eru flestir fjarnámsnemendurnir. Lesa meira
 
Þáttakendur á námskeiðinu

Uppbyggjandi námskeið fyrir lífstíð - 28.02.2005 Febrúar

Fyrir helgina lauk á Höfn námskeiði í sjálfstyrkingu sem Svæðisvinnumiðlun Austurlands stóð að. Ólöf Guðmundsdóttir hjá Svæðisvinnumiðlun Austurlands, sem stendur fyrir námskeiðinu, segir þetta námskeið vera hugsað fyrir unga menn í atvinnuleit og vera fyrst og fremst sjálfstyrking, síðan kemur staðan upp þegar einstaklingurinn er í atvinnuleit. Þá förum við yfir hvernig hann getur brugðist við stöðu sinni, hvað hann getur gert við henni sjálfur og hvaða leiðir hann sér út. Farið er yfir, að sækja um vinnu, þjálfa í því að tala við atvinnurekendur og sækja um vinnu, skrifa sína starfsreynsluskrá, átta sig á stöðunni og vinna á því sem hann getur en ekki á því sem hann ræður ekki við. Svo er líka að fara í atvinnuviðtal, sitja á móti atvinnurekanda og leita að vinnu. Þetta eru bara í raun og veru mjög góðir þættir til framtíðar þó maður geti fengið vinnu núna, þá er gott að hafa reynslu í farteskinu til síðari tíma ef sú staða kæmi upp, segir Ólöf. Þetta er uppbyggjandi námskeið fyrir lífstíð. Námskeiðið er 25 kennslustundir með námsefni frá Fræðsluneti Austurlands. Lesa meira
 
Smábátahöfnin

Góð mæting á málþingið Atvinnulíf á Norðurslóðum - 27.02.2005 Febrúar

Fimmtudaginn 24. febrúar var haldið málþing í Nýheimum á Höfn um atvinnumál á Norðurslóðum. Umfjöllunarefnið var hvernig jaðarbyggðum í Færeyjum, Íslandi og Noregi hefur tekist að laga sig að breyttum atvinnuháttum og hvort að þau vandamál sem Hornfirðingar glíma við séu einkennandi fyrir aðrar norðlægar byggðir eða einsdæmi. Tilefni málþingsins er útgáfa bókarinnar Innovations in the Nordic Periphery þar sem gert er grein fyrir niðurstöðum samnorrænnar rannsóknar um efnið. Frummælendur á málþinginu voru Ari Þ. Þorsteinsson hjá Frumkvöðlasetri Austurlands, Sigurður Mar Halldórsson hjá Galdri ehf. og Unnur Dís Skaptadóttir, dósent við Háskóla Íslands. Gísli Sverrir Árnason var fundarstjóri. Lesa meira
 
Rolls Royce við Jökulsárlón

Aukning umferðar um hringveginn (nr.1), austan Hafnarvegar - 25.02.2005 Febrúar

Umferð ökutækja um hringveginn (nr.1), austan Hafnarvegar ( nr.99) hefur aukist talsvert á síðasta ári samkvæmt umferðartalningu Vegagerðarinnar. Meðalumferð á dag allt árið 2004, voru 420 bílar (368 árið 2003), Meðalumferð á dag frá júní til 30.sept 2004. voru 666 bílar (572 árið 2003 sama tímabil). Meðalumferð á dag í janúar til 31.mars og í desember árið 2004, 229 bílar, (229 bílar árið 2003 ). Mesti umferðardagur ársins 2004 var 25.07 þá fóru þar 1008 bílar. ( Mesta umferð 2003 var 23.07, 936 bílar ). Minnst var umferðin 2004, 7. febrúar en þá voru 58 bílar, 2003 var minnst umferð á gamlaársdag 113 bílar sem fóru hringveginn (nr.1), austan Hafnarvegar. |nl| Lesa meira
 
Yrsa Ýr í veðurblíðunni

Í dag er sólskin, logn og hitinn síðdegis 7,5 gráður - 24.02.2005 Febrúar

Veðurblíðan hér á Hornafirði er búin að vera slík undanfarið að elstu menn muna ekki eftir slíku veðurfari á þessum árstíma. Í dag er sólskin, logn og hitinn síðdegis 7,5° Þar sem helgin er á næsta leiti hafði vefurinn samband við Þorkel Kolbeins hjá Vökli Stéttarfélagi og var hann spurður um örlofshús félagsins og hvort þau stæðu bara ónotuð yfir veturinn. Þorkell sagði svo ekki vera, þau væru leigð út á veturna. Við eigum tvö hús í Klifabotni í Lóni og sex hús á Einarsstöðum á Héraði og leigjum þau t.d. frá föstudegi fram á mánudag og er leigan þann tíma kr 6000 svo leigjum við á virkum dögum hvort er einn sólarhringur eða fleiri á kr. 2000 sólarhringinn. Lesa meira
 
Fimmti flokkur kvenna 1999

UMF Sindri leitar að myndum frá starfsemi félagsins - 24.02.2005 Febrúar

Ungmennafélagið Sindri leitar nú eftir myndum er hugsanlega tengjast á einhvern hátt starfi félagsins í þau rúmu sjötíu ár er liðin eru frá stofnun þess 1. desember 1934. Félagið fer þess á leit við þá sem eiga myndir sem tengjast UMF Sindra að koma þeim til Guðnýjar Svavarsdóttur í Menningarmiðstöð Hornfjarðar en hún hefur tekið að sér að skanna inn myndirnar. Þetta geta verið myndir sem tengjast leiklist, ferðalögum, samkomum, íþróttum og öðru sem tengist starfsemi félagsins síðustu sjötíu árin. Tilgangur með þessari söfnun er að byggja upp safn mynda til lengri tíma séð, sem einnig munu verða notaðar í Sögu Sindra sem stendur til að gefa út. Lesa meira
 
Á Hornafjarðarflugvelli

Flugu 419 ferðir í áætlun til Hornafjarðar árið 2004 - 23.02.2005 Febrúar

Íslandsflug og Landsflug flugu 419 ferðir í áætlun til Hornafjarðar árið 2004. Landsflug tók við áætlunarfluginu í byrjun okt. Farþegar voru 7.920 og alls var flutt 57.421 kg í frakt á árinu. Önnur flugfélög sem voru með ferðir og leiguflug til Hornafjarðar fluttu 966 farþega. Flugfélag Íslands annast allt sjúkraflug frá Hornafirði sem voru 56 ferðir sl.ár með 87 farþega. Reglubundið leiguflug var frá Hornafirði til Evenes í Noregi frá júlí og út árið 2004. Þetta var leiguflug frá Akureyri sem sá um að flytja starfsmenn Leonhard Níelsen og sönner, sem voru að vinna við göngin í Almannaskarði, þegar skipti voru á starfshópum. Lesa meira
 
Ístölt austurlands

Marteinn í Ártúni og Pálmi á Lækjarbrekku kepptu í ístölti - 23.02.2005 Febrúar

Um síðustu helgi var haldið Ístölt Austurlands á Lagarfljóti. Mótið var haldið laugardaginn 19. febrúar á Lagarfljóti í Egilsstaðavík, sem er staðsett á bak við Gistiheimilið á Egilsstöðum. Um sjötíu hross og eitthvað færri knapar mættu til leiks í blíðskaparveðri og hófst keppnin kl. 10:00 um morguninn. Auk heimamanna á Héraði voru mættir knapar víða að landinu m.a. úr Eyjafirði, af Suðurlandi og Reykjavíkursvæðinu. Frá Hornafirði mættu einnig tveir áhugasamir hestamenn til keppni þeir Marteinn Gíslason í Ártúni og Pálmi Guðmundsson á Lækjarbrekku. Þeir félagar fóru með fjóra hesta í kerru til Egilsstaða á föstudeginum og tóku þátt í ístöltskeppninni á laugardeginum með ágætum árangri. Marteinn sýndi Freyju frá Ártúni í flokki unghrossa og Mózart frá Ártúni í áhugamannaflokki. Pálmi keppti á Fálka frá Hólkoti í opnum flokki og Baun frá Kúskerpi í áhugamannaflokki. Lesa meira
 
Kátir krakkar í Hafnarskóla

Stóra upplestrarkeppnin - 22.02.2005 Febrúar

Nemendur í 7. bekk Hafnarskóla hafa tekið þátt í Stóru upplestrarkeppninni í nokkur ár en hún er haldin til að vekja athygli og áhuga á vönduðum upplestri. Hún er skemmtileg tilbreyting í skólastarfinu þar sem nemendur kynnast bókmenntum og ljóðum á annan hátt en dags daglega. Þjálfun í upplestri og framsögn skiptir miklu máli því fátt er skemmtilegra en að hlusta á vel fluttan texta. Keppnin er þrískipt. Fyrst er bekkjarkeppni þar sem 12 nemendur komast áfram. Þeir keppa síðan í skólakeppni sem haldin verður í Nýheimum 7. mars. Þar komast 5 nemendur áfram og taka þeir þátt í lokahátíðinni sem haldin verður á Djúpavogi . Á lokahátíðina koma nemendur frá Grunnskólanum í Hofgarði, Hrollaugsstaðaskóla, Hafnarskóla og Grunnskóla Djúpavogs. Lesa meira
 
Skólamálaþing í Nýheimum

Fjölbreytni og gæði fyrirlestra mikil - 22.02.2005 Febrúar

Síðastliðinn laugardag var haldið skólamálaþing í Nýheimum á vegum sveitarfélagsins. Fyrir hádegi var unnið í þremur málstofum þar sem fram komu fulltrúar leikskóla, grunnskóla, tónskóla, framhaldsskóla og foreldra. Eftir hádegi var safnast saman á sal þar sem fram komu þrír gestafyrirlesarar auk heimamanna. Samtals voru fluttir 17 fyrirlestrar á þinginu. Lesa meira
 
9.bekkur_003

Námsferð 9. bekkjar í Ungmennabúðir - 21.02.2005 Febrúar

Nú styttist í námsferð 9. bekkjar Heppuskóla í Ungmennabúðir að Laugum í Sælingsdal. Lagt verður af stað að morgni sunnudagsins 27. febrúar og dvalið að Laugum fram á föstudag 4. mars. Ferðin endar með Samfésballi að kvöldi föstudagsins og að því loknu verður brunað beint heim í skjóli nætur. Ungmennabúðirnar eru reknar af Ungmennafélagi Íslands og hafa að aðalmarkmiði að styrkja sjálfstraust nemenda og hjálpa þeim þannig til að taka réttar ákvarðanir í lífinu. Þarna er verið að leggja áherslu á „tómstundir sem lífsstíl og sem mikilvægan þátt í forvarnarstarfi”, eins og segir á heimasíðu UMFÍ. Þar sem verið er að ráðast í afar stórt verkefni var afráðið að sækja um styrki til fyrirtækja í Hornafirði og var það Sparisjóður Hornafjarðar svaraði með myndarlegu framlagi og kunnum við honum góðar þakkir fyrir. Ennfremur var veittur styrkur úr forvarnarsjóði Bæjarfélags Hornafjarðar. Lesa meira
 
Ferðalangur frá Japan

Fékk á sig vindkviðu í Öræfum, tókst á loft og flaug útaf - 19.02.2005 Febrúar

Japanskur ferðamaður kom til Hafnar í gær, sem venjulega telst ekki til tíðinda, en þessi ferðamaður kom á reiðhjólinu sínu núna um hávetur þegar allra veðra er von.Tomohiko Doi, sem er tuttugu og þriggja ára, lagði af stað frá Reykjavík 9. febrúar, fór fyrst í Laugarvatn og þaðan að Gullfossi og Geysi. Til Víkur í Mýrdal kom hann 13.febrúar, svaf þar í tjaldi sínu og var einnig nótt í tjaldi við Kálfafell, í hvassviðri og rigningu. Við Kvíá í Öræfum fékk hann feikna vindkviðu á sig og segist hann hreinlega hafa tekist á loft og flogið útaf. Ekki varð honum meint af fluginu og þarna kom “gott fólk” sem hjálpaði honum og fór með hann til baka í Hótel Skaftafell í Freysnesi. Fimmtudagsmorgun hélt Tomohiko aftur á stað og gekk nú allt vel og var næsti áningarstaður við Jökulsárlón þar sem hann svaf um nóttina í tjaldi sínu. Til Hafnar kom hann laust upp úr kl. 17 í gær. Lesa meira
 
Forvarnir_IMG_5279

Unnið að gerð forvarnaauglýsingar - 18.02.2005 Febrúar

Undanfarnar vikur hafa 8. bekkingar verið að vinna að gerð forvarnaauglýsinga. Þau sjá um að gera handrit, tökur, leik og fleira sem snýr að gerð leikinna auglýsinga. Í morgun stóðu yfir tökur á auglýsingu sem fjallaði um eiturlyf. Með í töku hennar var sjúkrabíll og lögegla sem hefur örugglega vakið athygli bæjarbúa. Markmiðið með gerð þessara forvarnaauglýsinga er að jafningjar, í þessu tilfelli 8. bekkingar, komi skilaboðum til sinna jafningja um að byrja aldrei á að neyta vímuefna og að virða útivistartíma. Unnið er með ýmsa flokka, svo sem áfengi, tóbak, útivist, eiturlyf, samskipti við foreldra og einelti. Umsjón með verkefninu hafa Árni Pétur Hilmarsson kennari í Heppuskóla og Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi. Í fyrra var svipuð forvarnavinna unnin með 8. bekkingum sem fólst í því að þau gerðu forvarnaplaggöt sem vöktu mikla athygli. Lesa meira
 
Hjördís Þóra formaður Vökuls

Ályktanir frá stjórnarfundi Vökuls Stéttarfélags - 18.02.2005 Febrúar

Stjórn Vökuls Stéttarfélags sendi frá sér ályktanir þar sem lýst er áhyggjum af stöðu atvinnumála á Stöðvarfirði, ef svo fer sem fram horfir að frystihúsi staðarins verði lokað með haustinu Stjórnin telur eðlilegt að ákveði Samherji að loka landvinnslunni á Stöðvarfirði þá beri fyrirtækinu að skilja kvóta Stöðvfirðinga eftir þar, svo heimamenn geti áfram skapað sér atvinnu á þeim aflaheimildum sem þeir hafa áunnið staðnum. Stjórnin lýsir eftir félagslegri ábyrgð Samherja í þessu máli. Lesa meira
 
Jón Garðar Bjarnason

Tillaga um stofnun fangelsis eða gæsluheimilis fyrir unglinga - 18.02.2005 Febrúar

Bæjarráð Hornafjarðar fagnar tillögu frá Jóni Garðari Bjarnasyni um nýsköpun í atvinnumálum á Hornafirði og hefur sent hana til atvinnumálanefndar. Tillaga Jóns Garðars er um að kannað verði möguleiki á stofnun fangelsis eða gæsluheimilis fyrir unglinga sem þurfa í eftirmeðferð þ.e. unglinga sem eru í fangelsi og hafa sýnt og sannað að þeim sé treystandi í lámarks öryggisgæslu. Ég hef verið að fylgjast með fangelsismálaumræðum og held að nú sé svigrúm til koma á einhverju samstarfi segir Jón Garðar, og ég er viss um að Hornafjörður er vel til þessarar starfsemi fallinn og býr yfir góðum mannafla og húsnæði til að takast á við svona verkefni. Lesa meira
 
Frá Góuhófinu 2005

Skemmta með léttu gríni og gamanmálum á Góuhófinu - 17.02.2005 Febrúar

Öræfingar halda sitt árlega Góuhóf í Hofgarði þann 5.mars. Undirbúningur er í fullum gangi og að venju er vel til þess vandað. Þetta er tuttugasta góuhófið sem haldið er í Hofgarði og veislustjóri er Hermann Árnason frá Heiði í Mýrdal. Matreiðslan verður í höndum þeirra Andra og Benedikts Jónssona frá Freysnesi sem eru orðlagðir fyrir góða matreiðslu og glæsileg veisluborð. Góu-nefndin ætlar að gera sitt besta og skemmta með léttu gríni og gamanmálum. Það eru allir velkomnir á góuhófið meðan húsrúm leyfir. Brott fluttir Öræfingar hafa verið duglegir að koma á góuhófið hvar sem þeir búa á landinu og fólk kemur allsstaðar úr sýslunni, einnig úr vestur-sýslunni. Að þessu sinni er það hljómsveitin Granít sem spilar fyrir dansi. Lesa meira
 
Hjalti Þór Vignisson tekur á móti lyklum af Menningarmiðstöðunni

Breytingar í yfirstjórn sveitarfélagsins - 16.02.2005 Febrúar

Eins og fram hefur komið hér á vefnum lét Gísli Sverrir Árnason af störfum sem forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Hjalti Þór Vignisson verið ráðinn forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar. Nýtt skipurit hefur tekið gildi og í því felast miklar breytingar á þessu starfi. Hjalti Þór var áður framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs í Sveitarfélaginu Hornafirði. Á fundi bæjarstjórnar þann 22. desember var samþykkt nýtt skipurit fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð sem tók gildi 1. janúar 2005 sem tilraun til eins árs. Með hinu nýja skipuriti er verið að fækka um eina stjórnunarstöðu í yfirstjórn Sveitarfélagsins. Breytingin felst í því að verkefni sem áður heyrðu undir framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs var dreift á aðra stjórnendur. Lesa meira
 
Isfell

Mikil áhersla á aukna þjónustu í heimabyggð - 16.02.2005 Febrúar

Ísnet Hornafjörður hefur flutt starfsemi sína úr netaverkstæðinu við Álaugarveg í þúsund fermetra húsmæði í Óslandi sem var formlega tekið í notkun 28.janúar sl. Ísfell á og starfrækir sjö netaverkstæði um allt land undir heitinu Ísnet. Eigendur Ísfells eru þeir Pétur Björnsson, Daníel Þórarinsson og Hólmsteinn Björnsson. Það er mikill hugur í okkur að efla starfsemina á Höfn segir Daníel Þórarinsson sem er markaðsstjóri Ísfells. Samhliða stækkun á húsnæðinu á Höfn erum við að auka það vöruframboð sem verður gegnum Ísnet Hornafirði. Þarna verður allt vöruúrval Ísnets í boði annað hvort á lager eða hægt verður að afgreiða vöruna með dags fyrirvara. Lesa meira
 
Höfnin í gullfallegri birtu

Góð veiði línubáta - 15.02.2005 Febrúar

Góð línuveiði var í gær hjá þeim Hornafjarðarbátum sem voru á sjó, mestur afli var hjá Dögg sem var með 8,3 tonn og Mundi Sæm með 6 tonn. Bátarnir voru að veiðum stutt útaf Hornafirði. |nl|Sæmilegur afli var hjá handfærabátum, mest eitt og hálft tonn á bát. Lítil veiði hefur verið hjá netabátum þá sjaldan þeir hafa komist á veiðar, aðeins viðbragð. eins og Ólafur Einarsson á Hafnarvoginni orðaði það. |nl|Bátar fóru ekki á sjó í morgun þar sem veðurspá er slæm. Lesa meira
 
Halldóra Bergljót og Björn Bjarnason  taka fyrstu skóflustunguna að Nýheimum

Frumkvöðlasetrið staðið undir væntingum - 15.02.2005 Febrúar

Málefni Frumkvöðlasetursins í Nýheimum voru tekin fyrir á síðasta fundi Bæjarráðs og segir Halldóra B.Jónsdóttir að þar hafi verið rætt um framtíð þess. Við tókum ákvörðun um að standa að þessu verkefni næstu þrjú ár í viðbót við þau tvö sem Frumkvöðlasetrið hefur verið starfrækt. Það átti að endurskoða þetta eftir fyrstu tvö árin og að þá yrði tekin ákvörðun um hvort staðið yrði að frumkvöðla-verkefninu næstu þrjú árin. |nl|Halldóra segir að varðandi Frumkvöðlasetrið þann tíma sem það hafi starfað, hafi árangur af starfsemi þess farið langt fram úr þeim væntingum sem hún hafði um það. Ég er viss um að hliðarverkanir af þessu eru mjög góðar og ég er ánægð með hvernig til hefur tekist. Lesa meira
 
Vignir Þorbjörnsson afgreiðir eldsneyti á vélina

Útboð á áætlunarflugi Hornafjörður - Reykjavík - 15.02.2005 Febrúar

Unnið er að útboði á áætlunarflugi milli Hornafjarðar og Reykjavíkur en núverandi samningur rennur út um næstu áramót. Landsflug tók við áætlunarflugi til Hornafjarðar 1.okt.sl. af Íslandsflugi og samkvæmt samningi eru átta flugferðir milli Reykjavíkur og Hornafjarðar yfir veturinn og níu ferðir á sumrin. Samningur er við Flugfélag Íslands um sjúkraflug til Hornafjarðar og eru þrjár sjúkravélar staðsettar á Akureyri sem sinna þeim útköllum. |nl| Vegna útboðs á þessari flugleið leggur Bæjarráð Hornafjarðar áherslu á mikilvægi þess að flugvélakostur sá sem boðið er upp á sé sem fullkomnastur. Farþegar hafa kvartað yfir óþægindum þegar jafnþrýstibúnaður er ekki í flugvélunum og á þetta einkum við sjúklinga sem eru viðkvæmir og þola verr breytingar á loftþrýstingi. Lesa meira
 
Ferjuflugvél árg 1947

Bitscraftflugvél frá 1947 á Hornafjarðarflugvelli - 14.02.2005 Febrúar

Ferjuflugmenn sem eru á leið inni frá Ameríku til Wick á Scotlandi hafa oft viðkomu á Hornafjarðarflugvelli. Í morgun var þar Bitscraft flugvél smíðuð 1947 sem verið var að ferja frá Ameríku til Berlínar. Flugmaðurinn fékk leiðinlegt veður hingað en ákvað að halda ferðinni áfram í dag þrátt fyrir að veðurspá væri ekki góð. Héðan flýgur hann um Færeyjar til Wick í Scotlandi . Ásgeir Núpan starfsmaður Flugmálastjórnar segir að Hornafjarðarflugvöllur sé mikið notaður sem varaflugvöllur fyrir flugvélar sem verið er að ferja á milli Wick í Skotlandi um Reykjavík til Ameríku og að þær lendi oft hér. Lesa meira
 
Frárennslisframkvæmdir, borað í klöppina

Framkvæmdir við frárennslislagnir - 14.02.2005 Febrúar

Stórar vinnuvélar hafa undanfarið verið að störfum ,, inn við Bakka” vestan við Kirkjubrautina. Þarna standa yfir framkvæmdir við frárennslislagnir og er verktaki Rósaberg ehf. Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur segir að þarna sé vinna við seinnihluta 1. áfanga í frárennslismálum á vesturströnd Hafnar aftur farin í gang, en það eru lagnir frá Júllatúni / Kirkjubraut og að Sandbakka neðan Nýheima, en þetta eru síðustu 400 metrarnir af rúmum 1 kílómeter sem lagðir eru að þessu sinni. Unnið er við gröf á skurðum og fleygun á klöpp neðan Kirkjubrautar. Þessi hluti lagnanna er núna kominn niður fyrir núllið þ.e. að segja undir sjávarborð og fer dýpst niður á -1,5 metra auk þess sem dælustöð við Sandbakka fer niður á - 2,9 metra. Dælustöðvarnar eru ekki komnar til landsins en eru væntanlegar nú í febrúar. Þetta eru tilbúnar stöðvar með tilbúnum dælum sem sjá um að dæla skólpi upp í lagnir sem liggja hærra þannig að það geti runnið áfram þ.e. lyftistöðvar þar sem að annars væru lagnirnar komnar á um -5,0 metra dýpi. Dælustöðvarnar koma frá Fálkanum en þeir hafa áratuga reynslu af dælustöðvum sem þessum. Um er að ræða 2 dælustöðvar, önnur neðan við Vesturbraut sem dælir upp í lögn / brunn við Heilsugæsluna og síðan við Sandbakkann sem dælir upp í núverandi lögn í Sandbakkavegi. Lesa meira
 
Guðrún Júlía Jónsdóttir

Guðrún Júlía ráðin framkvæmdastjóri HSSA - 11.02.2005 Febrúar

Búið er að ráða framkvæmdastjóra við Heilbrigðisstofnun HSSA á Höfn, Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur hjúkrunarforstjóra við HSSA. Guðrún tekur við starfinu á næstu dögum. Guðrún Júlía hefur starfað á heilsugæslustöðinni frá 1990, byrjaði þá sem almennur hjúkrunarfræðingur og starfaði sem slík til 1995 þegar hún tók við stöðu hjúkrunarforstjóra. Þá var farið í að sameina Skjólgarð og heilsugæslustöðina og tók Guðrún Júlía fullan þátt í því verkefni. Hún tók sér níu mánaða frí meðan hún fór í nám í stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu og lauk því námi sem voru þrjár annir. Það er því ekki um neinn viðvaning að ræða sem tekur við framkvæmdastjórastarfinu hjá HSSA og ekki er vafi á að Guðrún Júlía er vel í stakk búin til að taka við þessu nýja starfi. Lesa meira
 
Bátarnir sem koma á Höfn og Skógarströnd

Björgunarbátasjóður Hornafjarðar stofnaður - 11.02.2005 Febrúar

Stofnfundur Björgunarbátasjóðs Hornafjarðar var haldinn á Höfn í gærkvöldi. Á fundinn mættu þrjátíu manns sem skráðu sig stofnfélaga sjóðsins. Í stjórn sjóðsins voru skipaðir, Friðþór Harðarson formaður, Björn Ingi Jónsson, Vignir Júlíusson og til vara Unnsteinn Þráinsson og Reynir Arnarson. Samþykktar voru reglur fyrir björgunarbátasjóðinn. Við vonumst til að takist að safna 3 -5 milljón kr í sjóðinn til að fjámagna það sem þarf til að gera björgunarskipið sjóklárt þannig að það standist íslenskar öryggiskröfur segir Friðþór. Minningarsjóður Ingibjargar Guðmundsdóttur hefur gefið siglingatölvu og siglingaforrit í björgunarskipið og Rafhorn gaf 50 vinnustundir rafvirkja. Þeim sem vilja leggja þessum björgunarsjóðsmálum lið með peningaframlagi er bent á reikning björgunarsjóðsins hjá Sparisjóði Hornafjarðar sem er 1147-26-676 og kennitalan 640485-0439. Friðþór segir að fólk geti ennþá skráð sig stofnfélaga og þá að hafa samband við sig. Lesa meira
 
Öskudagur í nesjum.

Opin vika í Nesjaskóla - 10.02.2005 Febrúar

Þessa viku stendur yfir opin vika í Nesjaskóla. Í opinni viku er hefðbundin bekkjarskipan brotin upp og nemendum skólans blandað þvert á bekki í ca 12 manna hópa sem vinna að hinum ýmsu verkefnum. Þessi verkefni eru margskonar og spennandi, þar er unnið í ferðahópi, tilraunahópi, leik-og tónlistarhópi, föndurhópi, danshópi, baksturshópi, og spilahópi. Þar sem 3.bekkur er búinn að vera að læra um reikistjörnurnar bera hóparnir nöfn reikistjarnanna. Það var mikið um að vera í Nesjaskóla í gær, á öskudeginum, Krakkarnir komu grímuklæddir í skólann og fyrir hádegi tóku þeir þátt í hópstarfi opnu vikunnar. Eftir að krakkarnir höfðu gætt sér á pizzu í mötuneyti skólans fóru þau yfir í Mánagarð þar sem þau dönsuðu og skemmtu sér við að slá köttinn úr tunnunni. |nl| Lesa meira
 
Ýmsir þættir á stöð 2

10 daga kynningaráskrift - Frítt! - 10.02.2005 Febrúar

Næstu daga gefst þeim Hornfirðingum sem ekki eru í áskrift að Stöð 2, Bíórásinni eða Sýn og að fá fría áskrift í 10 daga. Þetta er liður í að kynna landsbyggðinni þá frábæru og efnismiklu dagskrá sem Stöð 2 býður uppá. Allt sem þarf að gera er að fá sér myndlykil, tengja hann og njóta svo dagskrárinnar sem er framundan og í fréttatilkynningu lofa ,,365 ljósvakamiðlar’’ að þeir sem grípa þetta kynninningartækifæri verði ekki fyrir vonbrigðum. Að þessum tíu dögum liðnum geta menn skilað myndlyklinum eða haldið honum og fengið áskrift. Lesa meira
 
Nemendur í Hrollaugsstaðarskóla

Nemendur Hrollaugsstaðaskóla gera sé alltaf glaðan dag á öskudaginn - 10.02.2005 Febrúar

Nemendur Hrollaugsstaðaskóla gera sér alltaf glaðan dag á öskudaginn. Síðastliðin tvö ár hafa þeir farið á alla bæi í Suðursveit og sungið öskudagssöngva, síðan hefur verið haldið í Hrollaugsstaði ásamt foreldrum og slegið nammi úr tunnu, dansað og leikið sér. Að þessu sinni var ákveðið að halda austur á Mýrar og banka upp á á hverjum bæ þar í sveit. Allir klæddu sig í grímubúninga og lagt var af stað um hádegi. Gaman var að birtast óvænt, sungið var, Úti í bæ á öskudag, og haldið var í gamlan sið að hengja öskupoka á fólkið sem heimsótt var. ,, Þetta var mjög skemmtilegur dagur " sagði Þorbjörg, ,,nammið var í lágmarki en gleðin og ánægjan skein af hverju andliti og gaman að koma í hlað á bæjum þar sem börnin höfðu aldrei komið áður." ,,Kleinurnar hennar Helgu í Holtaseli brögðuðust sko vel og þjóðsagan um dranginn á Drangsnesi vakti eftirtekt." Síðan var farið í Hrollaugsstaði og slegið nammi úr tunnu og dansað. Séra Einar spilaði undir á píanóið, en hann er nýkominn frá Glasgov og Edinborg og mátti sjá það á búningnum hans. Allir skemmtu sér konunglega í ásadansi, fram fram fylkingu og skotbolta og sannaðist það nú sem fyrr að ,,lítið er ungs manns gaman" og mátti heyra að á heimleiðinni voru nemendur farnir að ræða hverja þeir ætluðu að heimsækja á öskudag á næsta ári. Væri ekki tilvalið fyrir fleiri skóla í sveitarfélaginu að hafa sama hátt á og þau á Hrollaugsstöðum? Lesa meira
 
Grjómámið sunnan Laxá

Varnargarðar við Jökulsá í Lóni - 09.02.2005 Febrúar

Þessa dagana er framkvæmdir í Lóni við gerð neðri varnargarðsins við Jökulsá en lokið er við efri garðinn sem er rétt sunnan við ána. Efri garðurinn er 1.000 metra langur en neðri garðurinn 1.500 metrar. Mikið tjón hefur orðið á gróðurlandi í Krossalandi og Volaseli vegna ágangs Jökulsár á undanförnum árum og með þessum framkvæmdum á ekki að vera hætta á flóði úr ánni yfir gróðurlendið. Vegagerðin sér um framkvæmdir verksins fyrir Landgræðsluna. Verktaki við gerð garðanna er S.G vélar ehf á Djúpavogi sem var með lægsta tilboðið kr.14.949.000. Efni í neðri garðinn er tekið á þrem stöðum við þjóðveginn þar sem grjótholt hafa skagað fram að veginum, tveim stöðum sunnan við Gjádalsá og rétt sunnan við Laxána. Til hefur staðið að fjarlægja þessi grjótholt við veginn og þetta var tilvalið efni í garðinn sagði Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni. Grjótholtin hafa þrengt að þjóðveginum, valdið slysahættu og á veturna hefur snjór safnast á veginn við þau. Lesa meira
 
Frá öskudeginum 2004

Kattar-tunnuslagurinn verður við Hafnarskóla - 09.02.2005 Febrúar

Að þessu sinni fer kattar- tunnuslagurinn fram á skólalóðinni og byrjar rétt upp úr kl 10. Nemendur troða upp í hæfileikakeppni, atriði verða sýnd frá hópadegi auk þess sem allir dansa eins og þeir eigi lífið að leysa. Skóladeginum lýkur með því að við leyfum börnunum að fara um bæinn og syngja fyrir fólk að öskudagssið. Við leggjum sérstaka áherslu á að nemendur æfi vel atriði til að sýna bæjarbúum og hvetjum þá til að taka þátt í hæfileikakeppni skólans. Veðurspá er batnandi fyrir morgundaginn en gæti orðið dálítið frost og því er betra fyrir furðuverurnar syngjandi að klæða sig hlýlega. Lesa meira
 
Hafnarskóli

Hópvinna hjá nemendum Hafnarskóla - 08.02.2005 Febrúar

Hópvinnudagur er hjá krökkunum í Hafnarskóla í dag. Krakkarnir fara í ýmis verkefni sem hópstjórar þeirra eru búnir að undirbúa. Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri segir mikla tilhlökkun hjá krökkunum eftir þessum degi og þau vinni sín verkefni afskaplega vel og samviskusamlega. Allir nemendur eru komnir í mismunandi hópa þar sem þeir vinna hörðum höndum að verkefni dagsins. Verkefnin eru afar breytilegt en starfað er í ellefu mismunandi hópum. Nokkrir strákar eru að kanna refilstigu bílaviðgerðanna með Gunnari Pálma, aðrir eru að skoða veiðilendurnar í nágrenninu með kunnum sjómönnum á meðan stelpurnar kjósa fremur að kynnast snyrtifræðingnum Sigrúnu Sveinbjörns og störfum hennar, dansa freestyle, mála eða vinna í textíl. Leiklistarhópur er starfandi, ásamt smíðahópi og fjölmennum tölvu- og íþróttahópum. Kaffihúsahópurinn sem alltaf er vinsælasti hópurinn sér gestum og gangandi fyrir vöfflum og skúffuköku ásamt svaladrykk, mjólk eða kaffi á hóflegu verði. Þannig kostar vaffla með rjóma aðeins 100 krónur og án rjóma 50 krónur eins og skúffukökusneið. Lesa meira
 
Efri brúin allt til alls

Björgunarskip á Hornafjörð - 08.02.2005 Febrúar

Björgunarskip sem staðsett verður á Hornafirði fer væntanlega um borð í skip, fyrir miðjan þennan mánuð, sem flytur það til Reyðarfjarðar. Flutningur skipsins til Íslands er þó háður því að veðurútlit á siglingarleiðinni sé gott því búið er að missa eitt svona skip í sjóinn af flutningaskipi sem lenti í óveðri á leiðinni til Íslands.Slysavarnafélagið Landsbjörg kaupir björgunarskipið sem er af gerðinni Arun 1108 frá Bretlandi. Skipið er 42 brúttólestir lengd 16,31 m breidd 5,20m og dýpt 2,7 m. tvær caterpillar 485 hestafla aðalvélar. Um borð verður 6 manna áhöfn. Ganghraði er 15 sjómílur. Skipið er úr plasti smíðað 1987. Lesa meira
 
Frá þorrablóti 2005 í Suðursveit

Þorrablótið á Hrollaugsstöðum það fjölmennasta á seinni árum - 07.02.2005 Febrúar

Þorrablótið á Hrollaugsstöðum í Suðursveit sem haldið var sl. laugardagskvöld, var fjölmennasta blót sem haldið hefur verið þar á síðari árum og voru blótsgestir um 160 og húsið nær fullsetið. Hróðmar á Víkinni sá um matinn sem var mjög góður og sérstaklega vel útilátinn, Hróðmar er höfðingi, sagði Þorbjörg Arnórsdóttir, ein þeirra sem að blótinu stóðu. Margt var til skemmtunar og auðvitað var mannlífið í Suðursveit , Mýrum og Öræfum tekið skoðunar. Öræfingar eru alltaf boðnir á þorrablótin á Hrollaugsstöðum og þau boð endurgjalda þeir með boði á Góuhófin í Öræfum. Torfhildur Torfadóttir á Gerði lagði okkur gott lið eins og venjulega og m.a vísur sem hún orti um veru fólks á Kanaríeyjum sagði Þorbjörg, annars var þetta svona almennt gamanmál lesið, leikið og sungið, en allt efnið annað en það sem Torfhildur lagði var frumsamið af nefndinni. Bæjarstjórnin fékk sinn skerf og Albert bæjarstjóri fékk góðar ráðleggingar í bundnu máli um hvernig ætti að stemma stigu við fólksfækkun í sveitarfélaginu. Gísli á Hnappavöllum og Böddi á Brunnavöllum fóru á kostum í leikrænni tjáningu, léku fjallgöngumenn í pílagrímsferð með Fjölni og Þorbjörgu á Hala og Skaftfellinga á Kanarí. Þorbjörg segir að blótið allt hafi farið mjög vel fram og dansað var fram undir morgun. Lesa meira
 
Rósaberg  sá um viðgerð á gömlu Óslandsbryggjunni

Grjótvörn sett við gömlu Óslandsbryggjuna - 07.02.2005 Febrúar

Undanfarið hefur verið unnið að ýmsum lagfæringum á hafnarsvæðinu við Hornafjarðarhöfn. Einnig hefur verið unnið við lagfæringu á gömlu Óslandsbryggjunni sem notuð var þegar flugvöllurinn var á Melatanga á Suðurfjörum en hún var orðin illa farin af ísreki úr firðinum. Þó bryggjan gegni ekki jafn stóru hlutverki og hér áður fyrr nota smábáta-kallarnir sem sækja veiðar í fjörðinn hana. Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur segir að búið sé að grjótverja hana en ekki sé búið að gera við dekkið á bryggjunni, ekki sé komin áætlun á það verkefni en nauðsynlegt sé að halda bryggjunni við bæði vegna veiða í firðinum og svo er hún líka menningarverðmæti. |nl|Grjótvörn var sett við Óslandsbryggjuna framan við Bestfisk, bæði til að verja landið og svo til að þetta líti betur út segir Helgi Már. Hann segir að þessar grjót-framkvæmdir séu búnar í bili, þær séu teknar í smá skömmtum eftir því sem peningar og grjót séu til en hvorutveggja sé erfitt að fá. Verið er að kanna dýpi á klöpp út við loðnubryggjuna í Óslandi þar sem hugmyndin er að byggja nýja bryggju fyrir Netaverkstæðið Ísnet í Óslandi. Undirbúningsvinna fyrir þessa framkvæmd er hafin og verið er að kanna hvernig bryggja hentar best og hver nákvæm staðsetning hennar verður. Lesa meira
 
Séð yfir hafnarsvæðið á Djúpavogi

Djúpavogshreppur kaupir loðnubræðsluna á Djúpavogi - 07.02.2005 Febrúar

Gengið hefur verið frá kaupum á loðnubræðslunni á Djúpavogi til Djúpavogshrepps og heimamanna þar. Við erum ekki komnir með afsalið í hendurnar en erum komnir með kauptilboðið og búnir að greiða útborgun samkvæmt samkomulagi svo við teljum að þetta gangi eftir, segir Björn Hafþór Guðmundsson sveitarstjóri á Djúpavogi. Við kaupum bræðsluna úr þrotabúinu Gautavík en það er Íslandsbanki sem sér um sölu hennar. Margir hafa staðið í þeirri trú að bræðslan á Djúpavogi væri eign Skinneyjar Þinganess á Höfn en Gunnar Ásgeirsson stjórnarformaður SÞ segir svo ekki vera, þetta snýr ekkert að okkur segir hann, útgerðarfélagið Festi, sem við keyptum, átti þetta en Gautavík var gjaldþrota á þeim tíma þannig að við rákum það fyrirtæki aldrei. |nl| Lesa meira
 
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu

Skólamálaþing í Nýheimum - 04.02.2005 Febrúar

Í frétt frá undirbúningsnefnd fyrir skólamálaþing segir að þann 19. febrúar næstkomandi verður haldið skólamálaþing í Nýheimum. Ákvörðun um þingið á sér nokkurn aðdraganda og á fundi undirbúningsnefndar þingsins síðastliðið haust var gerð tillaga um þessa dagsetningu og hún samþykkt í skólanefnd. Á þinginu verður flest það sem snýr að uppeldis- og skólamálum til umfjöllunar. Að þinginu koma starfsmenn leikskólanna, grunnskólanna, tólistarskólans og framhaldsskólans auk annarra sem koma að skólamálum. Fyrir hádegi verða fluttir fyrirlestrar í fjórum málstofum sem skiptast eftir skólastigum, sbr. að framan. Hver skóli mun þar gera grein fyrir stöðu sinni og framtíðarsýn. Að framsögum loknum verða umræður með þátttöku þeirra sem mæta í hverja málstofu. Eftir hádegishlé verða fyrirlestrar og umræður á sal. Þar koma meðal annarra fram gestafyrirlesarar sem eru sérfræðingar í málefnum leikskóla og grunnskóla og halda erindi um þessi skólastig. Þá verður rætt um hinn þrískipta skóla, reynslu annarra af sameiningu skóla og ákvarðanatöku í skólamálum. Öllum sem mæta er frjálst að taka þátt í umræðum að framsögum loknum. Lesa meira
 
Bangsum sárt saknað á bókasafninu

Bangsarnir á bókasafninu týna tölunni. - 04.02.2005 Febrúar

Borið hefur á því að undanförnu að bangsar í barnahorni bókasafns Menningarmiðstöðvarinnar hafi horfið. Bangsarnir hafa verið keyptir undanfarin ár til þess að gera umhverfi barnanna hlýlegt og gefa þeim tækifæri til að setjast niður með bangsa að eigin vali og lesa fyrir hann en eins og allir vita eiga bók, barn og bangsi mjög vel saman. Nokkrir af hinum horfnu böngsum eru sérstakir “bókasafnsbangsar” þ.e.a.s. að bókasöfn á norðurlöndum hafa látið útbúa þá sérstaklega fyrir bangsadaga sem haldnir eru á ári hverju í almenningsbókasöfnum. Þessi bangsar eru sérmerktir og ófáanlegir nema í gegnum bókasöfn. Einnig hafa horfið af bókasafninu rauðir hjartalaga púðar úr unglingadeildinni. Lesa meira
 
Bæjarós opnaður, myndir: Sveinbj. Steinþórsson

Bæjarós í Lóni ruddur í gær - 04.02.2005 Febrúar

Bæjarós í Lóni hefur staðið uppi nokkuð lengi, þ.e. ekkert vatn runnið um hann úr lóninu til sjávar og fjörukambur hlaðist upp þar sem ósinn var. Þetta hefur ekki komið að sök fyrr en hlýnaði í veðri þá snarhækkaði vatnið í lóninu og stutt var í að flæddi yfir þjóðveginn við Hvalnes. Í gær fóru þeir Ólafur Halldórsson verktaki og Sveinbjörn Steinþórsson starfsmaður Vegagerðarinnar út á Lónsfjörur með jarðýtu til að ryðja vatninu leið. Þetta var orðið svo mikið sem hafði hlaðist þarna upp í vetur og fjörukamburinn orðinn hár sagði Sveinbjörn og við ruddum þarna 5 m. breitt og 3ja m. djúpt skarð í fjörukambinn og þar með var vatninu leiðin greið. Aðstæður til að hleypa vatninu í gegn voru hagstæðastar um kl.18 á há fjöru, þá stóð lónið mikið hærra en sjórinn og vatnið hreinsaði sig betur út. |nl|Bæjarós hefur verið lokaður óvenju lengi núna en þegar hlýnaði í veðri og vatnið fór stöðugt hækkandi í lóninu var ekki um annað að gera en að ryðja því leið til sjávar. Lesa meira
 
Þrykkjufréttir

Þrykkjufréttir. - 03.02.2005 Febrúar

Þrykkjufréttir eru komnar út. Það er fjölmiðlahópur Þrykkjunnar (Félagsmiðstöðvarinnar) sem sér um útgáfu blaðsins og ritstjóri er Gunnlaugur Bragi Björnsson. Margar myndir prýða blaðið og í leiðara skrifar Gunnlaugur um heistrengingar um áramót, þorrann og þær matarvenjur sem viðhaldist hafa hjá Íslendingum gegn um árin . Viðtal er við Áslaugu Valsdóttur ljósmóður hjá HSSA um hvort unga fólkið hafi nýtt sér þjónustuna, Móttaka fyrir ungt fólk, sem heilsugæslan býður uppá á hverjum mánudegi. Svar Ásdísar var, að þetta færi hægt af stað hér eins og annarsstaðar og áframhald á þessari þjónustu færi eftir því hvernig aðsókn yrði. Í blaðinu eru viðtöl við nokkur ungmenni og sagt frá ferð 9. bekkjar þann 27.febrúar að Laugum í Sælingsdal þar sem krakkarnir dvelja í viku og að þeirri dvöl lokinni fara þau á Samfés-ballið í Reykjavík ásamt krökkunum úr 10.bekk. Lesa meira
 
Halldóra og Guðbjörg í versluninni

Efnalaug Dóru 9 ára - 03.02.2005 Febrúar

Þann 11. janúar sl. voru níu ár frá því að Halldóra Ingólfsdóttir opnaði Efnalaug Dóru í bílskúr á Hlíðartúni 20. Ári seinna flutti Efnalaug Dóru í nýtt húsnæði á Hafnarbraut 34 og hefur starfsemin vaxið og dafnað vel þessi ár. Það var gott hljóðið í Dóru þegar hún var spurð hvernig henni gengi að reka efnalaug hér, sagði hún að það gengi vel, þetta gengi bara sinn vana gang og alltaf væri nóg að gera. Búið er að endurnýja tækjabúnaðinn og komin ný hreinsivél í stað þeirrar gömlu, og í vor fékk ég nýja strauvél sem bæði straujar og brýtur þvottinn saman. Þetta er alveg óskaplega mikill munur, bæði vinnusparnaður og svo hvað þvotturinn verður vel pressaður og fínn. Hægt er að strauja um 100 rúmföt í strauvélinni á klukkutíma og vélin skilar þvottinum snyrtilega samanbrotnum.. Dóra segist geta afgreitt þvegin og fullfrágengin rúmföt á 4-500 rúm á dag. Lesa meira
 
Nokkrir dagar eru síðan millilandaskip kom til Hafnar

Lögreglan liðsinnir Írönskum manni - 02.02.2005 Febrúar

Íranskur flóttamaður á fimmtugs aldri, leitaði ásjár lögreglunnar á Höfn seint í gærkvöldi. Sigurður Guðnason lögregluvarðstjóri segir þá hafa rekist á manninn þar sem hann var á gangi á Hafnarbrautinni. Maðurinn var peningalaus og aðeins með smávegis af fötum í poka og staðfest er að hann er með góð og gild skilríki frá sínu heimalandi . Hann segist hafa komið með skipi hingað og vera að flýja til Kanada en ekki hægt að fá nánari skýringu á ferðum hans. Sigurður telur ekki líklegt að maðurinn hafi komið með skipi til Hafnar því nokkrir dagar eru síðan skip var hér í höfninni, en Norröna kom til Seyðisfjarðar í gærmorgun og verður kannað hvort Íraninn hefur komið með henni og fengið bílfar til Hafnar. Lesa meira
 
Hrollaugstaðaskóli

Þorrablót í Suðursveit - 02.02.2005 Fréttir Þorrablót

Undirbúningur undir þorrablót í Suðursveit stendur nú sem hæst. Þorrablótsnefndin hefur haft mikið að gera og búist er við góðri þátttöku enda virðist veðurspáin fyrir helgina hagstæð. Þorrablótsnefndina skipa þetta árið Fjölnir og Þorbjörg á Hala, Böddi á Brunnavöllum, Reynir og Katrín á Hlíðabergi, Bogga á Tjörn og Kolbrún og Gísli Jónsson ( fyrrum Hnappavöllum) frá Höfn. Þykjast Suðursveitungar og Mýramenn góðir að hafa getað nappað í einn Öræfing austur yfir sandinn til að starfa með nefndinni, en vegna fólksfækkunar hefur verið leitað til brottfluttra Suðursveitunga um að taka þátt í undirbúningi þorrablóta á síðari árum og fylgdi Gísli því með sem viðhengi. Ekkert er gefið upp um efni skemmtidagskrár, en það er engin bölsýni í sveitafólkinu og vonandi eiga allir eftir að skemmta sér vel. Hljómsveitin Granít leikur fyrir dansi. Lesa meira
 
Hjördís og Katalin með samstarfsverkefni við ungverjaland

FAS í samstarf við skóla í Ungverjalandi - 02.02.2005 Febrúar

Um miðjan janúar sl. fóru fimm íslenskir kennarar á ráðstefnu sem varðar samstarf skóla, sem Evrópusambandið stóð fyrir í Brussel. Einn þessara kennara var Hjördís Skírnisdóttir í FAS. Hjördís segir að upphafið að þessu samstarfi megi rekja til þess að í byrjun desember var FAS boðin þátttaka í verkefni sem kallast eTwinning og Evrópusambandið stendur fyrir. Frá því í haust hefur Evrópusambandið unnið að nýrri áætlun sem lýtur að því að fá sem flesta skóla í álfunni til að vera virka í samstarfi og nota netið sem samstarfsvettvang. Sú samvinna getur verið á milli einstakra kennara en ekki síður á milli nemenda sem vilja fræðast um lítt þekkt lönd. Lesa meira
 
Útskrift úr reiðskólanum í fyrra. Hanní og nemendur hennar

Knapamerki. Nám í hestamennsku - 02.02.2005 Febrúar

Stigskipt nám í hestamennsku hefst í FAS 7. febrúar og verður boðið uppá 1. 2. og 3.stig. Einnig verður hægt að taka ½ námskeið í 1. og 2.stigi. |nl|Þetta er samskonar námskeið og FAS fór af stað með í fyrra nema að nú er búið að bæta 3.stiginu við segir Hanní Heiler sem kennir hestamennskuna og hefur veg og vanda af námskeiðinu. Um tuttugu manns voru á námskeiðinu í fyrra og mér sýnist á því sem komið er á skrá núna að þeir ætli að halda áfram. |nl| Þriðja stig námsins segir Hanní vera jafnlangt öðru stigi, en meira nám og þar bætist við tölt, stökk og vinna með hestinn með langan taum. Þessi kennsla er mikið háð veðri og vindum þar sem verklegi þáttur hennar fer fram úti og líklega verður verklega námið um helgar þar sem flestir nemendurnir eru í vinnu. Lesa meira
 
Við enda göngustígs að Skaftafellsjökli

Leiðsögumannanámskeið á Austur-og Suðausturlandi - 01.02.2005 Febrúar

Leiðsögumannanámskeið er nýhafið á Austurlandi.Þetta er þriðja námskeiðið sem haldið er í fjórðungnum. Námskeiðið er samstarfsverkefni framhaldsskólanna og Fræðslunetsins á Austurlandi og kennt samkvæmt námskrá Leiðsöguskólans. Kennsla fer fram gegnum fjarfundarbúnað og sitja nemendur í tímum á Hornafirði, Egilsstöðum, Neskaupsstað og Fáskrúðsfirði. Þetta er leiðsaga fyrir allt Austurland og er námið tvískipt, segir Eyjólfur Guðmundsson skólameistari í FAS, annarsvegar er grunnnám, síðan getur maður t.d farið út í sérhæfingu og sérhæft sig í áhættuleiðsögu. Það þýðir ferðaleiðsögu upp á jökla og fjöll, um árnar t.d. kajakasiglingar og ýmsar gönguferðir svo eitthvað sé nefnt. Þessi pakki sem við erum að bjóða upp á er 17 eininga grunn nám sem veitir nemendum réttindi í svæðisleiðsögn. Tveir Hornfirðingar eru á námskeiðinu en alls eru þar milli 20 -30 manns víðsvegar af Austurlandi. Lesa meira
 
Björn Arnarson safnvörður í heyskap við Gömlubúð

Aðsókn að starfsemi á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar árið 2004 - 01.02.2005 Febrúar

Aðsókn að starfsemi |nl|á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar árið 2004 |nl| |nl|Lokið er samantekt á aðsókn að þjónustu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar fyrir árið 2004. Samkvæmt þeirri samantekt er varlega áætlað að um eða yfir 50. þúsund manns hafi nýtt sér þjónustu og/eða starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar sl.ár sem er 24 föld íbúatala sveitarfélagsins. |nl|Gestir í Gömlubúð voru aðeins færri en 2003 en þá var metaðsókn, 4.143 gestir. |nl|Bókaútlán hafa aldrei verið meiri og voru þau samtals 32.525, en 2003 voru þau 32.204. Samkvæmt lista frá Menningarmiðstöðinni er sundurliðun á þjónustu hennar þessi: Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica