Janúar
Guðrún Ingólfsdóttir
Guðrún Ingólfsdóttir
Guðrún Ingólfsdóttir og Ragnhildur Jónsdóttir
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

11.01.2005 Janúar

Guðrúnu Ingólfsdóttur færður þakklætisvottur

Í gærkvöldi komu saman á Hótel Höfn, tuttugu og tvær eldhressar húsmæður sem stundað hafa heilsurækt í Orkuverinu frá opnun þess og allt þar til því var lokað fyrir einu ári. Orkuverið hafði þá verið starfandi í tæp tuttugu ár. Ástæðan fyrir þessu móti okkar var að færa Guðrúnu Ingólfsdóttur smá þakklætisvott fyrir að halda okkur sprækum í gegnum árin með líkamsræktinni í Orkuverinu sagði Ólafía Gísladóttir. Þegar loka átti Orkuverinu 2002 ákváðum við að kveðja Guðrúnu með pomp og prakt og fengum listakonuna Nanný til að gera forláta skál og einnig fengum við Guðbjart Össurarson til að gera tvær vísur. Þar sem Orkuverið hélt svo áfram starfsemi sagði Ólafía að dregist hefði að afhenda skálina þar til í gærkvöldi. Eftir lokun Orkuversins fluttu flestar konurnar sig yfir í Sporthöllina og hafa haldið líkamsræktinni áfram.

Ein af þeim alhörðustu í heilsueflingunni er Sólveig Sveinbjörnsdóttir og hún fékk verðlaun frá Orkuverinu á tíu ára afmæli þess, fyrir góða mætingu og ástundun en Sólveig hafði mætt í alla sína tíma.
Vísurnar eftir Guðbjart sem Guðrúnu voru afhentar voru svona:

Guðrún hefur hamast við
heilsu vorri að bjarga.
Með Zóphonías sér við hlið
sigra vann hún marga.

Efldi þeirra orkuver
okkar kraft og vilja.
Þessar stundir þakka ber
þegar leiðir skilja.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica