Janúar
Tilbúin til veiða
Tilbúin til veiða
Ásgrímur Halldórsson SF250 í Hornafjarðarhöfn (úr myndasafn).

05.01.2005 Janúar

Ásgrímur Halldórsson er á leið til Hornafjarðar með 700 tonn

Loðnuveiðiskipið Ásgrímur Halldórsson er á leið til Hornafjarðar með 700 tonn af loðnu sem veiddist austan við Kolbeinsey. Um tuttugu tíma sigling er af veiðisvæðinu og verður skipið væntanlega komið að Hornafjarðarós um hádegi á morgun og kemst inn um kl 14.30. Sverrir Aðalsteinsson hjá Skinney Þinganesi segir allt tilbúið fyrir vinnslu á loðnunni en ekki komi í ljós fyrr en loðnan er komin á staðinn hvernig hún verði unnin. Sverrir á ekki von á að þá vanti mannskap í loðnuvinnsluna umfram það sem til staðar er. Það er af sem áður var þegar fjölda fólks þurfti í loðnuvinnsluna, núna þarf tiltölulega fátt fólk, nú eru það vélarnar sem sjá um flokkun, pökkun og flest það sem tilheyrir vinnsluferlinu.

Jóna Eðvalds leitar loðnu norður af Rifstanga, einnig eru átta önnur skip við loðnuleit.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica