Afla- og fiskifréttir í byrjun ársins
Skip Skinneyjar Þinganes, Ásgrímur Halldórsson er farinn til loðnuveiða og Jóna Eðvalds til loðnuleitar ásamt átta öðrum skipum. Leitað verður bæði á austur- og vestursvæðinu. Veður er enn afleitt á miðunum og lítil von um að gefi til veiða næstu daga. Sverrir Aðalsteinsson hjá Skinney Þinganesi sagði að línu og netabátar útgerðarinnar færu til veiða strax og fært yrði. Eftir einstaklega góða síldarvertíð snúa menn sér nú að saltfiskinum aftur en mjög rólegt hefur verið í fiskvinnslu undanfarið þar sem ekki hefur gefið á sjó nokkuð lengi.
Í Bestfiski er verið að ganga frá því sem eftir var af saltfiski og gera tilbúið fyrir vetrarvertíðina. Auk saltfisksins selur Bestfiskur ferskan fisk.. Hjá Papós er fiskurinn saltaður og einnig fluttur út ferskur. Þar er allt klárt fyrir vertíðina.





Skrifa athugasemd