Janúar
Þrettándabrenna 2005
Þrettándabrenna 2005
Frá þrettándabrennunni við Stekkhól 2005
Mynd 2 af 6
1 2 3 4 5 6

07.01.2005 Janúar

Þrettándabrennan í Nesjum

Þrettándabrenna Ungmennafélagsins Mána var haldin inn við Stekkhól í Nesjum í gærkvöldi. Eins og undan farin ár var það UMF Máni sem stóð að brennunni. Margir lögðu leið sína inn að Stekkhól til að njóta brennunnar og var veðrið hið besta, smá gola og rétt yfir frostmarki. Ekki var flugeldasýning að þessu sinni en greinilegt var að margir höfðu geymt eitthvað af flugeldunum frá því á gamlárskvöldi og sendu þá á loft á þrettándanum. Einnig var flugeldasala Björgunarfélagsins opin í gær eins og undanfarin ár.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni þá eru veðurhorfur næsta sólarhring: Norðaustan 5-8 m/s en 8-15 og snjókoma eða slydda eftir hádegi. Norðlægari og úrkomuminna í nótt. Hiti kringum frostmark síðdegis.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica