Dagþjónusta fatlaðra býður þjónustu fyrir öskudaginn
Það styttist í öskudaginn og allt það umstang sem honum fylgir. Eins og undanfarin ár býður dagvist fatlaðra fyrirtækjum á Höfn upp á að kaupa öskupoka eða pakka sælgæti/dóti fyrir öskudaginn, sem er 9.febrúar.
Dagþjónustan býður uppá að pakka sælgæti og hlutum, sem fyrirtæki koma með, eða að kaupa það sjálf og pakka þeim inn fyrir fyrirtækin í samræmi við verðhugmyndir þeirra.
Verð fyrir hvern poka í pökkun er kr.25. og verð á öskupokum er kr. 50 fyrir stk.
Dagþjónusta fatlaðra var opnuð í febrúar árið 2000 og er til húsa að Kirkjubraut 3. Er hún opin frá 10-16 á virkum dögum og 11-13 um helgar. Maren Sveinbjörnsdóttir er fulltrúi málefna fatlaðra í Hornafirði.
Þegar fréttamaður vefsins leit inn hjá þeim í dagþjónustunni fyrir hádegið í dag var nóg að gera hjá þeim sem komnir voru, þar var verið að stimpla bréf, vefa mottu og prjóna og það var létt yfir mannskapnum. Það er heimilislegt og notalegt á þessum litla vinnustað í Sjallanum.
Þar eru unnin ýmis verkefni sem greitt er fyrir s.s. pökkun á Eystra Horni, brot á gönguleiðakortum, pökkun fyrir öskudaginn, innpökun á jólagjöfum fyrir fyrirtæki , pökkun á gíróseðlum og stimplun umslaga fyrir sveitarfélagið. Fyrir þá peninga sem fást fyrir þessa vinnu eru greiddar niður ein til tvær skemmtiferðir á ári. Höfum til dæmis farið á Jökulsárlónið , til Djúpavogs, haldið þorrablót ofl.
Mest er þó um það að þeir sem í dagþjónustuna koma sinni eigin hannyrðum og um leið fæst félagsskapur við annað fólk. Það er því alltaf til sölu ýmiss varningur hjá okkur, s.s. púðar, mottur, húfur og treflar.
Þeir sem í dagþjónustuna koma geta keypt sér heitan hádegismat sem kemur frá eldhúsi HSSA.
Dagþjónustan rekur bíl fyrir ferðaþjónustu fatlaðra . Starfsfólk sækir fólk heim og ekur því meðal annars til læknis, sjúkraþjálfara, í verslanir og í ýmsar aðrar útréttingar.
Út frá dagþjónustunni sinnir starfsfólk einnig frekari liðveislu í heimahúsum á virkum dögum frá 8.30- 21 og um helgar frá 10-17. Starfsmenn eru samtals 8 í rúmlega 4 stöðugildum.





Skrifa athugasemd