Janúar
Flug yfir suðausturlandið
Flug yfir suðausturlandið
Þrjár þotur fljúga hlið við hlið eins og á flugsýningu, séð frá Höfn.
Mynd 1 af 3
1 2 3

07.01.2005 Janúar

Mikil flugumferð yfir suðausturlandi

Hver veltir ekki fyrir sér þegar litið er til himins og horft er á þoturnar fljúga yfir hvert þær sér að fara. Þoturnar skilja oft eftir sig falleg munstur í himininn, sérstakalega þegar er heiðskýrt og kalt eins og búið er að vera undanfarna daga. Á miðvikudag um hádegisbilið var sérstaklega mikil umferð í loftinu, þar komu þoturnar hver á fætur annarri. Að sögn Guðmundar Hafliða Guðmundssonar flugumsjónarmanns á Hornafjarðarflugvelli er búið að vera talsverð flugumferð um svæðið hér yfir suðausturlandið undanfarið og eru það þotur á leið sinni milli Evrópu og Ameríku. Flughæð þeirra er í 30 þúsund fetum eða hærra.

Mikið var um viðkomu ferjuflugvéla á Hornafjarðarflugvelli í nóvember og fyrstu vikuna í desember. Hafliði segir að þetta hafi mest verið flugvélar sem Evrópubúar voru að kaupa í Ameríku þar sem hagstætt er að kaupa þær núna. Hafliði segir innanlandsflug hafa gengið þokkalega í þeim umhleypingum sem búnir eru að vera undanfarið og ekki mikið um seinkanir á flugi eða að flug hafi fallið niður.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica