Samningur um að golfklúbbarnir spili frítt hvor hjá öðrum.
Golfklúbbur Hornafjarðar hefur gert samning við Golfklúbbinn í Mosfellsbæ um að þeir spili frítt hvor hjá öðrum.Við erum mjög ánægð með þetta samkomulag segir Guðný Helgadóttir formaður Golfklúbbs Hornafjarðar, þetta er alveg bónus fyrir okkur því það er svo dýrt að fara á vellina í bænum. Samningurinn hljóðar upp á að við megum fara á völlinn hjá þeim fyrir kl 16 virka daga og eftir kl 14 um helgar. Hjá okkur eru engin tímatakmörk, þeir mega koma á völlinn til okkar hvenær sem er, það er alltaf nóg pláss á vellinum hér. Guðný segir að lítið sé um að vera hjá golfurum hér núna og verði það fram í apríl en þá verður byrjað á fullu. Við verðum með golfnámskeið fyrir börn og unglinga í sumar og hvetjum sem flesta að koma og kynna sér þessa hollu og skemmtilegu íþrótt.
Haldið verður áfram með nýja golfvöllinn, sem er viðbót við þann sem fyrir er, og vonandi verður lokið við hann í sumar segir Guðný, en ekki er þó víst að hægt verði að nota hann á þessu sumri því það tekur tíma að græða hann upp. Nýi völlurinn verður mjög skemmtilegur og segir Guðný að með þessari stækkun verði nægilegt pláss fyrir alla sem sækja völlinn. Um hundrað manns er í Golfklúbbi Hornafjarðar.





Skrifa athugasemd