Janúar
Yrsa Ír skoðar kýrnar í Grænahrauni
Yrsa Ír skoðar kýrnar í Grænahrauni
Yrsa Ír skoðar kýrnar í Grænahrauni, betra að passa puttana (úr myndasafni)
Mynd 1 af 2
1 2

23.01.2005 Janúar

Með hæstu meðalafurði yfir landið af kúm sínum

Kúabændur í Austur-Skaftafellsýslu voru sl.ár með hæstu meðalafurði yfir landið af kúm sínum og er meðalafurð eftir kú 5.595 kg af mjólk. Árið 2004 var nýtt metár í framleiðslu hjá íslenskum kúm og voru meðalafurðir 5.229 kg af mjólk á kú. Grétar Sigursteinsson starfsmaður Búnaðarsambandsins segir að mjólkurhæsta kýrin í sýslunni hafi mjólkað um 10 þúsund lítrum árið 2004 og yfir landið hafi þrjár kýr verið með yfir 12 þúsund tonn af mjólk. Stærsta kúabúið í sýslunni er á Seljavöllum og svo koma búin í Einholti, Lækjarhúsum og á Hala. Grétar segir að í sýslunni séu 13 kúabændur á skrá hjá Búnaðarsambandinu.

Grétar segir afurðaþróun talsvert breytilega eftir landsvæðum og að afurðir sunnlenskra kúa séu áberandi meiri en á öðrum landsvæðum. Ekki eru allir bændur hér í sýslunni með skýrsluhald hjá okkur en yfir landið hefur fjölgað skýrslufærðum kúm og nýir skýrsluhaldarar komið til starfsins á sl. ári. Búum á landinu sem eru í mjólkurframleiðslu heldur áfram að fækka og önnur sem fyrir eru stækka og Grétar á von á að svo verði einnig í Austur-Skaftafellssýslu. og að sá mjólkurkvóti sem er á svæðinu haldist óbreyttur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica