Áramótin á Hornafirði
Áramótin fóru mjög vel fram á Hornafirði og þrátt fyrir miklar veðurhrakspár þeirra veðurstofumanna viðraði þokkalega vel á gamlaárskvöldinu og stóðust allar áætlanir um skemmtanir kvöldsins og kveikt var í brennunni á réttum tíma. Lítið varð vart við flugelda eða annað slíkt meðan áramótaskaup sjónvarpsins stóð yfir en um leið og því lauk byrjaði flugeldaskothríðin af fullum krafti með tilheyrandi hávaða og skrautlýsingu. Flugeldaskotum virðist fjölga um hver áramót og því sem skotið er upp er stærra og tilkomumeira en var um síðustu áramót. Lögreglan á Höfn er ánægð með hegðun bæjarbúa um áramótin og segir að allt hafi farið vel fram og engin vandamál komið upp.
Nýja árið heilsar Hornfirðingum með blíðskaparveðri, hægviðri, léttskýjað og smá frost. Hálka á vegum og gönguleiðum hefur mikið lagast en margir eru óhressir með hvað lítið hefur verið gert gegn flughálku á gangstéttum í bænum.
Hornafjörður.is sendir ykkur öllum bestu óskir um gleðilegt og farsælt nýtt ár með þökk fyrir liðna árið.





Skrifa athugasemd