Janúar
Hreindýr í nágrenni Hafnar
Hreindýr í nágrenni Hafnar
Hreindýr í nágrenni Hafnar
Mynd 1 af 2
1 2

05.01.2005 Janúar

Hreindýrin geta verið hættuleg akandi vegfarendum

Hreindýrahópar hafa undanfarið verið nágrenni Hafnar og í Lóninu. Ekki eru allir hrifnir af komu þessara dýra en óneitanlega eru þau falleg og tignarleg. Rán Þórarinsdóttir hjá Náttúrustofu Austurlanda segir ekki sé komin vetrartalning á þessu ári yfir dýrin sem halda sig í Austur-Skaftafellssýslu en hún taldi í sumar 246 dýr í Nesjum og 21 á Mýrum. Í mars 2002 voru talin 162 dýr í Lóni, 76 í Nesjum, 56 á Mýrum og 55 í Suðursveit. Hreindýrin hafa ekki síður en hestarnir verið hættuleg akandi vegfarendum og nokkur tilfelli eru um að þau hafi lent fyrir bíla. Dýrin eru friðuð á þessum tíma og næsta veiðitímabil ekki fyrr en í ágúst nk.

Þó er rétt að benda á að veiðileyfisumsóknir fyrir 2005 þurfa að berast fyrir 15. febrúar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica