Nýársferð Jeppaeiganda á Hornafirði
Margir jeppaeigendur tóku sig saman og héldu í jeppaferð í veðurblíðunni sem var í gær, enda kalt í veðri og ísarnir góðir til að keyra á. Lagt var af stað um eitt leitið og var farið niður með flugvellinum yfir Hoffelsá og út í Skógey, þaðan yfir Hornafjarðarfljótin og vestur yfir Tjörn. Þar var stefnt í hásuður til Þinghóla og haldið út í Staðarey. Ferðalangarnir keyrðu síðan með vesturfjörunum að ósnum þar sem Kolgríma rennur út í og upp að Smyrlabjörgum. Alls voru þetta 19 jeppar og sá síðasti bættist við hjá Smyrlabjörgum. Á leiðinni var stoppað á nokkrum stöðum, teknar myndir og farið á skauta. Að sögn Huga Einarssonar þá var ferðin mjög vel lukkuð, hitastigið rokkaði frá mínus 5-9 gráður og allsstaðar gott hald á ísnum.
Í svona ferðum skiptir miklu máli að aðgát sé höfð og ekki farið nema í fylgt með aðilum sem þekkja leiðina. Ferðalangarnir komu síðan heim seinnipartinn.





Skrifa athugasemd