Næsti skáli verðu steyptur eftir helgina
Framkvæmdir í Almannaskarði eru nú að skríða í gang eftir áramótin segir Björn Harðarson starfsmaður .
Norðmennirnir og starfsmenn Héraðsverks fóru til síns heima yfir jól og voru í fríi framyfir áramót. Norðmennirnir komu frá Noregi í gær og eru byrjaðir að vinna við vatns- og frostklæðningu í göngunum.
Starfsmenn G. Þorsteinssonar ehf. steyptu fyrsta skálann af sex við göngin að sunnanverðu milli jóla og nýjárs og búið er að steypa helminginn af sökklunum. Geir Þorsteinsson segir að þeir þurfi viku til að undirbúa næstu steypu og næsti skáli verði steyptur eftir helgina verði ekki frost. Steypuvinnu er lokið við vegskálann að norðan, aðeins eftir að ,,fínisera" þetta og tengja skálann við bergið með sprautusteypu.
Ef allt gengur eins og vonast er til og veður hagstætt verður vinnu við vegskálana lokið um miðjan febrúar. Verklok við göngin í Almannaskarði eru 15. júní.




Skrifa athugasemd