Janúar
Hjördís Þóra formaður Vökuls
Hjördís Þóra formaður Vökuls

11.01.2005 Janúar

Vökull í samstarfi við Fræðslunetið

Menntasmiðjan var sett sl. fimmtudag og hófst fyrsta námskeiðið í gærkvöldi. Það er Vökull Stéttarfélag sem stendur að námskeiðum Menntasmiðjunnar. Námskeiðin sem boðið er uppá eru; tölvunámskeið fyrir byrjendur og fyrir vefinn, Austurlensk matargerð, sjálfsefling, glerskurður, enska og skyndihjálp. Þessi námskeið eru einnig í boði á Djúpavogi, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði en það lítur út fyrir að þar verði einungis tölvunámskeið haldin vegna ónógrar þátttöku segir Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður Vökuls. Við erum í samstarfi við Fræðslunetið og er Emil Björnsson hjá Fræðslunetinu eini utanaðkomandi kennarinn á þessum námskeiðum hér á Höfn.

Í dag hefst hjá Vökli námskeið fyrir trúnaðarmenn hjá félaginu og eru um tuttugu manns boðaðir á námskeiðið. Hjördís segir að 28 manns séu skráðir atvinnulausir í Sveitarfélaginu Hornafirði í byrjun þessa árs, 13 konur, 15 karla. Í byrjun síðasta árs voru atvinnulausir á Hornafirði 39.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica