Janúar
Grísir5
Grísir5
Troðist í matardallinn
Mynd 5 af 5
1 2 3 4 5

19.01.2005 Janúar

Svínabúskapurinn bindandi en mjög skemmtilegt starf

Tvö svínabú eru í Austur-Skaftafellssýslu, annað á Nýpugörðum á Mýrum og Miðskeri í Nesjum sem bæði þjóna sínu heimahéraði vel með sölu á úrvals svínakjöti, allt eftir óskum viðskiptavinarins. Þar sem svín eru ekki algengur bústofn er ekki úr vegi að kynnast aðeins hvernig er að umgangast þessar skepnur sem oft eru nefndar í neikvæðri merkingu. Algengt er orðatiltækið ,,að svína allt út" og vera eins og svín, í þeirri merkingu að vera subbulegur. Þetta segja svínabændur vera algjör öfugmæli því svín séu virkilega hreinlegar skepnur. Fréttaritari vefsins brá sér í heimsókn til þeirra Pálínu og Sævars Kristins á Miðskeri sem stundað hafa svínarækt í tíu ár. Pálína var að taka til kvöldmatinn handa svínunum sem greinilega voru orðin óþolinmóð og létu vel í sér heyra. Þarna voru margar stíur fullar af fjörlegum, tandurhreinum grísum af ýmsum stærðum, virkilega fallegir. Ekki er hægt að nota orðið fallegur um fullorðnu svínin en þau voru hrein, snyrtileg og vinaleg.

Pálína segir að þau hafi byrjað svínabúskapinn með fjórar gyltur og smá aukið stofninn. Við höfum mest verið með 15 gyltur en erum núna með 11 svo þetta er líklega minnsta svínabúið á landinu. Gylturnar gjóta tvisvar á ári og er algengt að hver gylta eigi um 20 grísi í goti og 15-16 af þeim lifi. Venjulega eru um 130 grísir í uppeldi og er þeim svo slátrað þegar þeir eru 5 til 6 mánaða gamlir. Góðar og frjósamar gyltur verða um fimm ára gamlar.

Pálína segir að svínabúskapur sé bindandi en mjög skemmtilegt starf. Vinnudagurinn hjá þeim byrjar á því að gefa svínunum innflutta fóðurblöndu og heimaræktað valsað korn. Svo er flórinn mokaður, snyrt í stíunum og sett hey og hálmur í þær. Gylturnar eru gráðugar í hey og verða alveg ómögulegar ef þær fá ekki heytuggu, þá hrína þær og kvarta mikið. Næsta máltíð svínanna er um kl. 17. og síðasta máltíð dagsins nokkru seinna, sama fæði.
Þegar gylturnar gjóta þurfum við alveg að vera yfir þeim, segir Pálína, og oft þurfa þær hjálp við fæðinguna. Taka þarf grísina frá mömmunni strax og þeir hafa fengið smá mjólkursopa, annars er hætta á að hún leggist ofaná þá og þeir drepist. Fyrstu tvo sólarhringina þarf að vakta grísina og eru þeir hafðir í hitakassa fyrstu 3-4 vikurnar. Þeir fara sjálfir til mömmunnar og fá sér að drekka og eru svo snöggir að koma sér aftur í hlýjuna í kassanum.

Oft þarf að gefa grísunum mjólk úr pela ef móðirin mjólkar ekki nóg eða of margir eru um sopann. Kúamjólkin er mjög óholl fyrir grísina en þó segir Pálína að þau hafi getað notað hana með því að blanda herbalife í hana og fengið þar nauðsynleg bætiefni.
Hún segir að svínin séu skemmtileg dýr og gaman að umgangast þau og auðvelt að gera þau að gæludýrum ef þeim er strokið og klappað. Pálína og Sævar eru einnig með mikla kartöflurækt og fást vistvænar gæða kartöflur frá þeim í verslunum hér allt árið.

Lítil grísasaga.
Nokkrir sprækir grísir notuðu í sumar einstakt tækifæri til að skoða sig um utan dyra þegar eigendur þeirra höfðu brugðið sér að heiman. Gleymst hafði að loka vel stíunni þeirra og hurðin á húsinu var opin, en svínin eru alltaf höfð inni. Kannski hefur þeim ekki litist á alla þessa víðáttu því þeir fóru beint í blómagarðinn þar sem þeir léku sér í runnum og beðum. En öll skemmtun tekur enda, líka hjá litlum grísum því þegar Pálína og Sævar komu heim og sáu grísahópinn í garðinum var þeim snarlega komið í sitt hús og öllum dyrum lokað.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica