Janúar
Ragnar Frank við staðsetningartækið sem er á Skeiðarárjökli
Ragnar Frank við staðsetningartækið sem er á Skeiðarárjökli
Ragnar Frank við staðsetningartækið sem er á Skeiðarárjökli (@RFrank)
Mynd 1 af 3
1 2 3

26.01.2005 Janúar

Jökulhlaup í Skeiðarárjökli, hvað er jökulhlaup?

Síðastliðinn sunnudag fór Ragnar Frank Þjóðgarðsvörður í Skaftafelli upp á Skeiðarárjökul ásamt Matthew Roberts, jöklafræðingi hjá Veðurstofu Íslands. Markmiðið með ferð þeirra var að setja nýjan minniskubb í GPS staðsetningartæki sem er á Skeiðarárjökli skammt frá jökulsporði og Jökulfelli. Vísindamenn frá Veðurstofunni og Raunvísindadeild Háskóla Íslands hafa frá því í október fylgst með framskriði jökulsins. Nú hafa rannsóknir leitt í ljós að Jökulhlaup varð í Skeiðarárjökli í tengslum við Skeiðarárhlaupið í nóvember 2004. Jökullinn "hljóp" um 4 metra og lyftist um tvo metra í Skeiðárhlaupinu. Ragnar segir mælitækið vera mjög nákvæmt og gefur það upplýsingar um hvern cm. á skrið og nákvæmnin er 5 cm. í plús eða mínus með hæðina.

Frá því að tækinu var komið fyrir á jöklinum í okt.sl hefur Jökulinn færst fram um eina 17 metra. Þetta er í fyrsta sinn sem tekist hefur að staðfesta orðróm íbúa í Skaftafelli um að jökullinn lyftist og hreyfist fram í tengslum við Skeiðarárhlaup. Þegar hlaupið kom í nóvember var alveg samnefnari við tæki undir Skeiðarárbrú sem mældi leiðni í ánni og hvað það hækkar í ánni, við skreiðsvarann á jöklinum og við hvað mikið vatnsmagnið jókst. Þetta er í fyrsta sinn sem menn hafa fengið svona rannsóknar niðurstöðu á þessu fyrirbæri Stefnt er á að koma upp fræðsluefni um náttúrufyrirbærið Skeiðarárhlaup og ?Hvað er Jökulhlaup" næsta sumar í Skaftafellsstofu.

GPS-tækið verður tekið niður af Skeiðarárjökli í lok febrúar nk.og er hugmyndin að setja það upp á Mýrdalsjökli segir Ragnar.Þetta er hluti af þessum rannsóknum sem nýtast sem fyrirvari um hlaup. Tækið á að geta sagt örugglega til um hlaup því það skynjar allar hreyfingar í jöklinum og með því gefst smá tími ef t.d. þarf að rýma svæði, senda út aðvaranir eða annað slíkt. Þegar hlaup verða í Grímsvötnum tekur það hlaupið níu klst. að ná niður í byggð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica