Janúar
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu

20.01.2005 Janúar

Fas fær styrk til námsefnisgerðar

Bókin "Frumkvöðlafræði, Að stofna og reka lítil fyrirtæki" er komin út. Þetta er verkefni sem Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu vann að á síðasta ári þ.e. undirbúningsvinnu við þýðingu og prentun bókarinnar. Frumkvöðlafræðslan stendur að útgáfunni en Iðnú gefur hana út. Bókin er ætluð til notkunar í framhaldsskólum og er þýðing og staðfærsla á bandarískri bók. FAS sótti í fyrra um styrk úr sjóði sem ætlaður er til eflingar starfsmenntunar á landsbyggðinni og fékk tveggja mkr. styrk sem ætlaður var til tveggja verkefna, þ.e. bókin "Að stofna og reka lítil fyrirtæki," sem nú er komin út og hitt verkefnið var námsefni fyrir skipstjórnarnám en það er vinna sem stöðugt er í gangi segir Eyjólfur Guðmundsson skólameistari.

FAS sótti aftur um styrk úr sama sjóði og nýlega barst skólanum bréf frá Menntamálaráðuneytinu þar sem tilkynnt var um styrkveitingu til skólans að upphæð kr. 1.200.000 til námsefnisgerðar í frumkvöðlafræði fyrir símenntunarkerfið.
Þetta er eitthvað sem við viljum gera næst og það verður gert í samvinnu við frumkvöðlafræðsluna hér í Nýheimum þar sem Ágúst Pétursson er í forsvari, segir Eyjólfur. Nú þegar við erum búin að fá þessar upplýsingar um að við fáum þennan styrk, þá skoðum við hvernig við eigum að vinna þetta. Eitt af því við munum væntanlega leggja áherslu á, sem er öðruvísi en var með bókina, er að gera þetta námsefni aðgengilegt á vefnum.

Ekki er búið að ákveða hverjir vinni þetta og væntanlega verðum við í sambandi við þá sem hafa þekkingu á vefgerð og slíkum hlutum segir Eyjólfur. Fyrst er að ákveða hvernig þetta verður unnið, síðan hafa samband við eitthvert fyrirtæki eða stofnun til að vinna þetta með okkur. Verkefnið er ekki hugsað fyrir nemendur FAS þó er hugsanlegt að nemendur sem eru að vinna að vefgerð komi þar eitthvað að.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica