Ríki Vatnajökuls - Janúar
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
Dagþjónusta fatlaðra býður þjónustu fyrir öskudaginn
      <description>Það styttist í öskudaginn og allt það umstang sem honum fylgir. Eins og undanfarin ár býður dagvist fatlaðra fyrirtækjum á Höfn upp á að kaupa öskupoka eða pakka  sælgæti/dóti fyrir öskudaginn, sem er 9.febrúar.
|nl|Dagþjónustan býður uppá að pakka sælgæti og hlutum, sem fyrirtæki koma með, eða að kaupa það sjálf og pakka þeim inn fyrir fyrirtækin í samræmi við verðhugmyndir þeirra.
|nl|Verð fyrir hvern poka í pökkun er kr.25. og verð á öskupokum er kr. 50  fyrir stk.
|nl|Dagþjónusta  fatlaðra var opnuð í febrúar árið 2000 og er til húsa að Kirkjubraut 3. Er hún opin frá 10-16 á virkum dögum og 11-13 um helgar. Maren Sveinbjörnsdóttir er fulltrúi málefna fatlaðra í Hornafirði.
|nl|Þegar fréttamaður vefsins leit inn hjá þeim í dagþjónustunni  fyrir hádegið í dag var nóg að gera hjá þeim sem komnir voru, þar var verið að stimpla bréf, vefa mottu og prjóna og það var létt yfir mannskapnum. Það er heimilislegt og notalegt á þessum litla vinnustað í Sjallanum.</description>
Þorrablót Nesja-og Lónmanna hafa verið haldin í 50 ár.
      <description>Þorrablót Nesja-og Lónmanna var haldið í Mánagarði  í Nesjum í fimmtugasta sinn sl. laugardagskvöld. Um 200 manns sóttu blótið og þar á meðal þrír þeirra sem sáu um fyrsta þorrablótið fyrir 50 árum, það eru þau hjónin  Ingólfur og Ingibjörg í Grænahrauni og  Ásta Oddbergsdóttir frá Ási. 
|nl|Valgerður Egilsdóttir, ein þeirra 19 sem  voru í þorrablótsnefndinni 2005, segir að blótið hafi tekist alveg frábærlega vel og ekki annað að heyra en almenna ánægju blótsgesta. Þarna voru hefðbundin skemmtiatriði svo sem minni karla sem Kristín Benediktsdóttir flutti og Skarphéðinn Larssen talaði fyrir minni kvenna.
|nl|Kristín Benediktsdóttir var einnig með annál úr Lóni þar sem hún gerði mannlífinu þar, eins og það er í dag, góð skil. Annál fyrir Nesjasveit samdi nefndin og flutti. Vala sagði að þetta hafi verið léttur og skemmtilegur annáll þar sem efni hans var lesið, sungið og leikið og þar nutum við ómetanlegrar aðstoðar Jóhanns Moraveks. Við tókum þá fyrir sem eiga það skilið, sveitarstjórnina  og þá sem eru  áberandi í sveitarfélaginu. Það hefur vakið athygli að menn hafa verið að setjast að í sveitinni t.d. Ómar á Horni  er kominn aftur á æskustöðvarnar, svo er ekki aldeilis ónýtt fyrir okkur að hafa fengið bæði kaupfélagsstjórann og forseta bæjarstjórnarinnar hingað í Nesin. Eins finnst okkur nú allt vera á uppleið hérna hjá okkur og heilmikill uppgangur t.d. fóru bændur héðan vestur á firði, af öllum stöðum á Íslandi,  til að kynna sér nýjungar í mjólkurframleiðslu og svo eru menn alltaf að skoða þessa róbóta til að sjá um fjósverkin. Sitthvað fleira kom fram í annálnum.</description>
Ný skólanefnd í Framhaldsskólanum
      <description>Menntamálaráðherra hefur skipað nýja skólanefnd í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu fyrir næstu fjögur ár. Nefndina skipa;  Halldóra Bergljót Jónsdóttir, Þorgils Baldursson, Kjartan Hreinsson, Björk Pálsdóttir og Sigrún Kapitóla. Þær Björk og Sigrún eru tilnefndar af Sveitarfélaginu. Skólinn er alfarið á vegum ríkisins og því er það ráðherra sem skipar skólanefndina. Nefndin var kölluð saman á sinn fyrsta fund í síðustu viku og þar var Halldóra Bergljót kosinn formaður, einnig var farið yfir fjárhagsáætlun og hugað að þeim verkefnum sem fyrir höndum eru.</description>
Ánægð með söluna undanfarið
      <description>Nú þegar tími útsala stendur sem hæðst er tilvalið að spyrja frétta hjá einhverjum af verslunareigenda á staðnum um hvernig hafi gengið. Guðný  Helgadóttir í versluninni Lóninu segir að útsalan gangi mjög vel. Guðný er ánægð með söluna fyrir jólin og segir hún hana svipaða og fyrir jólin í fyrra. Guðný er með tískufatnað á dömur og herra ásamt tilheyrandi skarti. Hún segir að vinsælustu kvenfötin  í ár séu pils, stutt og síð, einnig toppar við þau ásamt skartgripum og þessháttar fylgihlutum. Um mánaðarmótin fer hún á sýningu á vetrarfatnaði og gerir pantanir  fyrir næsta vetur. Búið er að gera innkaup fyrir allt sumarið og sá fatnaður fer að koma. Danskur fatnaður, konulínan, er langvinsælastur og unglingalínan er vinsælust frá Bretlandi og París.</description>
Jökulhlaup í Skeiðarárjökli, hvað er jökulhlaup?
      <description>Síðastliðinn sunnudag fór Ragnar Frank Þjóðgarðsvörður í Skaftafelli upp á Skeiðarárjökul ásamt Matthew Roberts, jöklafræðingi hjá Veðurstofu Íslands. Markmiðið með ferð þeirra var að setja nýjan minniskubb í GPS staðsetningartæki sem er á Skeiðarárjökli skammt frá jökulsporði og Jökulfelli. Vísindamenn frá Veðurstofunni og Raunvísindadeild Háskóla Íslands hafa frá því í október fylgst með framskriði jökulsins. Nú hafa rannsóknir leitt í ljós að Jökulhlaup varð í Skeiðarárjökli í tengslum við Skeiðarárhlaupið í nóvember 2004. Jökullinn "hljóp" um 4 metra og lyftist um tvo metra í Skeiðárhlaupinu. Ragnar segir mælitækið vera mjög nákvæmt og gefur það upplýsingar um hvern cm. á skrið og nákvæmnin er 5 cm. í plús eða mínus með hæðina.</description>
Samningur um að golfklúbbarnir spili frítt hvor hjá öðrum.
      <description>Golfklúbbur Hornafjarðar hefur gert samning við Golfklúbbinn í Mosfellsbæ um að þeir spili frítt hvor hjá öðrum.Við erum mjög ánægð með þetta samkomulag segir Guðný Helgadóttir formaður Golfklúbbs Hornafjarðar, þetta er alveg bónus fyrir okkur því það er svo dýrt að fara á vellina í bænum. Samningurinn hljóðar upp á  að við megum fara á völlinn hjá þeim fyrir kl 16 virka daga og eftir kl 14 um helgar. Hjá okkur eru engin tímatakmörk, þeir mega koma á völlinn til okkar hvenær sem er, það er alltaf nóg pláss á vellinum hér. Guðný segir að lítið sé um að vera hjá golfurum hér núna og verði það fram í apríl en þá verður byrjað á fullu. Við verðum með golfnámskeið fyrir börn og unglinga í sumar og  hvetjum sem flesta að koma og kynna sér þessa hollu og skemmtilegu íþrótt.</description>
Einstakur árangur í meistaraprófsritgerð
      <description>Fréttir bárust frá skrifstofum Kaupfélagsins af einstökum árangri fyrrverandi fjármálstjóra, Guðmundi V. Friðjónssyni, í meistaraprófsritgerð frá Viðskiptaháskólanum í Árósum. Guðmundur varði ritgerð sína í síðustu viku í Árósum og náði þeim einstaka árangri að fá einkunnina 13, sem er hæsta einkunn sem gefin er á dönskum skala. Guðmundur undirbýr nú ritgerðina til fjölföldunar þar sem hann ætlar að leita eftir styrkjum í verkið og hafa prófessorarnir við alþjóðadeild Viðskiptaháskólans í Árósum hvatt hann til frekari umfjöllunar og útgáfu. Efnið er mjög mikið í umræðunni á öllum norðurlöndunum vegna hugsanlegrar aðildar Íslands og Noregs að Evrópusambandinu og Danmerkur og Svíþjóðar að Evrusvæðinu.</description>
Með hæstu meðalafurði yfir landið af kúm sínum
      <description>Kúabændur í Austur-Skaftafellsýslu voru sl.ár með hæstu meðalafurði yfir landið af kúm sínum og er meðalafurð eftir kú  5.595 kg af mjólk. Árið 2004 var nýtt metár í framleiðslu hjá íslenskum kúm og voru meðalafurðir 5.229 kg af mjólk á kú. Grétar Sigursteinsson starfsmaður Búnaðarsambandsins segir að mjólkurhæsta kýrin  í sýslunni  hafi mjólkað um 10 þúsund lítrum árið 2004 og  yfir landið hafi  þrjár kýr verið með yfir 12 þúsund tonn af mjólk. Stærsta kúabúið í sýslunni er á Seljavöllum og svo koma búin í Einholti,  Lækjarhúsum og á Hala. Grétar segir að í sýslunni  séu 13 kúabændur á skrá  hjá Búnaðarsambandinu.</description>
Fas fær styrk til námsefnisgerðar
      <description>Bókin "Frumkvöðlafræði, Að stofna og reka lítil fyrirtæki" er komin út. Þetta er verkefni sem Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu vann að á síðasta ári þ.e. undirbúningsvinnu við þýðingu og prentun  bókarinnar. Frumkvöðlafræðslan stendur að útgáfunni en Iðnú gefur hana út. Bókin er ætluð til notkunar í framhaldsskólum og er þýðing og staðfærsla á bandarískri bók. FAS sótti í fyrra um styrk úr sjóði sem ætlaður er til eflingar starfsmenntunar á landsbyggðinni og fékk tveggja mkr.styrk  sem ætlaður var til tveggja verkefna, þ.e. bókin ,, Að stofna og reka lítil fyrirtæki,’’ sem nú er komin út og hitt verkefnið var námsefni fyrir skipstjórnarnám en það er vinna sem stöðugt er í gangi segir Eyjólfur Guðmundsson skólameistari.</description>
      <alt>Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu</alt>
Svínabúskapurinn bindandi en mjög skemmtilegt starf
      <description>Tvö svínabú eru í Austur-Skaftafellssýslu, annað á Nýpugörðum á Mýrum og Miðskeri í Nesjum sem bæði þjóna sínu heimahéraði vel með sölu á úrvals svínakjöti, allt eftir óskum viðskiptavinarins. Þar sem svín eru ekki algengur bústofn er ekki úr vegi að kynnast aðeins hvernig er að umgangast þessar skepnur sem oft eru nefndar í neikvæðri merkingu. Algengt er orðatiltækið ,,að svína allt út’’ og vera eins og svín, í þeirri merkingu að vera subbulegur. Þetta segja svínabændur vera algjör öfugmæli því svín séu virkilega hreinlegar skepnur. Fréttaritari vefsins brá sér í heimsókn til þeirra Pálínu og Sævars Kristins á Miðskeri sem stundað hafa svínarækt í tíu ár. Pálína var að taka til kvöldmatinn handa svínunum sem greinilega voru orðin óþolinmóð og létu vel í sér heyra. Þarna voru margar stíur fullar af fjörlegum, tandurhreinum grísum af ýmsum stærðum, virkilega fallegir. Ekki er hægt að nota orðið fallegur um fullorðnu svínin en þau voru hrein, snyrtileg og vinaleg.</description>
Unnið dag og nótt hjá Skinney Þinganes
      <description>Nýliðin síldarvertíð er ein sú besta hjá Skinney Þinganesi segir Hermann Stefánsson framleiðslustjóri. Á vertíðinni voru alls fryst átta þúsund tonn af síld og smávegis var saltað fyrir innanlandsmarkað. Loðnufrysting gengur vel og er unnið dag og nótt. Skinney Þinganes gerir út tvö loðnuskip, Ásgrím Halldórsson og Jónu Eðvalds. Ásgrímur Halldórsson landaði 770 tonnum af loðnu í gær og Jóna Eðvalds er á veiðum. Um helgina var unnið við útskipun á frystri loðnu í flutningaskipið Silversea</description>
Nýtt efni sem tengt er Suðursveit og Þórbergssetri
      <description>Í byrjun nýs árs er ástæða til að vekja athygli  á Þórbergsvefnum, thorbergur.is, sem er skaftfellskur vefur um Þórberg Þórðarson, Þórbergssetur og Suðursveit. Vefurinn hefur verið settur upp að nýju og alltaf er að berast inn á vefinn nýtt efni sem tengt er Suðursveit og Þórbergssetri. Á hverjum degi er fært inn í dagbók,  bæði veðurlýsingar, en einnig það helsta sem er á döfinni hjá Þórbergssetri.  Fyrirhugað er að vera með lýsingar á eftirtektarverðum stöðum í nágrenni Hala og er fyrsta greinin komin inn á vefinn þar sem fjallað er um mosa og fléttur á Kvennaskálasteininum. Á næstunni verður fjallað um fjalhöggin í Hvannadal og reynihrísluna á Reynivöllum svo eitthvað sé nefnt. Tilvitnun mánaðarins er alltaf á sínum stað, en þar eru það þjóðfrægir menn sem eru með tilvitnun í bækur Þórbergs og persónulegar frásögur tengdar tilvitnuninni. Fyrir jólin var birt skemmtilegt viðtal við Sigurð Þorsteinsson frá Reynivöllum um jólahald á Hringbraut 45 og um áramótin var birt dagbókarbrot Þórbergs frá árinu 1935 . Ýmislegt annað bíður þess að koma fyrir almenningssjónir svo sem brot úr bréfi Önnu Benediktsdóttur móður Þórbergs frá árinu 1915, sem birtast mun á næstunni og ýmislegt fleira. Þeir sem áhuga hafa á að fylgjast með Þórbergsvefnum geta skráð sig á póstlistann thorbergur.is, en skilaboð eru send inn á listann í hvert sinn sem nýtt efni berst inn á vefinn.</description>
Mikil hálka á götum og gangstéttum
      <description>Nú vonandi sér fyrir endann á hálkunni sem hefur verið á götum og gangstéttum á Höfn síðan fyrir jól. Samkvæmt Veðurstofunni þá eru veðurhorfur næsta sólarhring: Austan 15-20 m/s, og talsverð rigning en reiknað með að það lægi þegar líður á daginn. Suðvestan 5-13 m/s í kvöld og nótt og síðan áfram rigning. Hitastigið verður 0 til 7 stig. Götur og gangstéttir hafa verið nánast ófærar og hættulegar vegna hálkunnar á Höfn. Samkvæmt upplýsingum frá Helga Má Pálssyni bæjarverkfræðingi er það Áhaldahús bæjarins sem sér almennt um hálkueyðingu og snjómokstur í sveitarfélaginu. Á árinu 2004 var kostnaður vegna þessa málaflokks rúmar 2,0 mkr. og árið þar á undan 3,1 mkr. Í ár er áætlað að nota 2,0 mkr. Verkstjóri áhaldahúss eða yfirmenn hans meta aðstæður hverju sinni og ráða aðra verktaka eftir þörfum.</description>
Starfsmat hjá Sveitarfélaginu Hornafirði á næstu dögum
      <description>Í síðustu kjarasamningum Sveitarfélaganna var gert ráð fyrir að vinna upp starfsmat  á samningstímanum  en hann er að renna út í lok apríl nk. Vinnu Starfsgreinasambandsins með Launanefnd sveitarfélaga við að tengja starfsmat, samkvæmt ákvæðum kjarasamnings við sveitarfélögin, við launatöflu samningsaðila  er lokið. Fulltrúar Vökuls sóttu kynningu SGS og hafa í framhaldinu sett sig í samband við launafulltrúa þeirra sveitarfélaga sem eru á félagssvæðinu og munu ásamt þeim fara í þá vinnu sem þarf til að endurraða starfsmönnum inn í launatöfluna í samræmi við starfsmatið. Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður Vökuls segir að farið verði í starfsmat hjá Sveitarfélaginu Hornafirði á næstu dögum. Fundur verður haldinn með starfsmönnunum til að útskýra starfsmatið en það nær til rúmlega 100 manns.</description>
Akraskjanni var að flögra um inni í stofunni
      <description>Óvenjulegt fiðrildi fannst í húsi hér á Höfn 8. janúar sl. Fiðrildi þetta heitir Akraskjanni (Pieris rapae) og er talið mjög líklegt að það hafi komið með Nomannsþins-jólatré frá Danmörku og er Erling Ólafsson á Náttúrufræðistofnun nýlega búinn að fá tvö svona fiðrildi til sín. Fiðrildið, sem er um 3 cm. á lengd, var að flögra um inni í stofunni við jólatréð þegar það fannst og virtist una sér vel segir Björn Arnarson. Hann segir að ekki hafi orðið vart neinna annarra svona óvenjulegra gesta eða sjaldséðra fugla það sem af er vetri, bara þessir venjulegu.</description>
      <alt>Akraskjanni (Pieris rapae)</alt>
BSSL tekur við leiðbeiningaþjónustu í A-Skaft.
      <description>Í síðustu viku undirrituðu stjórnir Búnaðarsambands Austur-Skaftfellinga (BASK) og Búnaðarsambands Suðurlands (BSSL) samning sem felur í sér að hið síðar nefnda tekur að sér leiðbeiningaþjónustu í Austur-Skaftfellssýslu ásamt þeim skyldum sem felast í búnaðarlagasamningi frá og með 1. janúar 2005. Ekki er stefnt neinum stórvægilegum breytingum og áfram mun verða rekin skrifstofa á Höfn í Hornafirði þar sem starfsmaður verður staðsettur og mun hann einkum sinna úttektum, bókhaldi, forðagæslu ásamt öðrum verkefnum. Mestallri faglegri ráðgjöf mun verða sinnt frá starfsstöðvum BSSL sem staðsettar eru á Selfossi, Hvolsvelli og Kirkjubæjarklaustri og verður leitast við að veita sömu þjónustu og nú er veitt hjá BSSL.</description>
Vökull í samstarfi við Fræðslunetið
      <description>Menntasmiðjan var sett sl. fimmtudag og hófst fyrsta námskeiðið í gærkvöldi. Það er Vökull Stéttarfélag sem stendur að námskeiðum Menntasmiðjunnar. Námskeiðin sem boðið er uppá eru; tölvunámskeið fyrir byrjendur og fyrir vefinn, Austurlensk matargerð, sjálfsefling, glerskurður, enska og skyndihjálp. Þessi námskeið eru einnig  í boði á  Djúpavogi, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði en það lítur út fyrir að þar verði einungis tölvunámskeið haldin vegna ónógrar þátttöku segir Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður Vökuls. Við erum í samstarfi við Fræðslunetið og er Emil Björnsson hjá Fræðslunetinu eini utanaðkomandi kennarinn á þessum námskeiðum hér á Höfn.</description>
Guðrúnu Ingólfsdóttur færður þakklætisvottur
      <description>Í gærkvöldi  komu saman á Hótel Höfn, tuttugu og tvær eldhressar húsmæður sem stundað hafa heilsurækt í Orkuverinu frá opnun þess og allt þar til því var lokað fyrir einu ári. Orkuverið hafði þá verið starfandi í tæp tuttugu ár. Ástæðan fyrir þessu móti okkar var að færa Guðrúnu Ingólfsdóttur smá þakklætisvott fyrir að halda okkur sprækum í gegnum árin með líkamsræktinni í Orkuverinu sagði Ólafía Gísladóttir. Þegar loka átti Orkuverinu  2002 ákváðum við að kveðja Guðrúnu með pomp og prakt og fengum listakonuna Nanný til að gera forláta skál  og einnig fengum við Guðbjart Össurarson til að gera tvær vísur. Þar sem Orkuverið hélt svo áfram starfsemi sagði Ólafía að dregist hefði að afhenda skálina  þar til í gærkvöldi. Eftir lokun Orkuversins fluttu flestar konurnar sig  yfir í Sporthöllina og hafa haldið líkamsræktinni áfram.</description>
Mikil flugumferð yfir suðausturlandi
      <description>Hver veltir ekki fyrir sér þegar litið er til himins og horft er á þoturnar fljúga yfir hvert þær sér að fara. Þoturnar skilja oft eftir sig falleg munstur í himininn, sérstakalega þegar er heiðskýrt og kalt eins og búið er að vera undanfarna daga. Á miðvikudag um hádegisbilið var sérstaklega mikil umferð í loftinu, þar komu þoturnar hver á fætur annarri. Að sögn Guðmundar Hafliða Guðmundssonar flugumsjónarmanns á Hornafjarðarflugvelli er búið að vera talsverð flugumferð um svæðið hér yfir suðausturlandið undanfarið og eru það þotur á leið sinni milli Evrópu og Ameríku. Flughæð þeirra er í 30 þúsund fetum eða hærra.</description>
Þrettándabrennan í Nesjum
      <description>Þrettándabrenna Ungmennafélagsins Mána var haldin inn við Stekkhól í Nesjum í gærkvöldi.   Eins og undan farin ár var það UMF Máni sem stóð að brennunni. Margir lögðu leið sína inn að Stekkhól til að njóta brennunnar og var veðrið hið besta, smá gola og rétt yfir frostmarki. Ekki var flugeldasýning að þessu sinni en greinilegt var að margir höfðu geymt eitthvað af flugeldunum frá því á gamlárskvöldi og sendu þá á loft á þrettándanum. Einnig var flugeldasala Björgunarfélagsins opin í gær eins og undanfarin ár.</description>
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2005
      <description>Fjárhagsáætlun Hornafjarðar fyrir árið 2005 var samþykkt við 2. umræðu 22. desember sl. Þar er launakostnaður afgerandi útgjaldaþáttur  í áætluninni með um 68% af skatttekjum og fræðslu og uppeldismál vega þyngst með um 60% af skatttekjum.  Heildarvelta bæjarsjóðs, stofnana og fyrirtækja bæjarins (Heilbrigðistofnunar Suðausturlands, Hornafjarðarhafnar, vatnsveitunnar og húsnæðiskerfisins) verður um 1,7 milljarður 
|nl|</description>
Næsti skáli verðu steyptur eftir helgina
      <description>Framkvæmdir í Almannaskarði eru nú að skríða í gang eftir áramótin segir Björn Harðarson.
|nl|Norðmennirnir og starfsmenn Héraðsverks fóru til síns heima yfir jól og voru í fríi framyfir áramót.  Norðmennirnir komu frá Noregi í gær og eru byrjaðir að vinna við vatns- og frostklæðningu í göngunum.
Starfsmenn G. Þorsteinssonar ehf. steyptu fyrsta skálann af sex við göngin að sunnanverðu milli jóla og nýjárs og búið er að steypa helminginn af sökklunum. Geir Þorsteinsson segir að þeir þurfi viku til að undirbúa næstu steypu og næsti skáli verði steyptur eftir helgina verði ekki frost. Steypuvinnu er lokið við vegskálann að norðan, aðeins eftir að ,,fínisera” þetta  og tengja  skálann við bergið með sprautusteypu.</description>
Ásgrímur Halldórsson er á  leið til Hornafjarðar með 700 tonn
      <description>Loðnuveiðiskipið Ásgrímur Halldórsson er á  leið til Hornafjarðar með 700 tonn af loðnu sem veiddist austan við Kolbeinsey. Um tuttugu tíma sigling er af veiðisvæðinu og  verður skipið væntanlega komið að Hornafjarðarós um hádegi á morgun og kemst inn um kl 14.30. Sverrir Aðalsteinsson hjá Skinney Þinganesi segir allt tilbúið fyrir vinnslu á loðnunni  en  ekki komi í ljós fyrr en loðnan er komin á staðinn hvernig hún verði unnin. Sverrir á ekki von á að þá vanti mannskap í loðnuvinnsluna umfram það sem til staðar er. Það er af sem áður var þegar fjölda fólks þurfti í loðnuvinnsluna, núna þarf tiltölulega fátt fólk, nú eru það vélarnar sem  sjá um flokkun, pökkun og flest það sem tilheyrir vinnsluferlinu.</description>
Hreindýrin geta verið hættuleg akandi vegfarendum
      <description>Hreindýrahópar hafa undanfarið verið nágrenni Hafnar og í Lóninu. Ekki eru allir hrifnir af komu þessara dýra en óneitanlega eru þau falleg og tignarleg. Rán Þórarinsdóttir hjá Náttúrustofu Austurlanda segir ekki sé komin vetrartalning á þessu ári yfir dýrin sem halda sig í Austur-Skaftafellssýslu en hún taldi í sumar 246 dýr í Nesjum og 21 á Mýrum.  Í mars 2002 voru talin 162 dýr í Lóni, 76 í Nesjum, 56 á Mýrum og 55 í Suðursveit. Hreindýrin hafa ekki síður en hestarnir verið hættuleg akandi vegfarendum og nokkur tilfelli eru um að þau hafi lent fyrir bíla. Dýrin eru friðuð á þessum tíma og næsta veiðitímabil ekki fyrr en í ágúst nk.</description>
Afla- og fiskifréttir í byrjun ársins
      <description>Skip Skinneyjar Þinganes, Ásgrímur Halldórsson er farinn til loðnuveiða og Jóna Eðvalds til loðnuleitar ásamt átta öðrum skipum. Leitað verður bæði á austur- og vestursvæðinu. Veður er enn afleitt á miðunum og lítil von um að gefi til veiða næstu daga. Sverrir Aðalsteinsson hjá Skinney Þinganesi sagði að línu og netabátar útgerðarinnar færu til veiða strax og fært yrði. Eftir einstaklega góða síldarvertíð snúa menn sér nú að saltfiskinum aftur en mjög rólegt hefur verið í fiskvinnslu undanfarið þar sem ekki hefur gefið á sjó nokkuð lengi.</description>
Ekkert ferðaveður á Suðausturlandinu
      <description>Leiðindaveður hefur verið á Suðausturlandinu í dag og ekkert ferðaveður. Í Freysnesi er asahláka og 9 stiga hiti og 9,9 í Skaftafelli. Anna María Ragnarsdóttir sagði að einhver umferð væri búin að vera í dag en flughálka væri víða. Mjólkurbíllinn sem væntanlegur var að sunnan um hádegi var ekki kominn um kl.15:30, hefur gengið seint vegna mikillar hálku og hvassviðris. Við Sandfell hefur vindhraðinn farið í 42 metra í mestu rokunum. Jón Bjarnason hjá Vegagerðinni segir að ekki sé snjór til fyrirstöðu á vegum milli Öræfa og Hafnar það sé bara rokið og hálkan sem getur sett ferðaáætlunina úr skorðum. Margir munu hafa ætlað akandi til Reykjavíkur í dag einkum skólafólk sem kom heim í jólafrí en hættu við vegna veðursins og hefur.
|nl|</description>
Nýársferð Jeppaeiganda á Hornafirði
      <description>Margir jeppaeigendur tóku sig saman og héldu í jeppaferð í veðurblíðunni sem var í gær, enda kalt í veðri og ísarnir góðir til að keyra á. Lagt var af stað um eitt leitið og var farið niður með  flugvellinum yfir Hoffelsá og út í Skógey, þaðan yfir Hornafjarðarfljótin og vestur yfir Tjörn. Þar var stefnt í hásuður til Þinghóla og haldið út í Staðarey. Ferðalangarnir keyrðu síðan með vesturfjörunum að ósnum þar sem Kolgríma rennur út í og upp að Smyrlabjörgum. Alls voru þetta 19 jeppar og sá síðasti bættist við hjá Smyrlabjörgum. Á leiðinni var stoppað á nokkrum stöðum, teknar myndir og farið á skauta. Að sögn Huga Einarssonar þá var ferðin mjög vel lukkuð, hitastigið rokkaði frá mínus 5-9 gráður og allsstaðar gott hald á ísnum.</description>
Áramótin á Hornafirði
      <description>Áramótin fóru mjög vel fram á Hornafirði og þrátt fyrir miklar veðurhrakspár þeirra veðurstofumanna viðraði þokkalega vel á gamlaárskvöldinu og stóðust allar áætlanir um skemmtanir kvöldsins og kveikt var í brennunni á réttum tíma. Lítið varð vart við flugelda eða annað slíkt meðan áramótaskaup sjónvarpsins stóð yfir en um leið og því lauk byrjaði flugeldaskothríðin af fullum krafti með tilheyrandi hávaða og skrautlýsingu. Flugeldaskotum virðist fjölga um hver áramót og því sem skotið er upp er stærra og tilkomumeira en var um síðustu áramót. Lögreglan á Höfn er ánægð með hegðun bæjarbúa um áramótin og segir að allt hafi farið vel fram og engin vandamál komið upp.</description>