Ánægð með söluna undanfarið
Nú þegar tími útsala stendur sem hæðst er tilvalið að spyrja frétta hjá einhverjum af verslunareigenda á staðnum um hvernig hafi gengið. Guðný Helgadóttir í versluninni Lóninu segir að útsalan gangi mjög vel. Guðný er ánægð með söluna fyrir jólin og segir hún hana svipaða og fyrir jólin í fyrra. Guðný er með tískufatnað á dömur og herra ásamt tilheyrandi skarti. Hún segir að vinsælustu kvenfötin í ár séu pils, stutt og síð, einnig toppar við þau ásamt skartgripum og þessháttar fylgihlutum. Um mánaðarmótin fer hún á sýningu á vetrarfatnaði og gerir pantanir fyrir næsta vetur. Búið er að gera innkaup fyrir allt sumarið og sá fatnaður fer að koma. Danskur fatnaður, konulínan, er langvinsælastur og unglingalínan er vinsælust frá Bretlandi og París.
Eins og margir hafa tekið eftir er verslunin Lónið til sölu og þá er spurningin; af hverju er Guðný að hætta; Guðný segist hætta ef hún geti selt annars er hún ekki að hætta. Hún segist ekki hafa tekið neina ákvörðun um hvað hún taki sér fyrir hendur ef búðin selst en eitt sé víst, hún sé ekki að fara burt og að húsið hennar sé ekki til sölu- það stendur ekki til.





Skrifa athugasemd