Nýtt efni sem tengt er Suðursveit og Þórbergssetri
Nýtt á Þórbergsvefnum
Í byrjun nýs árs er ástæða til að vekja athygli á Þórbergsvefnum, thorbergur.is, sem er skaftfellskur vefur um Þórberg Þórðarson, Þórbergssetur og Suðursveit. Vefurinn hefur verið settur upp að nýju og alltaf er að berast inn á vefinn nýtt efni sem tengt er Suðursveit og Þórbergssetri. Á hverjum degi er fært inn í dagbók, bæði veðurlýsingar, en einnig það helsta sem er á döfinni hjá Þórbergssetri. Fyrirhugað er að vera með lýsingar á eftirtektarverðum stöðum í nágrenni Hala og er fyrsta greinin komin inn á vefinn þar sem fjallað er um mosa og fléttur á Kvennaskálasteininum. Á næstunni verður fjallað um fjalhöggin í Hvannadal og reynihrísluna á Reynivöllum svo eitthvað sé nefnt. Tilvitnun mánaðarins er alltaf á sínum stað, en þar eru það þjóðfrægir menn sem eru með tilvitnun í bækur Þórbergs og persónulegar frásögur tengdar tilvitnuninni. Fyrir jólin var birt skemmtilegt viðtal við Sigurð Þorsteinsson frá Reynivöllum um jólahald á Hringbraut 45 og um áramótin var birt dagbókarbrot Þórbergs frá árinu 1935 . Ýmislegt annað bíður þess að koma fyrir almenningssjónir svo sem brot úr bréfi Önnu Benediktsdóttur móður Þórbergs frá árinu 1915, sem birtast mun á næstunni og ýmislegt fleira. Þeir sem áhuga hafa á að fylgjast með Þórbergsvefnum geta skráð sig á póstlistann thorbergur.is, en skilaboð eru send inn á listann í hvert sinn sem nýtt efni berst inn á vefinn.
Mikil undirbúningsvinna fór fram á síðasta ári við uppbyggingu Þórbergsseturs bæði fræðavinna og hönnun sýningar og húsnæðis. Að þeirri vinnu hafa komið Jón Þórisson leikmyndahönnuður, Sveinn Ívarsson arkitekt, dóttursonur Þórbergs Þórðarsonar, María Gísladóttir bókmenntafræðingur hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Kolbrá Höskuldsdóttir bókmenntafræðingur sem nú er búsett á Hala svo og heimamenn og stjórn sjálfseignastofnunarinnar, sem stofnuð hefur verið um Þórbergssetur. Pétur Gunnarsson rithöfundur skrifar texta sýningarinnar og Kristján Eiríksson hjá Árnastofnun veitir liðsinni, en hann er mjög fróður um Þórberg og er m.a. að lesa handrit hans sem hann hefur skrifað á esperantó og fáir hafa séð eða skilið. Framundan er svo uppbygging húsnæðis og reiknað er með að smíðavinna hefjist í febrúar, en ekki er ljóst á þessari stundu hversu langt verður komist með fjármögnun og síðar framkvæmdir á þessu ári. Upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að Þórbergssetur opnaði í júní 2005 en í síðasti lagi 2006 svo segja má að enn sé allur undibúningur á áætlun en eftir að vita hvernig framkvæmdir ganga.
Allar ábendingar um efni og fróðleik, ekki síst gamalt myndefni úr Suðursveit eru vel þegnar. Hafa má samband við Þorbjörgu eða Fjölni í síma 478 1073 eða 893 2960 eða skrifa á tölvupóst hali@thorbergur.is





Skrifa athugasemd